Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Síða 24

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Síða 24
„OFSALEGA ERF I T T OG ROSALEGA GAMAN“ 24 persónur. Þetta tímabil samsvarar „íhugunar“-tímabili Moir (1999). Vert er að hafa í huga að kennararnir átta voru á mjög misjöfnum aldri en þrátt fyrir það virtist starfið krefja þá um ákveðinn persónuþroska, sem leiðir hugann að því hvort kennarar þurfi að hafa tiltekinn persónuleika til að bera. Síðasta tímabilið í líkani Moir kallar hún „eftirvæntingu“ eins og fyrsta tímabilið og greinilegt er að finna má samsvörun við það því allir viðmælendur mínir voru farnir að horfa til næsta skólaárs, hlökkuðu til að takast á við það og að geta byggt á fenginni reynslu af fyrsta starfsárinu og auknum persónulegum þroska. SAMANTEKT OG LOKAORÐ Þó að nýir kennarar séu með þriggja ára menntun að baki gengur þeim misvel að fást við margþætt og flókið starf kennarans. Ljóst er að það er margt sem felst í starfinu sem ekki er hægt að kenna í kennaranáminu en verður að lærast á vettvangnum sjálf- um. Meginniðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að nýbrautskráðir kennarar horfi björtum augum til komandi starfs við lok formlegs kennaranáms. Margir þeirra hafa metnaðarfullar hugmyndir um það hvernig þeir vilja sinna starfinu og á hvað þeir vilja leggja áherslu. Svo virðist sem lítill munur sé á móttöku nýliða og eldri starfsmanna þegar skólar hefjast að hausti og að þær móttökur sem nýliðar fá uppfylli ekki þær þarfir sem nýi kennarinn hefur í upphafi ferils síns. Viðmælendur mínir töldu sig þarfnast mark- vissrar móttöku og handleiðslu ráðunautar sem þeir gætu leitað til með spurningar um fagleg sem hagnýt atriði. Þeim fannst skorta á þann stuðning sem þeir þyrftu til þess að finna til öryggis svo að þeir gætu náð árangri í starfi og fengið tækifæri til að nýta þekkingu sína úr náminu. Afleiðingarnar virðast vera þær að nýliðum er hætt við að lenda í erfiðleikum og streitu sem hægt væri að koma að mestu í veg fyrir með góðri innleiðingu í starfið og góðum stuðningi. Ef þeir fá stuðning við að aðlagast er líklegt að þeir nái meiri árangri, verði öruggari og skapi með sér jákvætt viðhorf sem svo leiðir til meiri starfsþroska og fagvitundar. Sé litið til þeirrar ábyrgðar sem nýliðum er falin og þeirrar tilhneigingar að líta á þá sem fullgilda starfsmenn strax í upphafi er umhugsunarvert að ekki skuli ætlaður tími til aðlögunar og markvissrar leiðsagnar. Það eru ekki aðeins skólastjórnendur sem ætlast til að nýliðar standist þetta álag heldur hafa nemendur og foreldrar sömu vænt- ingar til þeirra og reyndari kennara. Það hlýtur því að vera mikilvægt að styðja þá þannig að þeim sé gert kleift að standa undir þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar. Niðurstöður úr rannsókninni eru mjög sambærilegar við erlendar rannsóknir sem sýna fram á að fái nýir kennarar ekki góðan stuðning í upphafi sé hætta á að þeir gef- ist upp, þrói með sér aðferðir til að þrauka af álagið, starfsþróun verði lítil og oft leiði það til neikvæðni (Feiman-Nemser 2003). Talið er að þeim nýliðum sem fá góða og markvissa leiðsögn og stuðning í starfi vegni betur en hinum og brottfall virðist vera minna úr hópi þeirra kennara sem njóta skipulegs stuðnings í upphafi. (Ingersoll og Smith 2003).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.