Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Side 161
159
1954
vjð smítSi 3 íbúðarhúsa á árinu, og
eitthvað mun hafa verið um endur-
bætur eldri húsa. Salernismenningin
1 héraðinu á lágu stigi enn þá, þótt
lagazt hafi nokkuð á seinni árum með
tilkomu nýrra húsa. Enn þá eru hér
»rnyndarheimili“, þar sem salerni
fyrirfinnst ekki í neinni mynd.
Reykhóla. Á undanförnum árum
hafa mörg íbúðarhús verið reist. Virð-
ist mér leitazt við að hafa þau með
nitizkusniði og búin nauðsynlegustu
hreinlætistækjum. Enn cru þó víða
algerlega óviðunandi húsakynni. Ráð-
gerðar eru byggingar á 4 bæjum
næsta ár. Þrifnaður er viðast hvar
goður og sums staðar ágætur. En óvið-
Unandi er hann þó, meðan enn finn-
ast lús og kláði. Ræktunarframkvæmd-
nin á vegum landnáms ríkisins er
haldið áfram hér á Reykhól um.
Flateyrar. Reist voru á árinu 3 ný
íbúðarhús í Súgandafirði og lagður
grunnur að þvi fjórða. Einnig byggt
við verzlun Páls Friðbertssonar og
Kaupfélags Súgfirðinga. Nýtt félags-
heimili byggt við það, sem fyrir var.
Allar þessar byggingar eru steinsteypt-
ar- Bruni varð á Bæ, og skemmdist
aðallega útgangur. Vatnsrafstöð komið
UPP í Botni fyrir býlið og reyndist
vel. Útibyrgt nýtt kaupfélagshús, eitt
uýtt ibúðarhús byggt og 4 önnur milc-
endurbætt og stækkuð. Vatnsraf-
stöð reist fyrir Kirkjuból í Korpudal
°g íbúðarhús á Vifilsmýrum.
Bolungarvíkiir. Mikið byggt á árinu.
Kyrjað á nokkrum einbýlishúsum,
stórt verzlunarhús útibyrgt, mikið
geymsluhús fyrir vörur og stokkfisk
J’eist, fiskverkunarhús og á annað
hundrað hjallar fyrir stokkfisk.
ísafí. Húsakynni hin sömu og verið
hafa. Aðeins eitt nýtt hús er nú í
siníðum. Húsnæði vantar þó, en þetta
íramkvæmdaleysi mun vera afleiðing
Pess öryggisleysis i atvinnulifi bæjar-
ins og þar af leiðandi verðlægð fast-
®*gna. Þrifnaður er góður, einkum
innan húss, en útlit sumra húsa er
öttiurlegt.
Súðavíkur. Húsakynni við Djúp eru
yfirleitt góð og hreinlæti viðunanlegt.
Sums staðar er hvort tveggja með
rnyndarbrag. í Súðavik eru húsakynni
víða mjög léleg og hreinlæti eftir því.
í stöku híbýlum er ekkert saíerni af
neinu tagi. Sameiginlegt vatnsból er
ekkert fyrir þorpið, heldur er drykkj-
arvatn tekið á nokkrum stöðum i hlíð-
inni skammt fyrir ofan, og eru fáein
hús um hverja leiðslu. Vatnið er því
misjafnt að gæðum. Sums staðar er
það óhæft til þvotta, hvað þá til
drykkjar, enda sum vatnsbólin líkari
vilpum.
Hólmavíkur. Engar nýbyggingar í-
búðarhúsa á árinu. Þrifnaður ærið
misjafn.
Hvammstanga. Hafin bygging 10
nýrra ibúðarhúsa, þar af 3 á Hvamms-
tanga. Haldið áfram eða lokið að fullu
smíði 9 íbúðarhúsa, sem byrjað hafði
verið á árið áður. 3 eldri hús aukin
og endurbætt. Lokið við eða hafin
bygging um 25 gripa- og annarra úti-
húsa. 2 heimili, tvíbýli, komu sér upp
heimilisvatnsveitu og 3 heimili vatns-
aflsrafstöðvum. Þrifnaður sæmilegur
víðast, en nokkuð misjafn.
Höfða. Engar nýbyggingar. Nokkur
íbúðarhús standa auð.
Sauðárkróks. Á Sauðárkróki var
tekið til notkunar 1 einbýlishús, þó
að ekki væri að fullu frá því gengið.
Auk þess voru teknar til íbúðar 9
stórar ibúðir í nýtízku verzlunarhúsi,
ei einn kaupmaður bæjarins reisti og
opnaði verzlun í seint á árinu. Lokið
var við byggingu nýs pósts- og síma-
húss, sem er reisuleg bygging, og er
i þvi rúmgóð íbúð fyrir póst- og sim-
stjóra, en þau embætti voru sameinuð
á árinu. í sveitinni var mikið byggt,
bæði íbúðarhús, peningshús og hlöð-
ur'.
Ólafsfí. Mældar hafa verið út lóðir
fyrir 5 ný einbýlishús, og var byrjað
á byggingu þriggja.
Dalvikur. Mikið um nýbyggingar um
allt héraðið, að Hrísey undantekinni.
Þrifnaður fer vaxandi.
Akureyrar. Húsakynni yfirleitt orð-
in góð í sveitunum, enda mikið um
nýbyggingar þar á hverju ári, síðan
striðinu lauk. í Akureyrarbæ hefur
einnig verið töluvert um nýbyggingar,
og hafa t. d. á þessu ári verið byggð
19 hús með 29 íbúðum. Enn þá er að
sjálfsögðu allmikið um lélegar íbúðir,
L