Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 558
556
Árbók Háskóla íslands
Kerfisverkfræðistofa
Starfssvið
Kerfisverkfræðistofa fæst við stjórntækni,
stýritækni, samskiptatækni, leiðsögu- og
staðsetningartækni, gagnasamskipti, gagnaúr-
vinnslu og mælitækni. Tölvukerfi til flugum-
ferðarstjórnar og eftirlits með fiskiskipum,
bifreiðum og flugvélum hafa verið þróuð. Til
þess hefur tölvueftirlíkingum og líkanaauð-
kenningum verið beitt, en þau geta hermt eft-
ir hegðun kerfa eins og varmaorkukerfa, raf-
orkukerfa, málmbræðsluofna og flugumferð
eða því, sem nefnt hefur verið kvik kerfi. Þá er
unnið að rannsóknum á vali á diffrandi stuðl-
um impúlssvörunar og lokuðum formum á
lausnum almennra diffúrjafna, afkúpluðum
bestunarstýringum, nálgunarhættu flugvéla
og almennt að hönnun og greiningu sjálf-
virkra stýrikerfa og beitingu þeirra. Unnið er
að nýtingu nýrra örtölva, aðferðum við há-
hraðasamskipti og aðferðum við að blanda
saman mælingum frá mismunandi skynjurum
með Kalmansíun og öðrum matsaðferðum.
Verkefni á sviði margmiðlunar, sem nýta há-
hraðaQarskipti til heimila til að bjóða upp á
myndþjónustu eftir pöntun og Internet að-
gang, hafa verið í þróun. Þorgeir Pálsson, þá
prófessor í vélaverkfræði og síðar flugmála-
stjóri, stofnaði Kerfisverkfræðistofu árið
1985 og veitti henni forstöðu frá upphafi, en
Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor við raf-
magns- og tölvuverkfræðiskor, tók við for-
stöðumannsstarfi 1992. Ebba Þóra Hvann-
berg, dósent við tölvunarfræðiskor, gekk til
liðs við Kerfisverkfræðistofu 1994 og er stað-
gengill forstöðumanns.
Rannsóknarverkefni
Urvinnsla staðsetningargagna: Fengist var
við endurbætur á úrvinnsluaðferðum á stað-
setningargögnum og öðrum gögnum til þess að
fá sem nákvæmast mat á raunverulegri stað-
setningu skipa. Hugbúnaður, byggður á Kalm-
ansíun, var notaður, en hann biandar saman
mælingum frá Loran-C tækjum, hraðamæli og
áttavita svo að ná megi sem mestri nákvæmni
við staðarákvörðun og hraða skipa. Reikniað-
ferðir voru prófaðar og hermt eftir siglingu
skips í tölvu og mælistærðir framleiddar
þannig með viðeigandi skekkjum. Brandur St.
Guðmundsson, Sigurður T. Júlíusson, Sveinn
O. Arnórsson og Þorgeir Pálsson unnu að þessu
verkefni, sem styrkt var af Rannsóknaráði rík-
isins og Vísindasjóði.
Hermilíkön af kvikri hegðun varmaorku-
vera: Þróaður var rauntíma þjálfunarhermir
af Nesjavallavirkjun. Þjálfunarhermirinn líkir
eftir hegðun jarðvarmaorkuvers i kviku
ástandi, og má beita honum til stillinga á
stýringu í virkjuninni og kanna eiginleika
orkuversins með tilliti til rekstraröryggis og
þjálfunar starfsmanna. Hermilíkanið var sett
upp á PC vél og tengt stýritölvu og kerfiráði af
sömu tegundum og notaður er á Nesjavölluni.
Niðurstöður úr hermilíkaninu voru sann-
reyndar með samanburði við mælingar við
raunverulegar aðstæður. Að verkinu unnu
Anna Soffia Hauksdóttir, Áslaug Haraldsdótt-
ir og Þorgeir Pálsson frá Kerfisverkfræði-
stofu, Hallgrímur G. Sigurðsson og Jóhann
Þór Magnússon frá Rafhönnun hf. og Arni
Gunnarsson frá Hitaveitu Reykjavíkur.
Rannsóknarsjóður ríkisins og Hitaveita
Reykjavíkur styrktu verkið.
Flugumferðarhermir: Flugumferðarhermir
Iíkir eftir flugumferð yfir svæði með ratsjár-
mælingum af þeirri umferð. Hann er notaður
til þjálfunar flugumferðarstjóra og til prófana
á ratsjárgagnavinnslukerfum. Í þeim hermú
sem hér um ræðir, er gefin sem sönnust mynu
af flugumferð og eiginleikum hverrar flug-
vélategundar í reiknilíkaninu. Líkt er eftir
breytingum í lofthjúpi miðað við hæð, og
hreyfingar flugvéla eru reiknaðar í jarðhnita-
kerfi, þannig að hægt er að herma eftir flu2'
umferð yfir jafnvel stærstu flugstjórnarsvæð-
um. Sumarið 1993 hófust viðamiklar breyt-
ingar á flugumferðarherminum, sem fólust i
því að gera fullkomnari líkön af mælingum
ratsjárstöðva á flugvélahreyfingum. Tilgang'
urinn er að gera herminn að fullkomnu pró>'
unartæki fyrir ný og flókin gagnavinnslukerf F
sem samræma mælingar frá mörgum ratsjar-
stöðvum til að sýna bestu fáanlegu mynd a
flugumferðinni. Starfslið varÁslaug Haralds-
dóttir, Karl Roth Karlsson, Sigurður Þórarins-
son, Þorkell Guðmundsson og Þorgeir Pá s
son. Samvinna var við Flugmálastjórn IS'
lands, Integra Consult APS í Danmörku, og
styrktaraðilar voru Rannsóknaráð ríkisins og
Flugmálastjórn íslands. Árið 1996 var ker i
selt til FlugmálastjórnarTékklands.