Úrval - 01.12.1945, Blaðsíða 49
1 SÆLUDALNUM Á NÝJU GUINEU
47
okkur súkkulaði. Það var dýr-
leg stund.
Þessu næst hóf doksi aðgerðir
sínar á Decker og mér. Það tók
hann tvo klukkutíma að búa að
höfuðsári Deckers og aðra tvo
að gera að brunasárum hans.
Eftir það tók hann til við fæt-
urna á mér. Gömlu umbúðirnar
loddu fastar við holdið. Doksi
gerði sitt ýtrasta til að ná þeim
af, án þess að valda mér mikl-
um sársauka, en hann kveinkaði
sér engu síður en ég.
„Þú ættir að sjá, hvernig ég
færi að fletta þessu af!“ sagði
McCollorn við hann í eggjandi
tón. En ég var yfir það hafin,
að láta þrautir á mig fá, bara
ef fótum mínum yrði borgið.
Næsta dag vaknaði ég við
iilminn af rjúkandi kræsingum
— heitu kaffi og steiktu svíns-
fleski. Þar með sáu doksi og
Rammy okkur fyrir fyrstu
heitu máltíðinni í heila viku.
Næstu sex klukkutíma vann
doksi sleitulaust að því að
skafa drepskorpuna úr bruna-
sárum Deckers. Samt kom ekki
fyrir, að Decker léti sér nokkru
sinni bregða við þessar ógnlegu
pyntingar, jafnvel ekki með
kipp eða hósta. Ofan á allt ann-
að varð nú uppskátt, að hægri
handleggur hans var brotinn
um olnbogann. Og ekki bætti
úr skák, að ekkert deyfingar-
lyf var fyrir hendi til að lina
sárustu þjáningar hans — ekki
svo mikið sem einn whiský-
teygur.
Það var árla sunnudags, þeg-
ar eftirlitsflugvélin kom næst
til okkar færandi hendi, sem sé
með níu fallhlífarhermenn og
þar af einn herforingja, Cecil
E. Walters höfuðsmann. „Við
förum niður á undirlendið, svo
sem tíu mílur héðan, og vörpum
mönnum þar niður,“ sagði loft-
skeytamaðurinn. „Þeir verða
komnir til ykkar, áður en
skyggir.“
Þessir sendimenn komust
fyrst til okkar næsta föstudag!
Þeir lentu í 45 mílna fjarlægð í
stað 10. En það var þægilegt til
þess að hugsa, að okkur var að
berast hjálp til að komast á
brott úr dalnum.
Meðal þeirra hluta, sem kast-
að var niður til okkar þennan
sunnudagsmorgunn, var talna-
bandið rnitt. Okkur voru líka
sendar bænabækur og biblía.
Þegar doksi tók til við að skafa
upp sár mín, vissi ég ekki,
hvernig ég ætti að standast þá
raun. En ég kreisti talnabandið