Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 452
450
skýrslum. Læknarnir Lilja Sigrún Jónsdóttir,
Reynir Arngrímsson, Reynir T. Geirsson og
Nikulás Sigfússon, yfirlæknir frá Hjarta-
vernd, hafa unnið að þessu verkefni ásamt
Helga Sigvaldasyni, verkfræðingi.
Fósturgallar á íslandi greindir með ómun:
Gerð hefúr verið fjögurra ára afturvirk
athugun á fósturgöllum, sem greinast við
ómskoðun á íslandi. Tilgangurinn var að
athuga öryggi ómskoðana almennt og á
Islandi m. 1.1. fósturgaila, þ. m. t. tegundar
°g fjölda galla. Stuðst er við ómgreiningar-
skrá, fæðingarskýrslur, fæðingartilkynningar,
upplýsingar um fóstureyðingar af læknis-
fræðilegum ástæðum og önnur gögn. Athug-
unin tengist svipaðri athugun, sem rannsak-
endur hafa unnið að í samvinnu við S. E.
Chambers við háskólasjúkrahúsið í Edinborg.
Verkefnið unnu læknarnir Kristín Andersen,
Hulda Hjartardóttir, Reynir T. Geirsson, dós-
ent, María Hreinsdóttir, ljósmóðir og Jóhann
H. Jóhannsson, yfirlæknir og í samvinnu við
Monique Lander, læknanema frá Hollandi.
Ómskoðun til leitar á eggjastokkakrabba-
meini: Gerð var hendingarvalsathugun á rúm-
lega 2.000 konum, sem skoðaðar voru venju-
bundinni skoðun í leitarstöð Krabbameinsfé-
lags Islands í Reykjavík. Tæplega 1.000 þeirra
komu til viðbótar og samkvæmt hendingarvali
í ómskoðun um leggöng til leitar að krabba-
meini í innri kynfærum. Allnokkur einkenna-
laus æxli ftmdust í eggjakerfúm og legi. Efnið
hefur verið kynnt á erlendum þingum. Að
verkefmnu unnu Þórður Óskarsson, læknir,
Kristján Sigurðsson, yfirlæknir, og P. Royston’
tolfræðingur. Lionshreyfingin og nokkrir ein-
staklingar gáfu Landspítalanum og Krabba-
meinsfélagi Islands tæki, sem gerðu þessa
athugun mögulega.
Klínísk samanburðarrannsókn á notkun
desogestrel getnaðarvarnapillu og Cu-
Multiload lykkju hjá konum á brjóstagjaf-
artíma: Samanburðarrannsókn var gerð á
nýju getnaðarvarnarlyfi, svonefndri mini-
pillu til getnaðarvarna. Athugaðar voru 40
konur á þessari pillu og 40, sem notuðu Cu-
Multiload lykkju. Um var að ræða fasa 3
klíníska athugun, sem gerð var í samvinnu
_____________________Árbók Háskóla íslands
við erlent fyrirtæki. Rannsökuð voru áhrif á
brjóstagjöf, magn og samsetningu brjósta-
mjólkur, og hjá 10 konum voru lyfjahvörf
athuguð í tvígang (farmakókínetískar athug-
anir). Rannsóknin stóð yfir í eitt og hálft ár,
og hverri konu var fylgt eftir í 7 mánuði í sér-
stakri rannsóknarmóttöku. Verkefnið var
undir umsjón Ragnheiðar Ingu Bjarnadóttur,
læknis, Reynis T. Geirssonar, læknis og dós-
ents og Helgu Gottfreðsdóttur, Ijósmóður.
Athugun á vinnu og vinnuforfolluni á
meðgöngu: Athugaðar voru 400 konur á 2 x
2 mánaða tímabili árið 1993 m. 1.1. vinnu og
meðgöngu. Gagnasöfnun er lokið, og unnið
er að úrvinnslu. Verkið unnu læknarnir Elísa-
bet A. Helgadóttir, Linda B. Helgadóttir og
Reynir T. Geirsson, dósent.
Rannsókn á áhættuþáttum brjósta-
krabbameins og fibroblasta-hegðun in
vitro: Þetta er samstarfsverkefni við Rann-
sóknarstofu í sameinda- og frumulíffræði hja
Krabbameinsfélagi íslands. Könnuð er til-
gáta um breytta hegðun fibroblasta í þungun,
sem gæti líkst því, sem sést í brjóstakrabba-
meini. Tekin hafa verið blóð- og vefjasýni hja
15 konum í eðlilegri meðgöngu til athugunar
á hegðun fibroblasta úr þekjuvef í ræktun, 1
og utan þungunar. Við þetta verkefni unnu
Steinunn J. Sveinsdóttir, meinatæknir, °S
læknarnir Helga M. Ögmundsdóttir, dósen ,
og Reynir T. Geirsson, dósent. Einnig he r
verið rannsökuð sykursýki í meðgöngu
íslandi 1981-1990, legstærð og blæðingaf >
sængurlegu kvenna, klamedíu- og lekan a
sýkingar á íslandi, tvíburafæðingar °g. a ^
glasafrjóvgunar á tíðni þeirra og með
athugun á árangri tæknifrjóvgunar og rJ
semi eftir tæknifrjóvgun og tíðni jákvæ
Lues-prófa hjá þunguðunt konum, S ,
athugun á meðgöngulengd, æðabo 81‘
fylgjuvef sem orsök vaxtarseinkunar ^
fóstrum og tengsl við anti-cardiolipin m ^
efni, notkun Symfysis-fundus mashnga
Norðurlöndum og athugun á öryggi tímas
ingar síðustu tíða.