Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 280
278
Árbók Háskóla íslands
íslandi dagana 2.-10. júní 1998. í nefndinni
sátu Þorsteinn I. Sigfússon, formaður, Svein-
björn Björnsson, rektor, Ari Ólafsson, eðlis-
fræðingur, Haukur Arason, eðlisfræðingur,
og Ómar Einarsson. Með nefndinni starfaði
einnig Viðar Agústsson, eðlisfræðingur.
Sjálfvirkt tilkynningarkerfi
02.02.95: Fram var lagt bréf, dags. 30. f. m.,
undirritað af Brynjólfi Sigurðssyni f. h.
Aldísar hf. í bréfinu er greint frá þróun sjálf-
virks lilkynningarkerfis fyrir íslenska fiski-
skipallotann innan Kerfisverkfræðistofu,
sem er hluti af Verkfræðistofnun Háskóla
íslands. í bréfinu er Háskóla íslands boðið að
eignast 10% hlut í Aldísi hf. án skuldbind-
inga eða greiðslna sem endurgjald fyrir þá
aðstöðu, sem sérfræðingar Kerfisverkfræði-
stofu nutu hjá Háskóla Islands. Háskólaráð
samþykkti samhljóða að taka boðinu.
Stofnun Árna Magnússonar, boð til Dana
14.03.96: Fram var lagt bréf frá Stofnun Árna
Magnússonar á íslandi, dags. 9. maí 1995, til
Sáttmálasjóðs Háskólans. Óskað var eftir
styrk að íjárhæð 3 m. kr. til að bjóða til mál-
þings um íslensk handrit vorið 1997 þeim
Dönum, sem afhending handritanna hafði
snert sérstaklega með ýmsum hætti, alls um
38 manns. Tilefnið var, að væntanlega kæmu
síðustu handritin heim snemma á árinu 1997.
Samþykkt var að heimila rektor að veita styrk,
allt að 3 m. kr., úr Sáttmálasjóði til Stofnunar
Árna Magnússonar vegna þessa verkefnis.
04,09.97: 1 sumar lauk afhendingu íslenskra
handrita úr safni Árna Magnússonar og Kon-
unglegu bókhlöðunnar í Kaupmannahöfn,
sem staðið hefur yfir allt frá 21. apríl 1971,
þegar danska eftirlitsskipið Vædderen lagðist
að bryggju í Reykjavíkurhöfn og danskir sjó-
liðar báru í land Konungsbók Eddukvœða og
Flateyjarbók. Af þessu lilefni efndi Stofnun
Árna Magnússonar á íslandi til dansk-ís-
lensks málþings um handrit í hátíðarsal
Háskólans dagana 20.-21. júní. Með rausnar-
legum styrk Sáttmálasjóðs og Flugleiða bauð
stofnunin hingað til lands 44 Dönum; full-
trúum í Den Arnamagnæanske Kommission
og starfsmönnum Det Arnamagnæanske Ins-
titut og handritadeildar Det Kongelige Biblio-
tek, sem með einum eða öðrum hætti hafa
starfað við afhendingu handritanna þau 26 ár,
sem hún stóð yfir. j upphafi málþingsins
afhenti Kjeld Mallgárd, rektor Kaupmanna-
hafnarháskóla og formaður Den Arnamagn'
æanske Kommission, Sveinbirni Björnssyn*.
rektor Háskóla íslands og stjórnarformannj
Stofnunar Árna Magnússonar á íslandi, tvo
síðustu handritin, sem hingað koma úr Árna-
safni í Kaupmannahöfn; Stjórnarhandriúð
AM 227 fol., sem er meðal fegurstu handrita
íslenskra frá 14. öld, og skinnbrotiðvlAf 237o
fol., sem er tvö blöð úr predikanasafni rituð a
12. öld og er líklega elsti ritaði texti, sem varð-
veittur er á íslenskri tungu.
Tóbaksvarnir
08.12,94: Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir, korn
á háskólaráðsfund og greindi frá sambandi
reykinga og heilsufars. Byggði hann mál sitt a
tímaritsgreininni Mortality in relation 1°
smoking: 40years ’observations on maleBtit-
ish doctors eftir Richard Doll o. fl. Niðut-
stöður rannsókna bentu til, að helmingur
reykingamanna dæi íyrr en ella vegna tóbaks-
reykinganna. Þessi mál voru rædd frekar v
Þorstein, og hann svaraði spurningum. 1 bre
stúdenta, dags. 9. september 1994, var óska
eftir bættri aðstöðu fyrir reykingafólk. R®
var samþykkt háskólaráðs frá 18. ágúst 19
um algjört bann við reykingum í Háskólanuin
frá 1. janúar 1995 og andstöðu við bannt^
innan Háskólans (sbr. gögn lögð fram
kynningar 29. september og 24. nóvem e^
1994). Maggi Jónsson, formaðurTóbaksvarn^
arnefndar, greindi frá upphaflegum tillógu
nefndarinnar, þar sem ekki var gert ráð ty
algjöru reykingabanni frá 1. janúar ly '
Bann við reykingum í einkaherberg)u
starfsmanna var sérstaklega rætt og n
staðfesta ætti eða að falla frá eða að fresta
1. janúar 1997 samþykkt um bann við re.^.
ingum í einkaherbergjum. Samþykkt vafjg
breyta síðustu málsgrein samþykktar fra
ágúst 1994 þannig: „Allar reykingar í busu^
Háskólans skulu bannaðar frá og með 1 • Ja ,
úar 1997.“ Með þessu var reykingabann^
einkaherbergjum starfsmanna frestað um
29.08.96: Lagtfram bréfmrn., dags. 19- ^
sl. Vakin er athygli á nýjum löguia1' ^
101/1996 um breytingu á lögunt nr. 74/ ^
um tóbaksvarnir. Þar er fortakslaust kve
um, að tóbakreykingar eru með öllu
á stöðum, sem heyra stjórnsýslulega u
menntamálaráðuneytið, m. a. í sérskólum-