Úrval - 01.12.1945, Blaðsíða 130
128
ÚRVAL
og þau, sem við unnum, einnig leyst
af hendi í öðrum löndum.
Við drögum enga dul á, að gagn-
vart atómorkunni og atómvopnunum
dugar ekkert minna en heimsstjórn,
allt annað hlýtur að enda með skelf-
ingu.
Eina leiðin til þess að atómsprengj-
ur veiti öryggi er sú að verða fyrstur
til að nota þœr. Hið ógurlega mikla
iðnaðarafl þjóðar vorrar, sem hafði
slíka feikna þýðingu til að vinna stríð-
ið, mun ekki hafa neitt að segja í
þeim átökum sem átt gætu sér stað
í framtíðinni, þar sem atómvopn
koma til greina, því að engin þjóð
mun þora að hefja styrjöld nema hún
sé viss um að geta gjöreytt óvinum
sínum þegar í stað. Þannig getur
engin þjóð unnið sér öryggi með
framleiðslu birgða af atómsprengj-
um,.
Við finnum, að niðurstaðan hlýtur
að verða sú að allar þjóðir taki þátt
í undirbúningi heimsstjómar, sem
hafi eftirlit með atómorkimni. Vissu-
lega skerðir þetta að sumu leyti þjóð-
legt fullveldi. Við ætlum okkur ekki
þá dul að segja nánar fyrir um þá
tilhögun á alþjóðamálum, sem náð
gæti þessum tilgangi, en okkur virð-
ist alþjóðlegt eftirlit eina leiðin tií
að koma í veg fyrir misnotkun atóm-
orkunnar.
1 öllum styrjöldum síðari tíma liafa
komið fram i dagsljósið einhver ný
árásarvopn. Það virðist augljóst, að
einhverskonar atómorkuvopn sé það
lengsta, sem komist verður, og mann-
kynið hafi nú náð því marki, að það
getur ekki framar leyft sér að heyja
styrjaldir. Heimurinn er of litill,
aflið of mikið.
Samband visindamanna við Clinton-
rannsóknarstofnunina í Oak Ridge.
oo^cvo
ÚKVAL timaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri Gísli Ólafsson, afgreiðsla Tjarnargötu 4, Pósthólf 365. —
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, eru beðnir að snúa sér til afgreiðsl-
unnar. Ætlazt er til, að hvert hefti sé greitt við móttöku. Á hinn
bóginn fylgja áskriftinni engar skuldbindingar um að kaupa tímaritið
fyrirfram ákveðinn tima, en með því að gerast áskrifandi tryggið þér
yður að fá timaritið sent til yðar undir eins og það kemur út. Úrval
er sent til allra bóksala á landinu og getur hver og einn gerzt áskrif-
andi hjá næsta bóksala.
ÚTGEFANDI: STEINDÓRSPRENT H.P.