Saga


Saga - 2020, Page 177

Saga - 2020, Page 177
fyrir (bls. 150–152). Hann lét af prestsskap árið 1900 en sat áfram í sýslu - nefnd og skipti sér næstu árin af landsmálum, meðal annars í símamálinu sumarið 1905. Hann lést 10. mars 1922 og Sigríður 19. júní sama ár (bls. 309). Kaflaskipan í bókinni tekur mið af búsetu þeirra hjóna og er mestu rými vitaskuld varið í Ólafsvelli og Mosfell. Í læsilegri frásögn blandar séra Þórir saman heimildum af ólíkum toga en heldur þeim ávallt aðgreindum þannig að lesandi á þess kost að leggja eigið mat á gildi upplýsinga. Þar sem síðari sagnir eru nýttar er fyllstu hófsemi gætt og jafnframt passað upp á það að ólíkar lýsingar sömu atburða njóti sín, svo sem þegar ræddar eru deilur séra Stefáns við stórbóndann Jón Jónsson í Skeiðháholti (bls. 97–99). Nokkuð ljóst er að stundum sýnist höfundi lítið mark á textum takandi en segir það þó hvergi fullum fetum. Söguhetjunni er hvergi hlíft og má jafnvel segja að of mikið sé gert úr vínhneigð hans sem greinilega var nokkur en virðist ekki hafa spillt verulega fyrir honum eða fjölskyldunni. Opinber gögn eru þó uppistaðan í þessari bók og þau nýtt á hugvitsam- legan hátt, svo sem um tekjur presta og búskaparbrölt, en séra Stefán var búmaður góður og hafði gaman af húsbyggingum auk þess sem hann var frumkvöðull að skurðgreftri og svínarækt (bls. 126–131). Nokkuð er reyndar um mjög langar beinar tilvitnanir og á köflum líkt og þær hrúgist upp án ýkja mikillar úrvinnslu. Dæmi um það er fjöldi staðar- og tekjuúttekta (bls. 87, 137–138, 194–196) en jafnframt stórmerkileg bréf séra Stefáns varðandi undanþágur vegna ferminga frá árunum 1864–1865 (bls. 89–92) og um harmræn málefni sóknarbarna á Skeiðum fáum árum síðar (bls. 139–142). Hér fyrrum hét þetta „að láta heimildirnar tala“ en betur hefði farið á því að moða úr þessum textum í meginmáli en setja þá sem slíka í viðauka, þar sem nú eru eitt bréf sýslumanns frá 1888 og tvær blaðagreinar séra Stefáns um búnaðarfélög frá 1894 og 1896 (bls. 316–325). Eins hefðu ísmeygilegar og næstum því ískyggilegar greinar hans um vesturferðir árið 1900 mátt fylgja í heilu lagi og viðbrögð við þeim því þar sést vel hvernig umræða fór fram í grasrótinni (bls. 230–241). Séra Stefán eiginlega svívirðir viðmælendur sína og sé annar þeirra „flasfenginn, stöðvunarlaus spjátrungur, besta efni í vafs- ara“ en hinn hlægilegur og fari með hrapalegar meinlokur, mótsagnir og fúkyrði (bls. 233, 236–237). Hann var kærður fyrir meinyrði en slapp við dóm með því að biðjast afsökunar opinberlega, þó aðeins að hluta til. Margt er nýtt í þessari bók og allt raunar nýtilegt fyrir þá sem hafa áhuga á hversdagsleika og lífsbaráttu fólks á nítjándu öld en líka þjóð mál - um — því vissulega var séra Stefán Stephensen af firnagóðum ættum en hann deildi alla tíð kjörum með sóknarbörnum sínum sem leiðtogi og þjónn eins og nú er sagt. Hægt væri að skrifa fjöldann allan af bókum um fólk af hans tagi — konur ekki síður en karla — og verður vonandi eitthvað um það á allra næstu árum. Már Jónsson ritdómar 175 Saga vor 2020.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 22.4.2020 14:44 Page 175
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.