Hugur - 01.06.2011, Side 74

Hugur - 01.06.2011, Side 74
72 Svavar Hrafn Svavarsson Lög náttúrunnar Skipan náttúrunnar, sem dyggðug manneskja fylgir, er iðulega skilin sem lög, náttúrulög. Stóuspekin er að líkindum fyrsta heimspekikenningin sem setur fram hugmyndina um náttúrulög.44 Með því að nefna skipan náttúrunnar lög leggja þeir áherslu á að náttúran fyrirskipi breytni okkar, segi okkur hvað við eigum að gera, nefnilega að velja þá hluti sem eru í samræmi við náttúruna og halda þeim aðgreindum frá því sem er raunverulega gott, sem er skynsamlega valið sjálft. En þótt þeir geti útskýrt á almennan hátt viðeigandi breytni (eða skyldur) og mistök- in sem felast í kenndum oldcar, og þannig sett fram almennar reglur um hvað skuli gera, forðast þeir að orða sértækar reglur. Þótt sumt sé ljóslega í samræmi við náttúruna, er annað óljóst. Zenon var frægur fyrir víðsýni, rómverskir stóumenn heldur þröngsýnni. Enn fremur er erfitt að alhæfa um val þeirra hluta sem eru í samræmi við náttúruna, því valið veltur á aðstæðum, sem geta krafist fórna þess- ara hluta, hvort heldur heilbrigðis eða lífsins sjálfs. En sú regla að fylga lögum náttúrunnar er alger. Náttúra stóumanna æpir á manneskjuna með þeim hætti sem heyrist varla ef sú tvíhyggja efnis og anda sem drepið var á við upphaf þessarar greinar er samþyklct. Náttúruhyggja þeirra er annars konar en tíðkast í nútímanum. Það er annað mál hversu hlaðin siðferði þessi náttúra sé frá upphafi og hvaða ályktanir megi draga af hleðslunni. Samkvæmt stóumönnum leitar manneskjan þeirra hluta sem eru í samræmi við náttúruna en hafnar þeim sem eru það ekki. En hvernig ber mann- eskjan kennsl á þá hluti sem eru í samræmi við náttúruna svo hún geti valið rétt?45 Stóísk siðfræði þarf að færa rök fyrir því hvort þessir hlutir stuðla að velgengni hennar eða ekki, eða séu jafnvel hlutlausir. Eftir því sem viðföng valsins verða sértækari virðist vera töluverður munur á viðhorfum stóumanna til þess hvað telj- ist náttúrulegt, hvað ónáttúrulegt og hvað hlutlaust, allt eftir því hvaða skeiði og samfélagi þeir tilheyra. Zenon og Krýsippos voru að sögn ekki sannfærðir um að til dæmis sifjaspell væri ekki í samræmi við náttúruna. Stóísk siðfræði innan Rómaveldis tekur hins vegar mjög mið af viðteknu siðferði. Hvort þessi breyti- leiki skaði kenninguna er umdeilanlegt. Eftir stendur sú kennisetning stóumanna að manneskjan sé gædd hvötum sem allar séu til hins góða komi ekkert í veg fyrir það: náttúran leiðir manneskjuna til dyggðarinnar. Þessi kennisetning er bjartsýn, enda krefst hún útskýringar á því hvers vegna að mati stóumannanna sjálfra fæstir (ef nokkur) verða dyggðugir. Utskýring sem vísar aðeins til spillingar og mistaka virðist duga skammt og reyndar benda til að eitthvað annað í náttúru mannsins leiði eklci til góðs. 44 Sjá Striker 1996^: 209-220. 45 Annas (1993:137-39) fjallar um möguleg hringrök: siðfræðin vísar til náttúrunnar til að útskýra hvernig skuli breyta, en náttúran sjálf er fyrirfram gædd boðkrafti sem er að einhverju leyti sið- ferðilegur. Sjá einnig Striker 19963: 255-56.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.