Hugur - 01.06.2011, Side 131

Hugur - 01.06.2011, Side 131
Hugsandi manneskjur 129 5. Verkfœrin og beitingpeirra I upphafi þessarar greinar sagðist ég ætla að feta aristótelíska slóð frekar en plat- onska; ég ætlaði að huga að möguleikum mannsins til að vera hugsandi vera í óreiðukenndum heimi. En núna kann að virðast sem svo að þessi leiðangur hafi borið mig að platonskum áfangastað: Til að hugsa skýrt í heimi sem er fullur af óreiðu þarf hrein hugtök, t.d. hugtakið gagnrýnin hugsun. Málið er samt ekki svo einfalt, því þótt Aristóteles hafi sannarlega verið lærisveinn kennara síns, Plat- ons, í því að leggja ríka áherslu á skýrar skilgreiningar og nákvæm hugtök - eins og rökfræðin er skýrt dæmi um - þá leit hann ævinlega jarðneskum augum á viðfangsefni tilverunnar, hvort heldur í vísindum, heimspeki eða hversdagslífi. Á þessum nótum gagnrýndi Aristóteles einmitt Platon og fýlgismenn hans fyrir að beita hinum hreinu hugtökum án viðeigandi næmni fyrir því viðfangsefni sem fengist var við; þeir hefðu tilhneigingu til að leysa vandamál með of almennum hætti og beita ekki hugtökum og lögmálum sem væru viðfangsefninu eiginleg. I ritinu Um tilurð dýra (Peri zoon geneseos), bók II, gerir Aristóteles greinarmun annars vegar á formlegum eða rökfræðilegum efnistökum (logiken) og hins vegar efnistökum sem byggja á lögmálum sem eru viðfangsefninu eiginleg. Dæmið sem hann tekur varðar það hvers vegna múldýr geta ekki átt afkæmi. Aristóteles setur fram tvennskonar svar við þessari spurningu. Annað svarið tekur til þess hvernig hestar og asnar æxlast en hitt svarið, sem Aristóteles kallar „abstrakt sönnun“, byggir á almennum lögmálum um æxlun dýra. Um seinna svarið segir hann svo: Þessi kenning er of almenn og innantóm. Því allar kenningar sem ekld byggja á viðeigandi lögmálum eru tómar; þær virðast einungis tengast staðreyndum en gera það ekki í raun. Eins og röksemdir í flatarmálsfræði verða að byggja á lögmálum flatarmálsfræðinnar, þannig er öðrum hátt- að. Það sem er innantómt kann að virðast eitthvað, en er í raun ekkert. (74838-12) I upphafi þessarar greinar sagði ég að Aristóteles hefði trúað því að í þess- um óreiðukennda heimi sem við byggjum mætti finna margvíslega reglu og því mætti, þrátt fyrir allt, hugsa skýrt um heiminn. Hin skýra hugsun um heiminn byggist á tvennskonar reglu. Annars vegar á því að það sé regla á hugsun manns, á því að maður búi yfir góðu hugferði. Hins vegar á reglu hlutanna; á því að heimurinn er, óháð hugsun manns, að verulegu leyti reglulegur. Hið fyrra má að einhverju leyti tileinka sér með því að læra rökfræði, aðferðafræði vísinda og skyldar greinar - það sem við finnum í Verkfœrum Aristótelesar. Næmni fyrir hinu síðara verður ekki ræktað nema með því gerast þátttakandi í heiminum, bæði sem skynjandi og sem gerandi - það viðfangsefni fjallar Aristóteles m.a. um í Siðfrœði Níkomakkosar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.