Úrval - 01.12.1945, Blaðsíða 114
112
ÚRVAL
myrkursins. Sunnudaginn 20.
maí sýndi mælirinn inn í kofan-
um 59 stiga frost. Þegar ég fór
út um miðnættið til þess að at-
huga norðurljósin, ætlaði ég að
kafna. Lungnapípumar herpt-
ust saman í kuldanum. Ég
beygði höfuðið og andaði í
hanzkan minn. Sjaldan hafa
norðurljósin logað eins skært.
Þau teygðu sig frá norðri til
suðurs í stómm sveig. Yfir
suðurpólmun var sem risastórt
ijóstjald með miklum fellingum
héngi niður úr himninum.
Meðan ég var að virða þetta
fyrir mér, fóm norðurljósin að
breytast og urðu sem lýsandi
slanga, er mjakaðist hægt yf-
ir himinhvolfið. Á sama auga-
bragði fóm fellingarnar í ljós-
tjaldinu í suðri að hreyfast, eins
og fyrir nálægð himneskrar
vem. Stjarna eftir stjömu
hvarf á bak við hlykki slöng-
unnar. Það var eins og að horfa
á himneskan harmleik: Slang-
an, ímynd hins illa, var að tor-
tíma hinu fagra.
Allt í einu hvarf slangan og
stjörnurnar birtust aftur. Tjald-
ið yfir pólninn sviftist í sundur
og stormuiinn kom æðandi yfir
jökulinn. Mér fannst einhvern-
veginn ég hafa verið áhorfandi
að furðuverki, sem engir dauð-
legir menn höfðu áður augum
litið.
Það sem eftir var mánaðar-
ins, lifði ég mestmegnis í heimi
hugans. Þegar ég fór að velta
hlutunum fyrir mér í einver-
imni á jöklinum, var auðvelt
fyrir mig að greina ámillihveit-
isins og hismisins í veröldinni.
Ég lærði eitt, sem heimspeking-
ar hafa alltaf haldið fram — að
maður getur lifað ágætu lífi án
þess að hafa mikið í kringum
sig. Skoðun mín á því, hvað væri
lífshamingja, breyttist líka. Ég
fór að hallast að því, að maður-
inn ætti fyrst og fremst að leita
samræmis í sinni eigin sál og
innan f jölskyldu sinnar. Þannig
öðlast hann frið.
Þetta var merkilegt tímabil
í lífi mínu. Hugur minn var full-
ur af kyrrð og friði, og samt var
lífsþróttur minn meiri en
nokkru sinni fyrr. Slík friðsæld-
ar augnablik eru fá í lífi manna,
en þau endast ævilangt. Ég f ann
þá, hvað sálarfriður er, og ég
naut þess lengi.
IMMTUDAGINN 31. maí
skeði óhappið. Þegar ég var
að tala við leiðangursmennina
í Litlu Ameríku um morgiminn,