Hugur - 01.06.2011, Side 70

Hugur - 01.06.2011, Side 70
68 Svavar Hrafn Svavarsson dyggðin er hagfelld hinum dyggðuga skaðar löstur hinn löstnga. Það er ekkert á milli dyggðar og lastar. Samsemd skynsemi og dyggðar fylgir að dyggðin er „náttúruleg fullkomnun skynsemisveru sem skynsemisveru".35 Það er ekki til mis- jafnlega mikil fullkomnun, og því ekki heldur misjafnlega mikil dyggð. Skort- ur fullkomnunar, skynsamlegrar fullkomnunar hins dyggðuga, er ófullkomleiki. Stóumenn skýra hugmynd sína með því að líkja óumflýjanlegri eymd þeirra sem eru ekki dyggðugir, hversu siðferðilega þroskaðir sem þeir eru, við ástand þeirra sem eru á kafi í vatni, því hversu skammt frá yfirborðinu sem þeir eru vantar þá andrúmsloftið fyrir ofan og hljóta að drukkna. Þessi skoðun þeirra á ekki að vera í mótsögn við aðra skoðun þeirra, nefnilega þá að manneskja geti vissulega tekið siðferðilegum framförum, rétt eins og hún getur verið nálægt eða fjarri yfirborð- inu þótt hún drukkni. Það er megineinkenni stóískrar siðfræði að hún einskorðar góðleika alfarið við dyggð, skynsamlegt val þess sem er í samræmi við náttúruna. Þessari hugmynd fylgir að gott líf manneskjunnar, farsæld hennar, þarfnast þess ekki að hún öðhst noklcuð af því sem hún velur, því það breytir engu um farsældina. Markmið ogfarsœld HeUenísku heimspekiskólarnir byggðu siðfræði sína á markhyggju, þeirri hug- mynd að til væri markmið lífsins. Vegna þessa markmiðs og einskis annars væri eða skyldi vera breytt. Samkvæmt stóumönnum er markmiðið „það sem allar athafnir lífsins eiga að vísa til“.36 Hugmyndin að baki markhyggju á rætur sínar að rekja til Platons og Aristótelesar. Markmiðið nefna þeirfarsœld (eða hamingju'. EÚðaipovía). Það voru skiptar skoðanir á innviðum þessa markmiðs. Epikúros færði rök fyrir þeirri hugmynd að markmiðið væri ánægja. Til þess notaði hann vöggurök. Stóumenn voru á allt annarri skoðun, eins og ljóst má vera. Þeir töldu að náttúran gæfi markmiðið og að því bæri okkur að stefna í samræmi við náttúru okkar. Þeir skilgreindu markmiðið svo: „að lifa í samræmi við náttúruna11.37 Þessi náttúra er náttúra heimsins. Við leitum samhljóms með henni og sam- kvæmni í breytni okkar í samræmi við okkar eigin mannlegu náttúru sem er hluti af þessari náttúru heimsins. Stóumenn gera grein fyrir frumhvötum mannsins, eignun og skynsamlegu vali þeirra hluta sem eru í samræmi við náttúruna sjálfs valsins vegna beinlínis til þess að útskýra hugmynd sína um markmið. Þegar þeir hafa útskýrt hugmynd sína um hið góða líf á þennan hátt setja þeir fram aðra greinargerð sem er ætlað að sýna að þetta góða líf sé líf dyggðarinnar, þar sem rangnefnd ytri gæði spila enga rullu, skipta engu máli fyrir farsæld manneskjunn- ar. Eitt af því sem fylgir kenningu þeirra er sú hugmynd, sem fyrst má finna hjá Sókratesi, að dyggð sé nægjanlegt skilyrði farsældar. Hér skilur á milli stóumanna og Aristótelesar sem hafnar því alfarið að manneskja geti verið farsæl án þessara 35 Díogcncs Lacrtíos 7.94. 36 Stobajos 2.46. 37 Díogenes Laertíos 8.87.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.