Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 230
228
Árbók Háskóla íslands
standi saman að beiðni til íjárlaganefndar
Alþingis um þessa breytingu á uppsetningu
fjárlaga. Ef unnt reynist, yrði sjóðurinn
myndaður frá og með árinu 1997. Til þess
þyrfti að millifæra til Háskóla Islands þann
hluta áætlaðrar fjárveitingar til ritakaupa,
sem talinn er vegna þarfa Háskólans og er nú
í frumvarpi til fjárlaga 1997 undir þætti 6 05
á lið 02-905 Landsbókasafn Islands -
Háskólabókasafn. Auk þess yrði farið fram á
hækkun þessarar ijárveitingar, sem nemur a.
m. k. því fé, sem þarf til að koma í veg fyrir
frekari niðurskurð ritakaupa en orðinn er. Til
þess þyrfti áætluð íjárveiting til ritakaupa að
hækka um a. m. k. 17 mkr.“ Tillagan var
samþykkt.
19.12.96: Rektor kynnti þær breytingar á
fjárlögum Háskóla Islands, sem urðu við 2.
umræðu ljárlaga með stofnun sérstaks Rita-
kaupasjóðs á lið 1.11 innan Ijárlagaramma
Háskólans. Einar Sigurðsson, landsbóka-
vörður, skýrði málið nánar. Fjárveiting til
Ritakaupasjóðs nam 31,5 m. kr., en Lands-
bókasafn fékk auk þess 23,5 m. kr. vegna
hlutverks þjóðbókasafns. Fram var lagt bréf
landsbókavarðar, dags. 18. þ. m. Þorsteinn
Vilhjálmsson, forseti raunvísindadeildar,
lagði fram og skýrði minnisblað og töflu um
tímaritakaup vegna deilda Háskólans. Þor-
steinn telur, að gögn sýni, að hlutur raunvís-
indadeildar í heildartímaritakaupum hafi
verið fremur stöðugur á árabilinu 1980-1996.
Samþykkt var, að farið yrði að þessu sinni
eftir tillögu bókasafnsnefndar um niðurskurð
áskrifta á tímaritum, en rektor var falið að
leita leiða til lausnar vanda raunvísinda-
deildar, sem verður harðast úti við þennan
niðurskurð. Skipting ritakaupa á deildir og
forgangsröðun á ritakaupum voru ræddar.
Samþykkt var að fela Vísindanefnd að gera
tillögur um reglur til úthlutunar úr Rita-
kaupasjóði.
20.03.97: Fram var lögð tillaga Vísinda-
nefndar um skiptingu Ritakaupasjóðs
Háskóla íslands 1997. Formaður nefndar-
innar, Sigrún Aðalbjarnardóttir, mælti fyrir
tillögunni. Skipting Ritakaupasjóðs var rædd
og þær forsendur, sem eru að baki skiptingu
á deildir. Gert er ráð fyrir, að við hverja deild
starfi bókasafnsnefnd, sem hefur m. a. það
hlutverk að skipta ritakaupafé hverrar deild-
ar. Tillaga Vísindanefndar var samþykkt.
03.04.97: Fram voru lögð drög að samkoniu-
lagi Háskóla íslands og Landsbókasafns
Islands - Háskólabókasafns, dags. 11. mars
sl. Rektor rakti aðdraganda að samkomulag-
inu, og Jón Torfi Jónasson, forseti félagsvis-
indadeildar, sem hafði sem fulltrúi háskóla-
ráðs unnið að málinu, gerði grein fyrir þeim
atriðum, sem helst höfðu verið skoðuð. Einar
Sigurðsson, landsbókavörður, gerði nánan
grein fyrir einstökum atriðum samkomulags-
ins. Samkomulagið var rætt ítarlega, einkum
þær greinar, sem varða opnunartíma og rita-
kaup. Björn Þ. Guðmundsson lagði frarn svo-
fellda bókun: „Á síðasta háskólaráðsfundi
var samþykkt með 6 atkvæðum gegn mínu
tillaga nefndar um skiptingu bókakaupafjar
fyrir næsta háskólaár. Á þeim fúndi leitaði eg
eftir málefnalegum rökum nefndarinnar fyrir
skiptingunni. Var þá upplýst, að yfir stæði
vinna til að setja almennar reglur í þessu
sambandi, og féllst ég þá á þær skýringaf-
þótt ég mótmælti harðlega skörðuin hlut
lagadeildar. Hins vegar var gert ráð fyrir þvr
í tillögum nefndarinnar, að raunvísindadeilo
fengi af óskiptu 1 milljón króna til bóka-
kaupa umfram aðrar deildir Háskólans. Þvi
mótmælti ég einnig harðlega og vil nú meö
þessari bókun fá það skjalfest, að ég tel þessa
ákvörðun skýlaust brot á jafnræðisreglu
stjórnsýsluréttar." Málinu var frestað.
16.04.97 og 28.04.97: Einar Sigurðsson,
landsbókavörður, gerði grein fýrir framlögðu
uppkasti að samkomulagi Háskóla íslands og
Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns-
Einar lagði ennfremur fram gögn um notkun
á aðstöðu safnsins, framboð lessæta, at'
greiðslutíma þjóðbókasafna og háskólabóka-
safna á Norðurlöndum og kostnað V1
lengdan afgreiðslutíma.
15.05.97: A fúnd komu Kristján Búason og
Magnús Guðmundsson, sem sæti áttu í vlö_
ræðunefnd um bókasafnsmál. Fram var la&
endurskoðað uppkast að samkomulag1
Háskóla íslands og Landsbókasafns íslands
Háskólabókasafns, dags. 13. maí 1997. LJm
ræðu var nú haldið áfram, og í tengslum V1
það ósk stúdenta um nestisaðstöðu. Að
lögu allra fulltrúa stúdenta sainþykL i
háskólaráð einróma að beina þeim eindregnu
tilmælum til Landsbókasafns íslands - “
skólabókasafns, að fundin yrði nestisaðsta a
í Bókhlöðunni fyrir stúdenta. Samþykkt var,