Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 552
550
Árbók Háskóla íslands
Atvinnumál: Árið 1992 var hafið átak í at-
vinnumálum undir kjörorðinu „Atvinnu-
tryggingar í stað atvinnuleysistrygginga“.
Fjöldi greina var skrifaður um málið, og hug-
myndunum, sem kynntar voru, aflað stuðn-
ingsyfirlýsinga margra innlendra stéttarfé-
laga o. fl. Þessum hugmyndum var afar vel
tekið. Fyrsta greinin, sem um þær var birt,
kom í DV í janúar 1992. Nýju atvinnuleysis-
tryggingalögin (3. mars 1996) byggðu að
hluta á þessum hugmyndum (heimild: Viðtal
við Pál Pétursson, félagsmálaráðherra, Tím-
inn, 30. mars 1996).
Hagnýting Veraldarvefsins: Árið 1996 var
unnið verkefnið „Símenntaveflir íyrir Evrópu-
samtök einkaritara“ (EAPS, European Associ-
ation of Professional Secretaries). Verkefnið
var styrkt af Evrópusambandinu í tengslum við
Ár símenntunar 1996 (EYLL, European Year
of Lifelong Learning). Þetta var fyrsta meiri-
háttar átak U. H. á Veraldarvefnum. í framhaldi
af þessu verkefni var hafist handa við að ger-
breyta verklagi U. H. með því að beina tækni-
þróun að hagnýtingu Internetsins og Veraldar-
vefsins. Nú er alfarið unnið þannig með af-
burðaárangri. U. H. hefur veitt fjölmörgum að-
stoð á tímabilinu, sem hér um ræðir, m. a.
fjölda kennara og nemenda við H. í.
Kennsla
Forstöðumaður U. H. kenndi námskeið
um upplýsingaöflun og frumkvöðlafræði við
verkfræðideild og raunvísindadeild. Nánari
upplýsingar, lista yfir greinar, ummæli við-
skiptavina og önnur grunngögn er að finna
á vefslóðinni: (http://www.hi.is/~joner/eaps/
UH_Skyrsla_l 991_1997.htm).
Jón Erlendsson.
Verkfræðistofnun Háskóla
íslands 1991-1997
Aflfræðistofa
Inngangur
Aflfræðistofa Verkfræðistofnunar Há-
skóla íslands fæst við fræðilega aflfræði og
tilraunaaflfræði fastra og fljótandi efna, hér
með talin líkindaaflfræði og töluleg aflfræði-
greining. Viðfangsefni stofunnar eru bæði í
byggingarverkfræði og vélaverkfræði svo og
skyldum greinum, en þó er megináhersla
lögð á rannsóknir í jarðskjálfta-, vind- og
hafverkfræði og sveiflu- og burðarþolsfræði
flókinna virkja svo og tölvustuddri hönnun.
Starfsemi stofunnar skiptist í þrjá megin-
þætti: 1) undirstöðurannsóknir, 2) samnings-
bundnar þjónusturannsóknir og 3) rannsókn-
ir og uppbyggingu aðstöðu í tengslum við
verkfræðikennslu.
Rannsóknarverkefni
Jens Bjarnason, Ph.D., dósent
Hafverkfræði: Tilgangur þessa verkefnis er
að afla þekkingar á hafoldum og sjólagi um-
hverfis ísland, áhrifum hafaldna á mannvirki
og hagnýtingu ölduorku. Á tímabilinu hefur
verið unnið að fræðilegri og tölulegri grein-
ingu fljótandi mannvirkja. Athugaðir hafa
verið tæknilegir möguleikar á byggingu fl°l"
brúar yfir Hvalfjörð, og fjallað hefúr verið
um skipshreyfingar á höfúm. Fjóla G. Stg'
tryggsdóttir og Ragnar Sigbjörnsson hafa
unnið að verkefninu auk Jens Bjarnasonar.
Samstarf hefur verið við prófessor SigfuS
Björnsson, prófessor Jónas Elíasson, Gísla
Viggósson, verkfræðing, Hafnamálastofnun,
og prófessor Takeru Igusa og prófessor Jan
D. Achenbach, Northwestem University,
Bandaríkjunum.
Ragnar Sigbjörnsson, Ph.D., prófessor
Hagnýt aflfræði: Með þessu verkefni er af
að þekkingar í aflfræði fastra og fljótandi efna
og hvernig hagnýta megi hana við mann
virkjagerð. Helstu þættir verkefnisins eru.
Slembisveiflur og óvissugreining. - Líkinda
fræðileg greining stöðugleika. - Líkin a
fræðileg hönnun burðarvirkja; hér hefúr veri
unnið að áframhaldandi þróun og viðha •
tölvuforritsins BETA, sem lýst var í rltin