Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 185

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 185
185 Uppeldi og menntun 16. árgangur 2. hefti, 2007 INGÓLFUR ÁSGEIR JÓHANNESSON Hvað skiptir mestu í kennaramenntun? Kennaramenntun virðist vera á krossgötum núna. Það er þó ekki í fyrsta skipti því ef litið er á sögu hennar hafa margvíslegar breytingar átt sér stað á þeirri rúmu öld sem hún hefur verið við lýði hér á landi. Kennaramenntun er fjölbreytileg og um hana er ýmiss konar ágreiningur. Þetta er ekki bara þriggja ára menntun grunnskóla- kennara til bakkalárprófs eins og stundum mætti halda þegar hlustað er á rökræður um kennaramenntun. Við menntum kennara til að starfa á þremur skólastigum, þ.e. leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, auk þess sem menntaðir eru ökukennarar, dans- kennarar, jógakennarar og háskólakennarar, svo að fáein önnur dæmi séu nefnd. Þessir þankar einskorðast þó við menntun kennara fyrir leik-, grunn- og framhalds- skóla. Meginleiðirnar fyrir þessi skólastig eru þriggja ára bakkalárnám fyrir leik- og grunnskólakennara og þriggja ára eða lengra fagnám ásamt hálfs til eins árs námi í kennslufræðum fyrir grunn- og framhaldsskóla. Iðnaðarmenn koma aðra leið inn í skólakerfið með iðnmeistararéttindi og nám í kennslufræðum – og svona mætti lengi telja alls konar leiðir. Auk þess starfar nú orðið margt annað fagfólk í skólakerfinu; má þar nefna þroskaþjálfa, námsráðgjafa og bókasafnsfræðinga. Lágmarksmenntun kennara hér á landi er þrjú eða fjögur ár en í raun er nám margra miklu lengra. Þetta meginkerfi hefur verið við lýði síðan um 1970 með þeirri mikilvægu undantekningu að menntun leikskólakennara varð jafngild menntun grunnskólakennara fyrir aðeins tíu árum þegar bakkalárnám hófst við Háskólann á Akureyri haustið 1996 og skömmu síðar við Kennaraháskóla Íslands. Þegar þetta er ritað liggur ekki fyrir hvort lagt verður fram frumvarp um að menntun kennara skuli vera fimm ára háskólanám. Flest þykir þó benda til þess, þannig að hér verður gengið út frá því að slík breyting verði innan fárra ára. Hún hlýtur að skapa svigrúm til að breyta formi og innihaldi og margir hugsa sér gott til glóðarinnar að geta bætt einhverju við. En mun lengri kennaramenntun bæta skólastarf? Áherslubreyting, lenging, viðbót Fjölbreytileiki kennaramenntunar ætti að mínum dómi að vera styrkur fyrir skólakerfið en ég er ekki viss að hann nýtist sem skyldi. Hvers vegna? Margt kemur til en ég nefni þó aðeins tvennt: Ég held að margt skólafólk upplifi það sem óþægindi þegar til starfa kemur fagfólk með annan bakgrunn en það sjálft, kennarar sem annað fagfólk. Er þriggja ára bakkalárlíkanið svona sterkt í hugum fólks? Kannski skiptir sú staðreynd að lengi sáu aðeins tveir skólar um kennaramenntun fyrir leikskóla og yngri bekki grunnskóla, þ.e. Fósturskóli Íslands og Kennaraskóli Íslands, síðar Kennaraháskóli Íslands, máli í þessu sambandi. Hitt atriðið sem ég nefni hindrar ekki síður að fjöl- breytileiki í menntun og bakgrunni gagnist skólunum. Það er sú staðreynd að okkur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.