Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 97

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 97
„annars vegar að stuðla að heill almennings og hins vegar að þjóna hags- munum skjólstæðinga sinna. Sé allt með felldu fer þetta tvennt saman, því að það er hlutverk hverrar starfsgreinar að styrkja almannahag með því að gagnast skjólstæðingum sínum sérstaklega. í ljósi þessa blasir við að skylda [fjölmiðlamanna] er fyrst og fremst við almenning.“ (1991:52-3. Letur- breyting í frumtexta). í Morgunblaðinu 14. október 1992 segir t.a.m. í Víkverja um umhverfisþætti sem sýndir voru á Stöð 2: „Vissulega lofar [fyrsti þátturinn] góðu og var . . . samvinna og samspil, til fyrirmyndar, svo og kvikmyndatakan, góður texti og vel valin tónlist. Það verður spennandi að fylgjast með þessari þáttaröð, sem fjallar um efni sem œtti að vera okkur [íslendingum] öllum ofarlega íhuga — að skila landinu okkar í hendur næstu kynslóða, jafngóðu eða betra en það var þegar við tókum við því.“ (leturbreyt- ing mín). Ef marka má þessa tilvitnun þá lýsir hún óskum um hugarástand sem íslendingar ættu að hafa, en hafa ekki. Að sama skapi mætti ræða um fjölmarga viðtalsþætti í sjónvarpi sem gerðir hafa verið í gegnum árin s.s. eins og Maður er nefndur sem sýndur var í mörg ár í Ríkissjónvarpinu. í þessum þáttum voru dregnir fram á sjónarsviðið „litríkir“ einstaklingar sem höfðu ýmislegt „fram að færa“ og voru „þjóðlegir" í alla staði. „Hversdags- maðurinn“ og líf hans átti ekki upp á pallborðið í þeim þáttum og má í framhaldi af því spyrja hvort fjölmiðlamenn hafi og séu í dag að uppfylla grundvallar skyldur sínar við skjólstæðinga sína (sem er að upplýsa almenn- ing um raunveruleikann) með því að framleiða efni sem stendur daglegri reynslu Islendinga fjarri? í siðferðilegum efnum reynir íslenski fjölmiðlamaðurinn að vera réttlátur, óvilhallur, og eins og segir í Siðareglum blaðamanna, forðast allt „sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu.“ (Sigurður Kristinsson 1991:183). Ein leið til þess að gegnaþessari skyldu er að „standa fyrir utan“ líf fólks eða atburði, vera ekki hluti af þeim. Ef hægt er að tala um staðlaða ímynd fjölmiðlamanns þá er hún eitthvað á þessa leið: Hann er harður í horn að taka, gagnorður, vinnur hratt, tekur sér kennivald og áhættur. Hann er jafnframt réttlátur og nákvæmur. (Goodwin 1976:84) Samúð reynist ekki hluti af þessari stöðluðu ímynd sem dregin var upp. Hefur því raunar verið haldið fram að samúð sé orð sem er andstætt hefðum í fjölmiðlun. Fjölmiðlamaðurinn á að vera hlutlaus áhorfandi, en ekki þátttakandi í lífi fólks eða sögulegum atburðum. (Goodwin 1976:83) Það sem hér um ræðir er baráttan milli samúðar og þátttöku annars vegar og hlutleysis hins vegar. Dæmi um þessa togstreitu, milli þess að vera hlutlægur eða hlutdrægur, eru myndir Peter Arnetts úr Vietnam-stríðinu. Peter Arnett tók myndir af Buddha-múnki árið 1963, sem framdi sjálfsmorð með því að hella yfir sig bensíni og kveikja í sér. Peter sagði frá því 1971 um TMM 1995:4 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.