Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Síða 23

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Síða 23
MAR ÍA STE INGR ÍMSDÓTT I R 23 sóknum á nýjum kennurum sem sýna að agamál eru eitt mesta áhyggjuefni nýliða í kennarastarfi (Jonson, 2002). Líðan nýju kennaranna virðist sveiflast þetta fyrsta starfsár og athygli vekur hversu mikill samhljómur var í lýsingum allra viðmælendanna á líðan sinni yfir veturinn. Þar er að finna mikla samsvörun við þau tilfinningatímabil sem Moir (1999) telur að nýliðar gangi í gegnum fyrsta starfsárið. Hún kemst að þeirri niðurstöðu að gagnlegt sé fyrir þá sem að málum nýrra kennara koma að þekkja vel til þessara tímabila í starfsþroska nýliða. Þannig verði þeir sem vinna með nýliðum í kennarastarfi betur í stakk búnir til að aðstoða þá og veita þeim stuðning til að þróa sig í starfi. Moir telur einnig brýnt fyrir skólasamfélagið að vera vel á verði gagnvart þeim tíma í ferli nýrra kennara þegar mesti spenningur upphafsins er afstaðinn og það tímabil tekur við þegar starfið verður yfirþyrmandi, nýliðarnir sjá ekki fram úr mikilli vinnu og vandamál kunna að hlaðast upp. Þá þurfi skólastjórnendur og samkennarar að vera tilbúnir að koma þeim til aðstoðar því að mörgum nýliðanum geti reynst erfitt að komast í gegnum þetta tímabil og sennilega sé þetta sá tími sem erfiðastur er fyrir nýja kennara. Það var einmitt á þessu tímabili sem viðmælendur sögðust hafa velt fyrir sér að hætta. Á þessum tíma eru nýliðar að fást við margt nýtt, svo sem námsefniskynningar, foreldraviðtöl og námsmat. Þeim finnst þeir vera látnir afskiptalausir og finna fyrir einangrun frá starfsfélögum, ekki bara faglega heldur einnig félagslega. Hér má finna mikla samsvörun við þau tímabil sem Moir kallar „að halda velli“ og „vonbrigði“. Misjafnt var hvernig viðmælendur brugðust við eigin líðan á þessum tíma. Við- brögð sumra voru neikvæðni og vonbrigði með starfið, aðbúnaðinn og samstarfsfólk- ið, auk þess sem sjálfsálit þeirra dvínaði. Þetta fellur að áliti Gordon og Maxey (2000) sem halda því fram að á þessu tímabili sé hætta á að nýliðar fyllist neikvæðni og reyni að finna sökudólg fyrir vanlíðan sinni í nemendum eða jafnvel foreldrum. Sjá má á svörum viðmælenda að á útmánuðum voru þeir orðnir öruggari í kennsl- unni og ákveðnari gagnvart nemendum og um leið styrktist bekkjarstjórnun. Þeir töldu sig einnig geta betur tekist á við hið óvænta í kennslunni sem bendir til að þeir hafi náð nokkuð góðum tökum á málum og hafi getað nýtt sér kennsluáætlanir sem stuðning í stað þess að láta þær ráða ferðinni. Um leið og öryggið verður meira eykst yfirsýn kennaranna og þeir beina ekki lengur athygli að einum eða fáum nemendum í bekknum. Af því leiðir að sjálfsöryggi eykst um leið og þeim finnst þeir ná betur utan um það sem fram fer í skólastofunni. Hér samræmist líðan viðmælenda tímabilinu sem Moir (1999) nefnir „að eflast á ný“. Ákveðin þróun er sýnileg í starfsþroska viðmælendanna þetta fyrsta starfsár. Í fyrstu voru þeir uppteknir af sjálfum sér og sinni eigin færni og líðan en þegar leið á veturinn töldu þeir sig öruggari í starfi og geta sinnt þörfum nemenda betur. Þeir gátu frekar brugðið út af kennsluáætlunum og verið meira „spontant“ eins og einn þeirra orðaði það. Þetta fellur vel að hugmyndum Hallford (1999) þar sem hann fjallar um kenningar Fuller frá 1969 um starfsþroskaferli kennara. Í lok skólaárs var greinilegt að sjálfskoðun viðmælenda var töluverð og töldu allir að á þessum fyrsta vetri í kennslu hefðu þeir þroskast mikið faglega og einnig sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.