Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 31
Ræður rektors
29
lr og séð fyrir nauðsynlegum búnaði í
kennslustofúm og rannsóknarstofúm. Til
þessa þarf að leggja háhraðanet um allar
helstu byggingar Háskólans og auka verulega
burðargetu tengingar við alþjóðanetið Inter-
net. Fjölga þarf almennum tölvuverum, sem
standa stúdentum opin til afnota og auka
kynningu og notendafræðslu um nýtingu
tölvu- og upplýsingatækni. Háskólinn starfar
nú í rúmlega 40 byggingum víðs vegar um
borgina, og hann vinnur að stofnun rann-
sóknarstöðva víða um land og dreifingu
fræðslu með fjarskiptum. Markmiðið er, að
ekki skipti máli, hvar nemandi eða kennari
eru staddir, þeir eigi hvarvetna sama aðgang
að gagnasöfnum og öðrum upplýsingum. Ein
af miðstöðvum þessa nets yrði Þjóðarbók-
hlaðan með sín bóka- og gagnasöfn. Net
þetta mun einnig greiða fyrir allri stjórnsýslu
•nnan Háskólans, miðlun upplýsinga, pósts
°g skilaboða. Tengslin við útlönd munu
minnka verulega aðstöðumun okkar miðað
Vlð erlenda starfsbræður og rjúfa þá einangr-
un, sem við höfum búið við vegna legu
landsins. Innan tíðar mun þessi tækni bylta
öllum kennsluháttum og auðvelda sjálfsnám
nemenda undir handleiðslu kennara.
Eg gat þess í upphafi, að styrkur Háskól-
ans væri ekki síst fólginn i öflugum nem-
endahópi. Hlutur þeirra felst ekki eingöngu í
námi, heldur eru þeir með í ráðum um flesta
PíEtti skólastarfsins og reka með myndarbrag
Félagsstofnun Stúdenta, Stúdentagarða, bók-
sólu, ferðaskrifstofú og ýmsa félagsþjónustu
yrir stúdenta. Undanfarin ár hafa stúdentar
'y.'kt sér undir merkjum tveggja samtaka,
öku og Röskvu. Vaka fagnar nú 60 ára af-
mæli. Á löngum starfsferli hefúr Vaka verið
mjög virk í allri umræðu um málefni stúdenta
°g att frumkvæði að mörgum framfaraskref-
nm í starfi Háskólans. Röskva er yngri að
aruin en hefúr ekki síður stuðlað að bættu
samfélagi og framförum Háskólans. Félags-
starf stúdenta er Háskólanum ómissandi, en
einnig er ánægjulegt að sjá, að margir for-
ustumenn stúdenta gerast síðan farsælir og
at U'úiasamir forustumenn í þjóðlífi okkar og
nJota þar þess holla skóla, sem þessi félags-
s arfsemi er. Framtak stúdenta í árangursríkri
sofnun í þjóðbókasjóð sýndi þjóðinni, að
studentar eru ekki þvermóðskufúllur kröfu-
hópur, heldur gjörvulegt ungt fólk með hug-
sjónir og brennandi hug að láta gott af sér
leiða. Framlag þeirra og samstarfshugur inn-
an Háskólans er ekki síður lofsvert. Sem
nýlegt dæmi mætti þar nefna tillögu þeirra
um hlutdeild ungra fræðimanna og stúdenta í
rannsóknum, þróun og nýsköpun. Þar er lagt
til, að efnilegir stúdentar verði styrktir til að
gerast aðstoðarmenn við kennslu og
rannsóknir og til vinnu við verkefni, sem
tengjast nýsköpun í atvinnulífi og menningu.
Menntamálaráðherra hefúr tekið þessum
hugmyndum vel, og Háskólinn mun einnig
fagna þeim, enda er það reynsla allra há-
skóla, að frjó samskipti kennara og nemenda
um kennslu og rannsóknir eru vís vegur til
framfara.
Góðir áheyrendur, nú dregur að lokum
þessarar ræðu. Áður ræddi ég, hversu samfé-
lag okkar nærist á menningarstraumum og
nýrri þekkingu frá stærri menningarheildum.
Við verðum að læra að virkja þessa strauma
okkur til hagsbóta og menningarauka. Þar
setur þjóðin traust sitt á skóla og æsku lands-
ins. Fyrir Jóni Sigurðssyni var stofnun þjóð-
skóla hluti baráttunnar fyrir fullveldi. Hann
átti að veita svo mikla menntun sérhverri
stétt, sem nægði þörfum þjóðarinnar. Við
skulum vona, að leiðtogar stjórnmála og at-
vinnulífs hlýði kalli forseta íslands og setji
menntamál á þá skör þjóðmála, sem við
þörfnumst.
Kæru kandídatar, nú er komið að þeirri
stundu, að þið takið við vitnisburði Háskól-
ans um árangur ykkar í námi. Háskólinn er
metinn eftir menntun þeirra, sem frá honum
koma, hvort sem það er til frekara náms i
öðrum háskóla eða til starfa í þjóðfélaginu.
Við vonum, að ykkur farnist vel og þið berið
héðan staðgott vegarnesti.
Háskólinn mun alla tíð vera fús að veita
ykkur aðstoð og stuðning og hveija þá við-
bótarmenntun, sem þið kunnið að kjósa og
hann megnar að veita. Við þökkum ykkur
ánægjulegt samstarf og samveru og óskum
ykkur og fjölskyldum ykkar gæfú og gengis á
komandi árum. Guð veri með ykkur.