Hugur - 01.06.2011, Page 115

Hugur - 01.06.2011, Page 115
Hvað erfrumspeki? 113 Jafn örugglega og við skiljum aldrei heild þess sem er í sjálfri sér, svo víst er að við erum stödd mitt á meðal þess sem er afhjúpað með einhverjum hætti í heild. Þegar allt kemur til alls er eðlismunur á því að skilja heild þess sem er í sjálfri sér, og því að vera staddur mitt á meðal þess sem er í heild. Hið fyrra er gersamlega ómögulegt. Hið síðara er sífellt að gerast í tilveru okkar. Vissulega lítur út fyrir að einmitt í okkar daglega amstri séum við föst við þetta eða hitt, að við fynum okk- ur í hinu eða þessu sviði þess sem er. Svo sundurslitinn sem hversdagurinn kann að koma fyrir sjónir, þá heldur hann þó ávallt því sem er, þótt með þokukenndum hætti sé, í einingu „heildarinnar". Jafnvel þá og einmitt þá þegar við erum ekki sérstaklega að fást við hlutina og sjálf okkur, kemur yfir okkur þessi „heild“, t.d. í hinum eiginlegu leiðindum. Þau eru enn víðs fjarri þegar okkur leiðist aðeins þetta eða hitt, bók eða leiksýning, athöfn eða iðjuleysi. Þau brjótast fram þegar „manni leiðist". Djúp leiðindi, sveimandi fram og aftur í hyldýpi tilverunnar eins og þögul þoka, sveipar alla hluti, manneskjur og mann sjálfan með þeim, ein- kennilegu hluttekningarleysi. Þessi leiðindi opinbera það sem er í heild. Annar möguleiki á slíkri opinberun er fólginn í gleði yfir návist tilveru - ekki persónunnar einnar - manneskju sem við elskum. Slík stemning, þar sem manni „er“ svo og svo innanbrjósts, lætur okkur - gegn- umstemmd - finnast við vera stödd mitt á meðal þess sem er í heild. Stemn- ingin afhjúpar ekki aðeins, með ólíkum hætti, það sem er í heild, heldur er þessi afhjúpun jafnframt - ijarri því að vera aðeins eitthvert tilviljunarkennt atvik - grundvallarviðburður til-veru okkar. Það sem við vanalega köllum „tilfinningar" er hvorki hvikull fylgifiskur né orsakahvöt hugar- og viljaathafna okkar, né heldur aðeins eitthvert ástand sem er fyrir hendi og við sættum okkur við með einhverjum hætti. En einmitt þegar stemningarnar leiða okkur á þennan hátt fram fyrir það sem er í heild, byrgja þær okkur sýn á neindina sem við erum að leita að. Við munum nú enn síður vera þeirrar skoðunar að neitun þess sem er í heild, sem opinberast í stemningunni, stilli okkur upp andspænis neindinni. Slíkt getur aðeins gerst á jafnupprunalegan hátt í stemningu sem opinberunareðli sínu samkvæmt afhjúpar neindina. Á slík stemning sér stað í tilveru mannsins, þar sem hann er færður fram fyrir neindina sjálfa? Þessi atburður er mögulegur og jafnframt raunverulegur - þótt fátíður sé - að- eins fáein augnablik í grunnstemningu angistarinnar. Með þessari angist eigum við ekki við hinn fremur algenga kvíða, sem í raun á meira skylt með venjulegum ótta og allt of auðveldlega skýtur upp kollinum. Angistin er í grundvallaratriðum frábrugðin ótta. Við óttumst alltaf eitthvað tiltekið sem ógnar okkur á einhvern tiltekinn hátt. Ottinn við... óttast ávallt einnig um eitthvað tiltekið. Vegna þess að óttanum er eiginlegt að takmarkast við þetta „við“ og „um“ situr hinn óttaslegni og kvíðafulli fastur í þeim aðstæðum sem hann er staddur í. I viðleitni sinni til þess að forða sér frá því - þessu tiltekna - verður hann óöruggur með tilliti til einhvers annars, þ.e. í heild „ringlaður".
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.