Hugur - 01.06.2011, Side 123

Hugur - 01.06.2011, Side 123
HuGUR | 23. ÁR, 2011 | S. 121-131 Ólafur Páll Jónsson Hugsandi manneskjur 1. Gagnrýnin hugsun og hugsandi manneskjur Heimspekingum er gjarnt að persónugera ólíklegustu hluti og fyrirbæri. „Réttlæti krefst sanngirni," segir einn, eins og réttlætið geti staðið upp og krafist einhvers. „Lög boða og banna,“ segir annar, eins og lögin hafi rödd. „Gagnrýnin hugsun samþykkir ekki hvað sem er,“ segir sá þriðji, eins og það standi uppá hugsunina að samþykkja eða hafna einhverju frekar en manneskjuna sem kannski hugsar - og kannski ekki. Stundum er gagnlegt að persónugera fyrirbæri með þessum hætti því þannig er athyglinni beint að fyrirbærinu sem slíku, reynt að sjá það í ákveðn- um tærleika og án þess að tilfallandi fylgifiskar þess úr raunheimi þvæhst fyrir. En þótt heimspekingum sé persónugerving af þessu tagi töm þá hnjóta ýmsir aðrir um hana og vilja jafnvel tala um atvinnusjúkdóm meðal heimspekinga. Megin- einkenni sjúkdómsins er þá að þeim, sem haldinn er honum, líður best í félags- skap hreinna hugtaka en horfir ekki til þess sem einkennir hf manneskja sem lifa á mjög efnislegri og óreiðukenndri jörð. Samkvæmt þessari sjúkdómsgreiningu er Platon líklega alræmdasti sjúklingurinn - bæði frægur, illa haldinn og stórtækur smitberi.1 Kenning hans um að innsta eðli veruleikans séu frummyndir - tærir og ómengaðir hlutir, hrein hugtök sem hlutlægur veruleiki - er kenning um að allt sem orð á festir megi þekkja af fullkomnum skýrleika en að hin óreiðukennda jörð sé einungis ófullkomin eftirmynd þessara frummynda og ekki tækt viðfang þekkingar - á henni verði einungis höfð skoðun.2 Frummyndakenning Platons var draumur um að hægt væri að hugsa skýrt um heiminn vegna þess að í eðli sínu væri hann fullkomlega skýr. Nemandi Platons, Aristóteles, hafnaði þessari hugmynd. Hann sagði að okkur væri best að gefa upp á bátinn drauminn um heim hinna hreinu, hlutlægu hugtaka og horfast í augu 1 Annar frægur sjúldingur er Descartes, en í Hugleiðingum um frumspeki (Descartes 2001) lýsir hann því hvernig hann hyggst leggja traustan grunn að heimspeki sinni með því að byggja ein- ungis á hugmyndum sem séu skýrar og greinilegar. 2 Afstaða Platons er reyndar dálítið breytileg eftir því hvaða samræða er lesin. Sú afstaða sem hér er lýst birtist með skýrum hætti í Ríkijiu, 479 o.áfr. (Platon 1991) en í samræðunni Þeœtctosi virðist Platon gera ráð fyrir að hinn efnislegi veruleiki geti verið viðfang þekkingar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.