Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 99

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 99
99 BIRNA M. SVANBJÖRNSDÓTT I R erfiðara með að gera grein fyrir daglegum athöfnum barna sinna og virtust almennt taka minnst tillit til barna sinna af norrænu foreldrunum. Annað atriði sem var ein- kennandi fyrir Ísland var hversu mikill kynjamunur var á þátttöku í uppeldi en mæð- ur koma þar meira við sögu en feður. Íslensku börnin virtust njóta lítilla samvista við feður sína (Baldur Kristjánsson, 2003). Sigrún Júlíusdóttir (2003) telur þó að margt bendi til að ný gildi og áherslur séu að mótast í íslensku samfélagi. Hún segir að ungt fólk virðist nú fremur skipuleggja fjölskyldumyndun en áður og sæki jafnvel fjölskylduráðgjöf og fræðslu. Í hinum vestræna heimi er ríkjandi það viðhorf að notendur opinberrar þjónustu eigi að geta haft áhrif á þjónustuna, einkum ef hún snertir daglegt líf notandans, svo sem þjónusta skóla og heilsugæslu. Því meiri áhrif sem notandi getur haft þeim mun meiri árangurs má vænta af starfseminni (Elísabet Svavarsdóttir og Ólafur Guðmunds- son, 1996). Á Íslandi er gert ráð fyrir því að samstarfið um skólastarfið í heild fari fram á vegum foreldrafélaga. Þar eru mótaðar leiðir til að foreldrar fái tækifæri til áhrifa á skipulag og áherslur í skólastarfi (Lög um grunnskóla 1995:35. gr.). Gerð var könnun á viðhorfi foreldra til samstarfs heimila og skóla í tveimur skólum í Kópavogi skóla- árið 1994–1995. Úrtakið var 200 foreldrar, 170 svöruðu eða 85%. Helstu niðurstöður könnunarinnar eru þær að um 92% aðspurðra foreldra töldu samstarf milli heimila og skóla skipta miklu eða mjög miklu máli en jafnstórum hluta þeirra fannst þeir hafa lítil sem engin áhrif á skólastarfið. Ríflega helmingur foreldra hafði aldrei haft samband við skólann utan hefðbundinna foreldradaga eða funda á skólaárinu og enn færri, eða um 35%, höfðu haft samband út af öðru en námi og einungis 3% höfðu reglubundið haft samband (Elísabet Svavarsdóttir og Ólafur Guðmundsson, 1996). Árin 2002–2004 var gerð starfendarannsókn í Oddeyrarskóla á Akureyri á bættu samstarfi heimila og skóla og þar kemur fram ánægja hjá foreldrum með þann þátt verkefnisins sem snerist um uppeldi og foreldrahlutverk. Foreldrum þótti hafa skap- ast traust og jákvæðni í samskiptum heimilis og skóla. Eins voru foreldrar ánægðir með að fá hagnýt námskeið og fræðslufundi en best gekk með fræðsluþátt foreldra þegar fræðslan tengdist námi nemenda, þroska þeirra, félagstengslum eða forvörnum (Ingibjörg Auðunsdóttir, 2006). Þessar niðurstöður eru í takt við niðurstöður ETAI- rannsóknarinnar sem gerð var á árunum 1998–2001 og er afrakstur samvinnu skóla- fólks frá Austurríki, Íslandi, Portúgal og Spáni. Þar kom fram að þegar foreldrum stóð til boða fræðsla hefði það bæði haft jákvæð áhrif á nám barnsins í skólanum og heima (Rósa Eggertsdóttir, Gretar L. Marinósson o.fl., 2002). Þessar niðurstöður benda til þess að fræðsla til foreldra komi börnum þeirra til góða. Ef litið er til kenninga Bronfenbrenner er ljóst að margir samverkandi þættir hafa áhrif á þroska og vöxt barns en þær kenningar ásamt kenningum og hugmyndum um geðtengslamyndun, uppeldishætti og verndar- og áhættuþætti gefa skýrt til kynna að foreldrar gegna lykilhlutverki í umönnun barnsins og því mikilvægt að þeir geti sinnt því hlutverki eins og best verður á kosið. Ef sú tilfinning er á rökum reist sem nefnd er í inngangi, að foreldrar séu óöruggir í foreldrahlutverkinu, er mikilvægt að styðja þá í því hlutverki. Spurningin er hins vegar hvort þeir vilji slíkan stuðning eða ekki og hvort aldur foreldra, menntunarstig eða aðrir þættir hafi áhrif þar á. Ætla má að foreldrar vilji börnum sínum allt það besta en jafnframt má geta sér til um að þeir séu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.