Hugur - 01.06.2011, Page 48

Hugur - 01.06.2011, Page 48
46 Eyja Margrét Brynjarsdóttir í heimspeki og hafna þannig allri tilraunaheimspeki eða tilburðum í þá áttina, jafnvel þeim sem ganga skemra, og telja að heimspeki skuh öðru fremur felast í hugtakagreiningu.2 Eg hef verið að velta fyrir mér eðli tveggja ólíkra fyrirbæra. Annars vegar eru það peningar. Hvað er það sem gerir eitthvað að peningum og í hverju felst það gildi sem peningar hafa? Hins vegar er um að ræða ýmsa eiginleika sem eru með einum eða öðrum hætti skynjanlegir, bæði svokallaða skynræna eiginleika, eins og liti, bragð og hljóð, og rúmeiginleika eins og staðsetningu, stærð og lögun. Til að verða einhverju nær um þetta eðli beiti ég ýmsum greiningar- og hugleiðingar- aðferðum sem eru almennt viðurkenndar heimspekilegar aðferðir. En að auki lít ég til empírískra rannsókna. I empírískum rannsóknum er líka fengist við náttúru, en það er í allt öðrum skilningi þess orðs en þegar eðlið er kallað náttúra. Þar er náttúran það sem náttúruvísindin skoða með reynsluna sér til halds og trausts. Það verður ekki beint sagt að ég leggi stund á tilraunaheimspeki þar sem engar tilraunir fara fram á mínum vegum. En notkun mín á niðurstöðum úr empírísk- um rannsóknum vekur upp svipaðar spurningar og tilraunaheimspekin: Hvernig getur það verið réttlætanlegt að notast við empírísk, eða reynslubundin, gögn til að draga ályktanir um það sem samkvæmt skilgreiningu verður ekld fundið með reynslu? Hugmyndin er jú sú að vettvangur frumspekinnar, og þar með verufræð- innar, sé annars staðar en þar sem reynslan getur leitt okkur. Og það eðli sem er verið að skoða heyrir undir verufræði. Til að réttlæta notkun mína á empírískum gögnum í frumspeki ætla ég að lýsa þessum tveimur viðfangsefnum mínum betur og skýra hvernig megi nálgast hvort um sig. Ég mun færa rök fyrir því að notkun empírískra gagna sé í sumum tilfellum réttlætanleg í frumspeki en að það krefyst ákveðinnar sýnar á viðfangs- efnið. Sem sagt tel ég að einhvers konar tilraunaheimspeki geti verið gagnleg í frumspeki en það þýðir ekki að ég telji að öllum frumspekilegum spurningum verði svarað með sálfræðitilraunum. Sum frumspekileg viðfangsefni verða best skoðuð úr hægindastólnum eftir sem áður. Náttúra og eðli Þær spurningar sem ég hef verið að velta fyrir mér snúast um það sem kalla má verufræðilegt eðli. Verufræðilegt eðli hlutar segir til um hvað hluturinn er. Hvaða eiginleika þarf hann að hafa til að bera til að vera sá hlutur sem hann er? Hvernig þarf hann að vera til að geta talist hlutur af þeirri gerð sem hann er af en ekki hlutur af einhverri annarri gerð? Hér gef ég mér ákveðnar forsendur sem deila má um og vera má að ástæða sé til að rökstyðja þær sérstaklega. Slíkur rökstuðningur verður ekki settur fram í neinum smáatriðum að þessu sinni en til að lesandanum sé ljóst út frá hverju er gengið er rétt að ég greini frá þeim forsendum sem þessi skrif mín miðast við: Ég geri ráð fyrir að maðurinn sé hluti af náttúrunni, að minnsta kosti að nægilega 2 Sjá umræður í Braddon-Mitchell og Nola 2009.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.