Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 276
274
Árbók Háskóla íslands
Brautskráning kandídata
06.04.95: Rektor hóf umræðu um næstu
brautskráningu kandídata, sem yrði á þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní nk. Reiknað var með, að
brautskráðir kandídatar yrðu um 500, og því
væri Háskólabíó orðið of lítið. Rektor ræddi
um, að hátíðin yrði í Laugardalshöll, sem
rúmaði allt að 4.000 manns. Undirtektir
háskólaráðsmanna voru góðar, og komu fram
fjölmargar hugmyndir um framkvæmdina.
Rektor var falið að kanna málið.
29,06.95: Rektor ræddi þá hugmynd, að
deildarforsetar væru í skikkjum við braut-
skráningu kandídata. Myndi hann leita eftir
ráðgjöf hönnuða um málið.
16.11.95: Til umræðu var hönnun á skikkj-
um, sem háskólakennarar myndu bera við
næstu brautskráningu kandídata, þ. e. í febr-
úar 1996. Rektor reifaði málið.
Háskóladagur
16.03.97: Haldinn var Háskóladagur til
kynningar á námi og rannsóknum við
Háskóla íslands. Ávörp fluttu háskólarektor
og Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson.
Að þessu sinni var sérstaklega kynnt nám og
rannsóknir í raunvísindum og verkfræði á
Melunum, en auk þess fór fram í Aðal-
byggingu kynning á rúmlega 50 náms-
greinum, sem í boði eru við Háskólann og
helstu þjónustu, sem stúdentum stendur til
boða hjá Námsráðgjöf, Stúdentaráði og
Félagsstofnun stúdenta, Alþjóðaskrifstofú og
Lánasjóði námsmanna.
Heiðursdoktorar
Sjá kafla 3, bls. 73-77.
Heimsókn aðalframkvæmdastjóra UNESCO
12.04.96: Federico Mayor, aðalframkvæmda-
stjóri UNESCO, Menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, kom í heimsókn í
Háskóla Islands. Federico Mayor er prófessor
í lífefnafræði og fyrrverandi rektor háskólans
í Granada á Spáni. Hann var menntamálaráð-
herra Spánar, áður en hann tók við starfi aðal-
framkvæmdastjóra UNESCO. Efnt var til
hringborðsumræðu um Háskóla íslands og
háskólamálefni. Að umræðu lokinni hélt
Mayor opinberan fyrirlestur um hlutverk
háskóla í nútímasamfélagi. Eftir fyrirlestur-
inn var haldinn blaðamannafundur í Odda, þar
sem fram kom, að Mayor hafði rætt við sjáv-
arútvegsráðherra, Þorstein Pálsson, °S
forstöðumenn Hafrannsóknastofnunarinnar
um áhuga sinn á að koma upp prófessorsemb-
ætti í haffræði hér á landi, sem kennt yrði við
UNESCO og komið á fót við Háskóla íslands
í tengslum við Hafrannsóknastofnunina.
Heimsókn aðalritara Sameinuðu þjóðanna
04,09,97: Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, kom í opinbera heimsókn hingað
til lands. Hans fyrsta verk var að halda fyrir-
lestur í boði Háskóla íslands og Félags Sam-
einuðu þjóðanna á íslandi í hátíðarsal Ha-
skólans í Aðalbyggingu. Hátíðarsalurinn var
þétt setinn, og þurftu nokkrir frá að hverfa, en
hópur fólks stóð frammi á svölum og hlýdm
á Kofi Annan ræða um breytingar á starti
Sameinuðu þjóðanna. Aðalritarinn benti a j
ræðu sinni, að ísland væri dæmi um, að lon
þyrftu ekki að vera efnahagsleg- eða hernað-
arleg stórveldi til að taka virkan þátt í star i
Sameinuðu þjóðanna. Stuðningur íslendinga
við frið og öryggi í heiminum stafaði af hinn'
sérstöku sögu landsins og legu þess í Norður
Atlantshafi á viðsjárverðum tímum. Hann
taldi, að íslendingar skildu vel röksemdir
fyrir alþjóðasamstarfi.
Eftir fyrirlesturinn skrifaði Kofi Annan '
gestabók á skrifstofu háskólarektors eins og
tveir forverar lians í embætti höfðu gerf
Thant 1966 og Javier Pérez de Cuéllar 19
og hélt svo á blaðamannafund á Hótel Sogu-
Heimsókn alþingismanna og nefnda
Alþingis
15.12.95: Hinn I. nóvember sl. bauð Kynn
ingarnefnd háskólaráðs fúlltrúum mennji
mála- og fjárlaganefndar Alþingis til fun a
með háskólamönnum. Frá Háskólanmj
komu formenn nefnda háskólaráðs, 'ra
kvæmdastjórar stjórnsýslu og deildarfors
stærri deilda. Til umræðu voru fjármál, by'cT
ingamál, framhaldsnám, rannsóknir, alþl°
mál og viðhorf til þeirra. Þótti fundun*^.’
sem haldinn var í Reykjavíkur Ap°|® ’
takast vel og vera gagnlegur fyrir báða a
26.01.96: Þingmenn Reykjavíkur og
ness komu til fundar með fulltrúum Has
ans í Reykjavíkur Apóteki. Rætt var um J
verk Háskóla íslands í atvinnusköpun a 1
uðborgarsvæðinu.