Hugur - 01.06.2011, Page 139

Hugur - 01.06.2011, Page 139
Ritdómar r37 sjaldnast lagður til grundvallar þegar kemur að umræðu og ákvarðanatöku um náttúruvernd og nýtingu. Fagurfræðileg gildi hafa jafnan verið tahn of huglæg og afstæð til þess að nokkurt vit sé í að reyna að leggja mat á þau. I kaflanum „Vald og verðmæti“ íjallar Olafur um þá mæfl- kvarða sem vestrænar þjóðir eru vanar að miða við þegar talað er um framfarir: Þeir mælikvarðar sem lagðir eru á framfarir eru gjarnar tæknilegir: fram- farir í lagningu akvega eru mældar með tommustokk og gráðuboga, meiri hag- vöxtur er gjarnar hafður til marks um bætt lífskjör og meiri neysla er höfð til marks um betra flf. En slíkir mælikvarð- ar eru blindir á ýmis gildi sem liggja mannlegri tilveru til grundvallar og ýmsar forsendur sem náttúrlegt líf manna byggist á (65). Fagurfræðileg gildi eru dæmi um slík gildi sem hefðbundnir mælikvarðar eru blindir á. Slík gildi er ekki hægt að mæla með gráðuboga eða reikna út með form- úlum - til þess að draga þessi gildi fram í dagsljósið er þörf á að huga að reynslu okkar af náttúrunni - reynslu eins og þeirri sem Ólafur Páll lýsir í tveimur síð- ustu köflum bókarinnar; reynslu eins og þeirri sem Páll Skúlason lýsir í Hugleið- ingum við Oskju. Til þess að slík reynsla og þau gildi sem við hana eru tengd fái að eiga þátt í mati á verðmætum náttúrunnar þarf að brjóta niður þá múra sem hafa verið byggðir utan um hefðbundna mælikvarða og verðmætamat. Allt það sem hægt er að mæla á „hlutlægan“ hátt og meta til fjár telst til gildrar þekkingar á því hvað telst verðmætt í náttúrunni, en það sem ekki er hægt að mæla og setja upp í graf telst ekki til gildrar þekkingar. Ölafur nefnir hvern- ig málflutningur náttúruverndarsinna hefur verið dæmdur sem ómarktæk til- finningarök - málflutningur sem byggir á fagurfræðilegu gildi náttúrunnar og til- vistargildi hennar (því gildi sem hún hefur óháð áhrifum hennar á velferð og hags- muni manna) er sagður vera ómarktækur vegna þess að hann vísar til gilda sem ekki er hægt að mæla á vísindalegan hátt en eru ekki síður mikilvæg þegar kemur að lífsgæðum okkar og velferð. Það að ekki sé mark takandi á tilfinningarökum telur Olafur vera rökleysu: Góð rök fyrir tiltekinni niðurstöðu eru þau rök sem styðja niðurstöðuna. Að tveir einstaklingar elski hvor annan, geta verið góð rök fyrir því að þeir búi saman. Að tilteknum manni líði vel í sumarbústaðnum sínum, geta verið góð rök fyrir því að hann dvelji sem lengst í bústaðnum. Munurinn á góðum rökum og slæmum ræðst ekki af því hvort rök- in vísa til tilfinninga eða ekki. Það eru til góð tilfinningarök og slæm tilfinn- ingarök, rétt eins og það eru til góð og slæm rök sem ekki vísa til tilfinninga. Að afgreiða eitthvað sem tilfinningarök er yfirleitt til marks um grunnhygli frekar en málefnaleg tök. Menn blása á eitthvað sem tilfinningarök vegna þess að þeir veigra sér við því að takast á við rökin (13). Staðreyndin er sú að það sem hefur verið afgreitt sem ómerk tilfinningarök er ein- mitt það sem virðist skipta almenning á Islandi mesm máh. Þetta kemur m.a. fram í athugasemdum Faghóps I í skýrslu um gerð Rammaáætlunar um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma.5 Ástæða þessarar veiku stöðu fagur- fræðilegra gilda er að þau eru talin of huglæg og afstæð, þau byggja jú á hug- lægri reynslu og því virðist eðilegt að telja að það sé engin leið til þess að komast að hlutlægri niðurstöðu um fagurfræðilegt gildi náttúru. En á sama tíma og þessu er haldið fram - að fagurfræðileg gildi sé ekki hægt að meta á hlutlægan hátt - eru flestir sam- mála um að ákveðnir staðir, til dæmis Gullfoss og Geysir, séu þannig gerðir að öllum finnist þeir fallegir. Þetta er helsta
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.