Úrval - 01.12.1945, Blaðsíða 77
KONAN 1 SNJÖHÚSINU
75
þeim, og síðan tók hún til að
klóra sér á nýjan leik, stein-
þegjandi.
Mér hafði virzt kona Kak-
oktos fúl í skapi nokkra undan-
farna daga. Ég minntist á þetta
við Paddy Gibson eitthvert
sinn, er við vorum að borða
kvöldmatinn og sagði svo and-
artaki síðar:
„Hvað er hann að gera hér
allan þennan tíma, þessi Kuks-
kun frá Adelaide skaganum?“
Paady brosti. „Þarna hefirðu
dottið ofan á dálítið," sagði
hann. „Það er hans vegna, sem
hún er í svona æstu skapi.
Kakokto og Kukskun voru að
hafa kvennaskipti, og konurn-
ar voru ekki spurðar ráða frem-
ur en venja er til. Konu Kakokto
líkar ekki Kukshun. Dálítið
sorglegt, finnst þér það ekki?
Þetta hefir komið henni úr
jafnvægi. Hún er ein af þeim
fáu konum hér, sem þykir vænt
um manninn sinn. Kakokto er
nokkuð sama um hana, og hann
lánar hana hverjum sem hafa
vill. Það er í fyrsta lagi venja,
sem halda verður í heiðri, og
svo hefir vináttan skyldu í för
með sér.“
Hann tók nú að skýra mér
frá, að kvennakaup væru algeng
meðal Eskimóa. Slíkt ber ekki
vott um gestrisni eins og hjá
sumum öðrum frumstæðum
þjóðum. Á Suðurhafseyjum
hafði ég sjálfur hitt fyrir höfð-
ingja, sem fögnuðu mér með
því að bjóða mér dóttur sína eða
báðu mig að velja einhverju af
konum þorpsins til fylgilags.
Hér var öðru máii að gegna,
einungis um félagslyndi að
ræða, kurteisissið, sem vinir og
heimsækjendur fylgdu. Eski-
móar veiða oft í félagi, og þetta
þótti sjálfsagt meðal veiðifé-
laga, hvíld frá tilbreytingar-
leysi tilverunnar.
Meðal giftra manna var
aldrei um neina milligjöf að
ræða. Hinsvegar mundi „vel
uppalinn" piparsveinn launa
vini sínum slíkan greiða með
einhverri smágjöf. Ráða kon-
unnar var aftur á móti aldi'ei
leitað og henni engu launað, þó
að hún væri annar aðili þessar-
ar kurteisisvenju. Meðal ann-
arra siðareglna var ein sérstak-
lega ströng: Eiginmaðurinn
hafði einn rétt til að ráða fyrir
konu sinni. Sá, sem bar fram
beiðni sína við konuna sjálfa,
varð stórum brotlegur við siða-
reglurnar og alvarlegir árekstr-
ar hlutu að verða af slíku.