Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 174

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 174
174 HÁSKÓLAST IG IÐ Í L JÓS I HNATTVÆÐINGAR Barátta, sigrar og efasemdir Flestir þátttakendanna hafa lagt mikið á sig í náminu og eru staðráðnir í að ljúka því. Þeir lýsa baráttu og sigrum og hvernig þeir hafa komist yfir erfiða hjalla. Það er þó at- hyglisvert, og e.t.v. áhyggjuefni, að margir taka fram að þeir muni tæplega treysta sér til að kenna í bekkjum og síst af öllu til að verða umsjónarkennarar í íslensku grunn- skólaumhverfi. Asísk kona segir: „Because of the challenges I´m still here.“/„Vegna áskorananna er ég enn hér.“ Og asísk kona nefnir: „I was there on my own .. and I survived!“/„Ég var þar ein og óstudd ... og ég hafði það af!“ Evrópsk kona segir: „Ég hef nýtt mér þjónustu, fæ kannski of mikla núna og vil nú fara að draga úr henni, verða eins og hinir.“ Flestir þátttakendanna draga fram jákvæða reynslu þrátt fyrir erfiðleikana. Amerísk kona segir: „Reynslan af náminu og búsetunni hefur breytt mér mikið. Ég hef fengið aðra sýn á hlutina, gegnum „íslensk augu“, ég er sjálfstæðari.“ Asísk kona segir: „Ég er mjög ánægð með námið. Ég hef lært mikið og sjálfstraust mitt hefur aukist mikið. Ég er sterkari manneskja eftir námið.“ Starfsvettvangurinn Í viðtölunum við erlendu nemendurna kemur fram það sjónarhorn hjá grunnskóla- kennaranemunum að þeir telji sig ekki geta kennt í íslenskum grunnskólum að námi loknu. Þeir segjast ekki vera tilbúnir til þess, sérstaklega ekki sem bekkjarkennarar. Þegar þeir eru beðnir að útskýra þetta nánar nefna þeir m.a. skort á íslenskukunnáttu og ótta við niðurlægingu af hálfu nemenda sinna. Þessi niðurstaða bendir til þess að námið í heild, tilteknir þættir þess eða vettvangsnámið veiti þeim ekki það sjálfstraust, styrk og hvatningu sem þarf til að takast á við starfsvettvanginn í grunnskólum. Allt annað sjónarhorn kemur fram hjá leikskólakennaranemunum. Þeir tala sérstaklega um það hversu hvetjandi starfsvettvangurinn í leikskólunum sé, bjóði þá velkomna og að þeim bjóðist starf strax að loknu námi. Þeir nefna einnig að þeir finni hversu mikil þörf sé þar fyrir starfskrafta þeirra, ekki síst tungumálakunnáttu. Þessa þörf finni þeir hjá börnunum í leikskólunum ekki síður en starfsfólkinu. Íslenskt samfélag – íslenskir háskólar Þátttakendurnir fjalla um stöðu sína í íslensku samfélagi, erfiðleika við að fá aðgang að samfélaginu og hvernig háskólanámið hefur styrkt stöðu þeirra og sjálfsmynd. Sumir líta á sig sem mikilvæga brautryðjendur fyrir annað fólk af sama uppruna og taka þá stöðu sína alvarlega. Asísk kona lýsir því hversu erfitt er að fá aðgang að samfélaginu: It is a very tight society. If you come for a short time, it is alright, everyone is very nice, but if you want to stay for a longer time, everything changes./ Þetta er mjög lokað samfélag. Ef maður kemur í stuttan tíma, er það í lagi, allir eru mjög almennilegir, en ef maður vill vera lengur breytist allt. Evrópsk kona segir: „Ég get nýtt vel fyrri menntun mína og reynslu.“ Asísk kona segir:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.