Úrval - 01.12.1945, Blaðsíða 10
TJRVAL>
8
ætti við að búa, en það eitt er
nauðsyn, að spurt sé: Getur
mannkynið verið án slíkrar
stjórnar? Allar aðrar íhuganir
eru annað tveggja minni
háttar eða þær koma ekki mál-
inu við.
Það væri huggun að vita að
mannkynið ætti þess kost að
fá að iifa í nokkrar kynslóð-
ir og þróast eðlilega fram á
við til sameiginlegrar stjórnar.
5. ágúst 1945 virtist satt að
segja, að með sáttmála samein-
uðu þjóðanna væri stigið stórt
spor í þessa átt, þar sem gefið
var tækifæi’i til endurskoðmiar
á honum, sem gæti leitt til raun-
verulegar alheimsstofnmiar á
15—20 árum. En þessari tíma-
ákvörðun hefir nú verið
splundrað. Hvað sem gert verð-
ur, verður að gera skjótt,
nauðsynin rekur fast eft-
ir. Strax og drög hafa verið
gerð að friðarsamningum,
hljóta sameinuðu þjóðirnar að
koma saman aftur til ráðstefnu
um atómöldina og gera þar alls-
herjar yfirlit um stórbreyting-
ar, sem orðið hafa í veröldinni
frá því ráðstefnan var haldin í
San Francisco vorið löngu liðna
1945, og þama verður að gera
allt, sem gera þarf, til að sam-
einuðu þjóðimar fylgist með
kröfum tímans — en kröfur
tímans merkja hér heimsstjórn.
Ef mál mitt virðist fjarstæða,
og aðferðir og lausnir sýnast
út úr seiling fyrir dauðlega
menn, hlýtur svarið að verða,
a.ð dauðlegir menn gátu þó
seilst svo langt, að þeir hrundu
vísindunum og uppfinningum
500 ár fram í tímann á þeim
fimm árrnn, sem þeir gerðu til-
raunir með orku frumeindanna.
Hæfileiki mannanna á þessu
sviði sýnir ekki aðeins, að þeir
geta urxnið kraftaverk, þegar
þeir eru bnúðir til þess, heldur
sýnir það glöggt þörfina á, að
þeir lyfti svipuðum grettistök-
um í stjórnmálum.
Við lausn þessa vandamáls,
þarf maðurinn ekki að óttast
þann ógurlega mismun, sem
samræma verður innan ramma
alheimsstjórnarinnar.
Það er ekki þrátt fyrir þenn-
an mismun, heldur vegna hans,
að mannkynið þarf allt að losa
um sérkreddur sínar og sam-
líkjast.
Ef þessi breytileiki væri ekki
til, ef aðgerðir manna væru
þær sömu og alltaf hægt að
segja þær fyrir, væri maðurinn
jafn laus við styrjaldir og jurta-