Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 218
216
Árbók Háskóla íslands
fundi ráðsins. í umsögninni kom fram, að í
ljósi þeirra efnislegu athugasemda, sem
Háskóli Islands hefði við frumvarpið, þætti
honum skynsamlegt að fresta afgreiðslu þess
til hausts, svo svigrúm gæfist til að meta
vandlega einstök atriði þess og frumvarpið í
heild. Að öðrum kosti lagði Háskólinn til, að
IV. kafli frumvarpsins yrði felldur út úr
frumvarpinu eða að Háskólinn yrði ekki
bundinn af ákvæðum þessa kafla. Fulltrúar
stúdenta lögðu fram skriflega ályktun stjórn-
ar Stúdentaráðs um málið, dags. 29. apríl sl.
Álfrún Gunnlaugsdóttir, varaforseti heim-
spekideildar, bar fram tillögu til ályktunar:
„Háskólaráð ályktar, að við samningu frum-
varps til laga um háskóla hafi verið beitt
málsmeðferð, sem brýtur í bága við 7. máls-
grein, 2. greinar laga um Háskóla íslands nr.
131/1990, og þar af leiðandi æskir háskóla-
ráð þess, að Háskóli íslands fái tíma og tæki-
færi til að fjalla um frumvarpið svo sem
mælt er fyrir um í fyrrgreindri lagagrein.“
Tillaga Álfrúnar var rædd, og bar Þorsteinn
Vilhjálmsson fram breytingartillögu við
hana. Samþykkt var eftirfarandi bókun: „Há-
skólaráð æskir þess við Alþingi, að háskóla-
samfélagið fái ráðrúm til haustsins til þess
að geta ljallað rækilega um frumvarp til laga
um háskóla. Ósk Háskólans hvílir á þremur
megin forsendum.
1. Efnislegum athugasemdum, sem settar
eru fram í greinargerð Háskóla íslands.
Einkum athugasemdum við IV kafla
frumvarpsins.
2. Lagalegum rökum, sem hvíla á 7. mgr., 2.
gr. laga um Háskóla íslands nr. 131/1990,
þar sem kveðið er á um samráð við deildir
Háskólans.
3. Rökum um sjálfstæði háskólasamfélags-
ins, sem eru margsinnis áréttuð í greinar-
gerð með frumvarpinu, en virðast að tals-
verðu leyti hafa orðið útundan í málsmeð-
ferð við undirbúning þess.“
Rektor og Þórði Kristinssyni var falið að
ganga endanlega frá umsögn Háskóla íslands
um frumvarp til laga um háskóla í ljósi
umræðna og ábendinga, sem fram komu í
ráðinu. Fulltrúar stúdenta sátu hjá við þá
afgreiðslu og lögðu fram skriflega bókun um
þá afstöðu sína.
15.05.97: Rektor greindi frá endanlegri
umsögn Háskóla íslands um frumvarp til
laga um háskóla, sem fram var lögð til kynn-
ingar, og ræddi framhald á vinnu að nýjum
lögum um Háskóla íslands.
25.06.97: Umræða var um æðsta stjómkerfi
Háskóla íslands, ffumvarp til laga um háskóla
og drög að frumvarpi til laga um Háskóla
Islands. Þorgeir Örlygsson, formaður Laga"
nefndar, Guðrún Kvaran og Lára Samua
Benjnouh, einnig úr Laganefnd Háskólans,
komu á fúndinn. Til fundarins var auk þess
boðið fúlltrúum stjómsýslu, þeim Eddu Magn-
úsdóttur, Halldóri Jónssyni og Þórði Kristins-
syni. Páll Skúlason hafði framsögn í málinu og
kynnti drög að tillögum Háskólans um breyt-
ingar á fmmvarpi til laga um háskóla (Tillaga
A og B) og hugmynd, sem hann og Þorgeu
Örlygsson höfðu undirbúið sem dæmi urn
fyrstu tvo kafla frumvarps til laga um Háskóla
íslands. ítarlegar umræður urðu um málið.
Bjöm Kristinsson, forseti verkfræðideildar,
lagði fram og kynnti athugasemdir verkfræði-
deildar við hugmynd Páls og Þorgeirs. Aðrir
fundarmenn gerðu einnig ýmsar athugasemdu
við þá hugmynd. Drög að rammareglugerð um
stofhanir Háskólans frá Vísindanefnd voru
lögð fram til kynningar. Páll Skúlason dró
umræður saman og þakkaði fyrir gagnlegar
ábendingar og athugasemdir. Þorgeir Örlygs'
son svaraði einnig athugasemdum fundar-
manna. Á þessu stigi þótti brýnast að koma a
framfæri við ráðherra óskum Háskólans um
breytingar á frumvarpi til laga um háskóla og
freista þess að fá IV kafla frumvarpsins fellUan
niður eða breytt á þann veg, að hann bindi ekki
hendur Háskólans um þá æðstu stjórnskipam
sem hann telur sér henta. Rektor og Páli Skúla-
syni var falið að taka þetta mál upp við ráðheri a
í þeim anda, sem fólst í „tillögu B“, sem fynl
fundinum lá, og skýra jafnframt þau tvö dænu
um hugsanlega skipan æðstu stjórnar, sem 11
umræðu eru hjá Háskólanum.
21.08.97: Lagt fram bréf rektors til mennta-
málaráðherra, dags. 19. þ. m. Greint var na
niðurstöðu fundar háskólaráðs, 25. júm sl->
að óska eindregið eftir því, að IV. kafli frum-
varps til laga um háskóla verði felldur niðu
eða honum breytt á þann veg, að hann bin
ekki hendur Háskólans um þá æðstu stjorn
skipan, sem hann telur skynsamlega.