Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 109

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 109
Kristján B. Jónasson Ár stöðugleikans Um nokkrar skáldsögur sem komu út á árinu 1994 Uppgrip og stöðugleiki „Þessa dagana voru engin sérstök uppgrip, en allt tórði einhvern veginn,“ segir gullsmiðurinn Vífill, sögumaður skáldsögunnar Ævinlega eftir Guð- berg Bergsson (bls. 98), um þessi síðustu ár aldarinnar. „Mig grunar meira að segja“, bætir hann við, „að ástkæra orðið uppgrip sé að hverfa smám saman úr málinu og innan skamms svipi því til sögulegra fornleifa" (98). Enda væri það hálf undarlegt að ætla sér að lýsa samtímanum með því að segja að þar væri nóg um uppgrip. Uppgripin tilheyra gamalli þjóðfélagsmynd sem einkenndist af óreglulegum vexti og þenslu en ekki af stöðugleikanum sem er orðinn að leiðarhugtaki í pólitískri og efnahagslegri orðræðu aldar- lokanna. Uppgripin tilheyrðu samfélagi þar sem líkamlegt atgerfí, úthald og útsjónarsemi áttu að fleyta alþýðufólki áfram til betra lífs. Uppgripin fólu í sér að hinn ómenntaði en útsjónarsami alþýðumaður gat alltaf vonast til að uppfylla efnislegar óskir sínar, væri lukkan honum hagstæð.1 Og ef það heppnaðist, þá var hann í einni sviphending orðinn að auðugum manni, að stoltum eiganda íbúðar og bíls og sjónvarps og síma og allt þetta hlotnaðist honum ekki vegna þess að hann sýndi af sér fjárhagslega þjóðhollustu og lét bankaráðgjafa skipuleggja útgjöld heimilisins tuttugu ár fram í tímann, heldur vegna þess að hann dreif sig í hlutina. Hann einhenti sér í starf sitt og greip upp auð og auðnu í einum rykk. En ráðandi hugmyndir um vinnu, nú við lok árþúsundsins, eru talsvert á skjön við þessa uppgripahugsun. Á tímum stöðugleikans hefur launavinna í sinni hefðbundnu gerð fallið í skuggann af þjónustu- og söluvinnu sem gerir allt aðrar og strangari kröfur til vinnuaflsins en áður. Jafnvel þótt reynt sé á góðum stundum að halda líftórunni í gömlu sögninni um mikilvægi þess að hálfmenntuð alþýðan státi af afköstum og dugnaði, eru vinnuhetjur samtímans ekki togarasjómenn, byggingarverkamenn eða fiskvinnslufólk heldur sérfræðingar á sviði markaðar og þjónustu. Vinna þessa fólks er ekki unnin af hendi í heimi líkamlegs erfiðs og þungra véla heldur á upplýsinga- netum og viðskiptafundum, og hún einkennist ekki af sveiflum og óstöðug- TMM 1995:4 107
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.