Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 134

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 134
134 HVAÐ SEGJA TE IKN INGAR BARNA UM HUGMYNDIR ÞE I RRA UM L ÍKAMANN S INN? stundum ekki og eru dæmi í rannsókninni um hvort tveggja. Kennari bekkjarins lagði sig fram um að taka mið af hugmyndum barnanna við skipulagningu kennslunnar og leitaðist við að bæta við þekkingu þeirra og skilning á mannslíkamanum með því að nota fjölbreyttar kennsluaðferðir og einnig með því að fjalla um efnið á einfaldan hátt í byrjun en síðan á ítarlegri og flóknari hátt, sbr. hugmyndir Burner um spíral-námskrá, þar sem námsefni á að vera þannig skipulagt að í byrjun er efnið kynnt á einfaldan hátt en síðan smám saman farið út í flóknari og dýpri þætti. Kennslubókin Komdu og skoðaðu líkamann hafði greinilega mikil áhrif á teikning- ar barnanna þar sem þau virtust hafa tilhneigingu til að herma eftir teikningunum í bókinni. Að minnsta kosti höfðu mörg þeirra teikningar bókarinnar greinilega í huga þegar þau teiknuðu sínar eigin hugmyndir. Í raun kemur á óvart hversu mikil áhrif myndir kennslubókarinnar virtust hafa á teikningar barnanna. Þau teiknuðu matinn í heilu lagi í maganum, jafnvel þó þau vissu betur. Þau teiknuðu hjartað tvískipt, blátt og rautt og V-laga eins og sýnt er í bókinni, jafnvel þó þau vissu að hjartað liti ekki þannig út í raun og veru. Þau teiknuðu vöðva á upphandleggi eins og mynd í bókinni sýnir og mörg þeirra teiknuðu heilann með heilastofni til hliðar alveg eins og myndin í bókinni sýnir. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að félagsleg samskipti nemenda skipti miklu máli, hvort sem þeir taka sjálfir þátt í umræðum eða hlusta á umræður þar sem fram koma hugmyndir og skoðanir sem passa eða stangast á við þeirra eigin hug- myndir. Svo virðist sem umræður og skoðanaskipti hafi ekki síður skipt máli fyrir börnin í hópi 3, hæglátu börnin, því jafnvel þó þau hafi ekki tjáð sig munnlega um hug- myndir sínar og tekið þátt í umræðum hafa þau flest, a.m.k. samkvæmt teikningum sínum, verið virkir hlustendur og tekið vel eftir því sem fyrir augu og eyru bar. Þarna skipti umræðu- og spurnaraðferðin sem kennsluaðferð máli en einnig hafa fjölbreytt- ar kennsluaðferðirnar haft sitt að segja, svo sem verklegar æfingar og sýnikennsla þar sem umræður og útskýringar kennara fara fram jafnhliða. Einnig hefur námsefnið áhrif, eins og áður hefur verið rætt. Eins og myndir 14, 15 og 16 sýna eru framfarirnar mismiklar eftir hópum. Á mynd 16 sést vel að mjög virku börnin koma öðru vísi út en hæglátu eða nokkuð virku börnin. Upphafsstaða mjög virku barnanna er hærri en hinna sem þýðir að þau vissu meira fyrir kennsluna en hin börnin en kennslan virðist ekki hafa þau áhrif að þau bæti miklu við sig. Hæglátu börnin koma alls ekki illa út í sam- anburði við hina hópana og það er að minnsta kosti alveg ljóst að hæglátu börnin læra síst minna en hin. Þó upphafsstaða þeirra sé aðeins lægri bæta þau sig svo mikið að þau ná hinum og meira til. Ein skýring á þessum mun er að kennsluaðferðirnar og efnið hafi hugsanlega höfðað minna til mjög virku nemendanna en hinna. Upphafs- þekking þeirra var meiri og þess vegna hefðu þessir nemendur e.t.v. þurft annars kon- ar og einstaklingsmiðaðri kennslu sem kæmi betur til móts við hugmyndir þeirra og reynslu. Önnur skýring gæti verið að virkni þeirra hindraði nám, en það er atriði sem ekki er skoðað í þessari rannsókn. Samkvæmt teikningunum virðast kennsluaðferð- irnar sem notaðar voru hafa höfðað nokkuð vel til virku og hæglátu barnanna því þau bæta við þekkingu sína. Í ljósi þessa má álykta að hæglátu börnin hafi frekar en þau virku getað nýtt þær kennsluaðferðir sem notaðar voru og þannig aukið hæfni sína til
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.