Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Síða 118

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Síða 118
118 HVAÐ SEGJA TE IKN INGAR BARNA UM HUGMYNDIR ÞE I RRA UM L ÍKAMANN S INN? myndir þeirra og þekkingu á ýmsum þáttum sem tengjast náttúru og vísindum en í þeirri rannsókn sem hér er gerð grein fyrir voru m.a. notaðar teikningar til að kanna hugmyndir barna um líkamann. Samkvæmt Greig og Taylor (1999) geta barnateikn- ingar gefið innsýn í hugarheim barna og jafnframt veitt mikilvægar upplýsingar um hugmyndir þeirra. Haney, Russell og Bebell (2004) benda á að teikningar barna geti nýst vel við námsmat og einnig við mat á kennslufræðilegum og skipulagslegum þátt- um mismunandi viðfangsefna. Að þeirra mati hafa teikningar barna verið vanmetnar í kennslufræðilegum rannsóknum en þau leggja áherslu á viðtöl við börn þar sem þau tala um og útskýra teikningar sínar. Hér á eftir verður fjallað um það hvernig hugmyndir nemenda í 1. bekk grunnskóla um líkamann birtust í teikningum þeirra áður en formleg kennsla um líkamann hófst, þ.e.a.s. hugmyndir þeirra um útlit, staðsetningu og hlutverk beina og annarra líffæra. Einnig verður skoðað hvernig hugmyndirnar breytast á tveimur skólaárum og reynt að meta hvað það er sem helst hefur áhrif á þróun hugmyndanna. Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar er byggður á hugsmíðahyggju, einkum kenn- ingum Jean Piaget og Lev Vygotsky um vitsmunaþroska einstaklingsins, en einnig á hugmyndum annarra fræðimanna, svo sem John Dewey og Jerome Bruner (Fosnot, 1996). Samkvæmt kenningu Piaget eru hugmyndir barna og skilningur þeirra afrakstur fyrri reynslu þeirra, og jafnframt sá grundvöllur sem þau byggja á við að endurmeta og breyta fyrri hugmyndum (Piaget, 1977; von Glaserfeld, 1996). Piaget lagði áherslu á virkni einstaklingsins og gildi athafna og taldi fjölbreytt viðfangsefni sem barnið fær að glíma við nauðsynlega forsendu þroska. Samkvæmt kenningunni er jafnvægisleitni (e. equilibration) og aðhæfing (e. accommodation) lykilatriði í þróun vitsmunaþrosk- ans. Barnið upplifir togstreitu þegar það stendur frammi fyrir áhugaverðum og ögr- andi viðfangsefnum og þarf að endurskoða fyrri hugmyndir – jafnvel breyta þeim – til að geta tengt nýja þekkingu við þá sem fyrir er (Piaget, 1977; Wadsworth, 1996). Við það næst tímabundið jafnvægi. Hlutverk kennarans er að skapa aðstæður sem hvetja barnið til virkar þátttöku í slíku námsferli. Samkvæmt kenningu Vygotsky (1986) er tungumálið og félagsleg samskipti for- senda vitsmunaþroskans sem mótast jafnframt af menningarlegu umhverfi einstakl- ingsins. Samkvæmt kenningunni (Vygotsky, 1987) er tungumálið tæki til að leysa vitsmunaleg vandamál. Vygotsky lagði áherslu á þátt félaga barnsins í námi þess og þeirra sem lengra eru komnir í þroska þar sem umræður, spurningar og útskýringar gegna lykilhlutverki (Vygotsky, 1986; Fosnot, 1996). Vygotsky notaði hugtakið „Zone of Proximal Development“ eða „þroskasvæðið“ til að útskýra hvernig nám fer fram og hvernig forsendur frekara náms breytast jafnframt. Þá vísar hann til þess bils sem er milli þess sem barnið ræður við eitt og óstutt og endimarka þess sem það ræður við með aðstoð fullorðinna eða annarra getumeiri einstaklinga (Vygotsky, 1978). Sam- skipti við kennara, foreldra og félaga styðja barnið þannig til meiri þroska (Bruner og Haste, 1987). Bruner kom fram með hugmyndir um „spíral námskrá“ (e. spiral curriculum) þar sem námskrá og námsefni á að vera þannig skipulagt að í byrjun er efnið kynnt á einfaldan hátt en síðan smám saman farið út í flóknari og dýpri þætti. Þegar hug-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.