Hugur - 01.06.2011, Page 78
76
Róbert Jack
sambærilegum niðurstöðum um að manneskjan þroskist í sæmilega skilgreinan-
legum stigum. Hér er hvorki ætlunin að rekja þessar niðurstöður efnislega, þ.e.
skiptingu stiga o.s.frv., né bera þær saman við það sem Platon hefur að segja.3 Eg
tel þó að minnsta kosti mikinn formlegan skyldleika með slíkum kenningum og
hugmynd Platons.4
Hvernig má þá greina slíkt stigskipt þroskamódel í „ástarstiganum"? Ég hyggst
gera það í þremur þrepum. Fyrst set ég fram þau meginskilyrði sem ég tel að
þroskamódel þurfi að uppfylla. Næst endursegi ég „ástarstigann" stuttlega. Og
loks sýni ég hvernig finna má öll þessi skilyrði þroskamódels í „ástarstiganum“.
I. Fimm skilyrði stigskiptsproskamódels
Nútímaleg stigsldpt þroskamódel eru breytileg hvað varðar viðfangsefni, fjölda
og skilgreiningu stiga, og dýpt þroskans.5 Ekkert af þessu er umfjöllunarefni mitt
hér heldur það sem ég tel að hljóti að einkenna öll stigskipt þroskamódel. Ég hef
fundið fimm slík sldlyrði.6 Ég tel að þessi skilyrði séu öll nauðsynleg fyrir stig-
skipt þroskamódel og að þau fari að minnsta kosti mjög nærri því að vera nægileg
sldlyrði.
1. skilyrði: Manneskjan hefur hvöt til að öðlast eitthvað betra eða verða betri.
Hér er um að ræða grunnhvöt en það er forsenda þroska að maðurinn hafi vilja
sem beinist að einhverju sem hann hefur ekki þegar öðlast. I þroskamódeli get-
ur slík grunnhvöt reyndar verið illskilgreinanleg vegna þess að viðfang hennar
breytist stöðugt eftir því sem manneskjunni miðar áfram. Birtingarmynd grunn-
hvatarinnar er til að mynda önnur hjá leikskólabarni en hjá venjulegum mennta-
skólanema.
2. ski/yrði: Skilgreind stig erufteiri en eitt.
Það er augljóst að stigskipt þroskamódel hefur fleiri en eitt stig. I tilfelli „ástar-
stigans" er þó mildlvægt að beina athyglinni að skilgreiningu stiganna þar sem
ósamkomulag er meðal fræðimanna um afmörkun þeirra og fjölda.
j. skilyrði: Stigin mynda stigve/di.
Það að þroskast er skilið sem breyting frá einhverju verra til einhvers betra. Þann-
ig er stigið sem kemur á eftir í einhverjum skilningi meira virði en stigin á undan.
Til dæmis er stærðfræðifærni sex ára barns minna virði en stærðfræðileg færni
venjulegs háskólanema.
3 Egan hefur borið þroskakenningu Platons saman við hugmyndir Piagets, án þess þó að nefna
Samdrykkjuna sem hér er til umfjöllunar. Sjá Egan 1983.
4 Hér má spyrja hvernig þroska Platon fjalli um í „ástarstiganum". Ekki er ætlunin að dvelja við þá
spurningu, enda má ætla að hún krefjist nokkurrar rannsóknar þar sem Platon virðist ekki hafa
haft fágaða kenningu um ólíkar þroskalínur og virðist raunar hræra ýmsu saman. Af lýsingu Plat-
ons hér og heimspeki hans almennt má þó álykta að hann fjalli fýrst og fremst um þroskalínur
vitsmunaþroska og siðferðisþroska.
5 Sjá Wilber 2006: myndir 2.4 og 2.5.
6 Ég hef stuðst mjög við það sem Wilber segir um þróunarferli. Sjá Wilber 2000: 69-79,365-366.