Hugur - 01.06.2011, Side 86

Hugur - 01.06.2011, Side 86
84 Róbert Jack greinarmun í Ríkinu (VH.525b-c). Eins og við sáum þegar fengist var við þriðja skilyrði þroskamódelsins er ekki hægt að gera ráð fyrir sértækri hugsun fyrr en á vísindastiginu. Best er því að líta þannig á að á fyrsta stiginu sé fengist við einfalda stærðfræði sem leggur grunn að hinni flóknari sértækari stærðfræði sem stunduð er á þriðja stiginu. Þegar Moravcsik hyggst hafna því að fyrsta stigið geti verið nauðsynlegt fyrir það þriðja og tekur dæmi af stærðfræðinni, gerir hann ekki ráð fyrir að neitt stærðfræðilegt eigi sér stað á fyrsta stiginu. Við sjáum hins vegar að það er eðlilegra að líta svo á að grunnur sé lagður að stærðfræðilegri hugsun strax þar og þannig er fyrsta stigið, að minnsta kosti í tilfelli stærðfræðinnar, forsenda hins þriðja. Þótt gagnrýni Moravcsiks hafi þannig verið svarað vekur þessi lausn upp nýja aðfinnslu. Eins og þroskanum hefur verið lýst er fengist við ákveðið viðfang á hverju þroskastigi. Nú kemur hins vegar í ljós að vísindi sem virtust einskorðast við þriðja stigið, þ.e. stærðfræði, eru einnig viðfangsefni á fyrsta stigi og væntan- lega líka öðru stigi, þótt ekki verði íjallað um það hér. Hvernig má gera grein fyrir því að vísindalega iðkun er einnig að finna á neðri þroskastigum? Til að svara því skulum við h'ta nánar á samhengið framar í ræðu Díótímu þar sem talað er um að manneskjan sé stöðugt að breytast. Þar nefnir Platon þrjú svið mannsins sem eru breytingum undirorpin, þ.e. líkamann, sálina og þekkingar- greinarnar, og svo hið guðlega svið sem er „ætíð fyllilega samt við sig“ (2o8a). Þessi fjögur svið samsvara viðfangsefnum þroskastiganna fjögurra í „ástarstig- anum“. Platon notar ekki orðalagið „svið mannsins" en ekki verður annað séð en að hann eigi við eitthvað slíkt. Ef maðurinn á sér slík svið er ekki annað að sjá en þau séu ávaljt öll til staðar, því svo að dæmi sé tekið héldi maður því varla fram að einstaklingur á fyrsta þroskastiginu hefði bara líkama en enga sál og enga þekk- ingu. Vandinn verður þá að sýna hvernig þessi ijögur svið sem ávallt eru til staðar samsvara ijórum þroskastigum sem nauðsynlega koma fram í ákveðinni röð. Hér er gagnlegt að sameina tvennt. Annars vegar það að hvert þroskastig hafi ákveðið viðfang, til dæmis líkama eða vísindagrein eins og stærðfræði, og hins vegar hugmyndina um víðara sjónarhorn á hverju þroskastigi (samanber umþöll- un um þriðja skilyrði þroskamódelsins). Eins og áður kom fram er ekki óeðlilegt að fólk sé upptekið af ákveðnum hlutum á ákveðnu þroskastigi. Það getur þó ekki þýtt að ekkert annað komi við sögu á sama tíma. Hugmynd Platons um svið mannsins gefur einmitt til kynna að einstaklingur á fyrsta þroskastiginu hafi sál og einhvers konar þekkingu, eða að minnsta kosti skoðun, þótt hann sé fyrst og fremst áhugasamur um líkama. Eðlilegt er þá að líta svo á að viðfangið sem skilgreinir tiltekið þroskastig „ástarstigans“ tilgreini að hverju áhugi og athygli einstaklings beindist öðru fremur, án þess að því sé haldið fram að viðföng hinna þroskastiganna komi ekkert við sögu. Á sama tíma er mikilvægt að halda því til haga að hverju þroskastigi fylgir ákveðið sjónarhorn eða hugsun sem hefur náð ákveðnum þroska, sem skilgreinir hvernig hugsað er um þau viðföng sem koma við sögu. Þannig má segja í ljósi dæmisins um stærðfræðina að vísindagreinarnar komi í einhverjum skilningi við sögu á lægri þroskastigum, en þar sé ekki feng- ist við þær með þeim skipulega og þroskaða hætti sem gert er á þriðja stiginu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.