Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 122

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 122
þýðir að saga mannanna stöðvast en hún þýðir um leið að ný vídd, utan hinnar hefðbundnu tvíhyggjusögu, opnast. I Augu þín sáu mig eru endalok hins vestræna hugsanagangs í raun sett á svið. Þau eru sett fram með öllum sínum þunga og með öllum sínum dramatísku afleiðingum fýrir söguskilning og hugmyndafræði Vesturlanda. En um leið er annars konar víddum sem eru utan þessarar tvíhyggju lýst. Englarnir og demónarnir fljúga burt inn í nýja veröld sem enn er óorðuð og sem enn er ekki annað en hugmynd um veruleika. Og þegar allar klukkur í Kukenstadt stöðvast heyrist aðeins rödd Gólemsins. Hann segir frá þeim dögum að hann varð til úr leir og vessum þess gamla en fæddist til hins nýja. Tungumál skáldsögunnar, magnaðar og dularfullar myndir hennar, taka lesandann með sér inn í nýtt rými. Því í raun heldur Sjón fast í hina pólitísku hugsun súrrealismans. Þá hugmynd að nota hugarflugið til að brjóta sér leið inn í samfélagið og umbylta því með ímyndunaraflinu. Þessi pólitíski grunn- þráður er þó aldrei uppáþrengjandi. Hann er ekki settur ff am sem táknheim- ur sem samstundis raðar öllum boðum og merkjum í risavaxnar merking- arblokkir. Textinn er sífellt á skriði. Hann er margrása boðtæki sem sífellt er að snúa upp á þá vitneskju sem hann styðst við og veita henni í nýja farvegi. Sá sögulegi, táknlegi og guðfræðilegi heimur sem hann styðst við er ekki bara einhver hallærisleg „vísun“, eins og gagnrýnendurnir segja þegar þeir sjá eitthvað sem þeim kemur kunnuglega fyrir sjónir í textanum en hafa ekki hugmynd um hvað er. Þessi textaheimur er þéttofinn inn í frásögn sem býr til nýtt samhengi úr hugmyndunum og virkjar þær á nýjan hátt. Textinn verður að pólitísku tæki sem grípur inn í samtíðina án þess að stafa boðskap sinn ofan í hana. Það er allt gert með léttleika í þessari sögu og eins og Nietzsche sagði, þá eru erfiðar og þungar hugsanir ætíð best settar fram með léttleika og kátínu. Þessi léttleiki gerir ekki grín að samtíðinni til þess eins að staðfesta gildi hennar. Hann gagnrýnir hana ekki til þess að sýna að það er engin leið út úr henni. Hann er ígrundaður og ísmeygilegur. Á ári stöðug- leikans er texti Sjón það óstöðuga sem siglir inn í framtíðina. Aftanmálsgreinar 1 Uppgripahugsunin er nátengd viðhorfum íslensks alþýðufólks til vinnu. Sjá grein Finns Magnússonar um tengsl hugmyndaffæði vinnunnar og sjálfsmyndar al- þýðufólks á fyrri hluta aldarinnar: „Work and the Identity of the Poor: Work Load, Work Discipline, and Self-Respect“. E. Paul Durrenberger og Gísli Pálsson (ritstj.): The Anthropology of Iceland, Iowa City 1989, bls. 140-156. 2 Hér er einkum stuðst við bækur André Gorz: Adieux au Proletariat. París 1980 og Métamorphoses du travail. París 1987. Hugmyndir hans og aðrar afar áhuga- verðar kenningar um skipan vinnu og gildi hennar eru reifaðar í grein Inga 120 TMM 1995:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.