Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 536
534
Árbók Háskóla íslands
Sýningar í Stofnun Árna Magnússonar
Sumarið 1992 var opnuð handritasýning,
sem bar yfirskriftina Saga og skáldskapur
Islands, og var hún uppi fram til vors 1995.
Það sumar var opnuð ný sýning, þar sem
sýndar voru ýmsar gerðir bóka frá 13. til 17.
aldar, og stóð sýningin til vors 1997. Sú
nýjung varð í sýningarhaldi Árnastofnunar
frá 1997, að Háskóli Islands heimilaði henni
afnot af kennslustofu 201 í Árnagarði yfir
sumarmánuðina júní til ágúst. Með því að
nýta einnig anddyri Árnagarðs fjórfaldaðist
það rými, sem stofnunin hafði til afnota und-
ir sumarsýningar handrita; yfir vetrartímann
voru handrit aðeins sýnd í sýningarherbergi
stofnunarinnar eins og áður (þetta íyrir-
komulag hélst til haustsins 2002, þegar
handritasýningin var flutt í Þjóðmenningar-
hús). Fyrsta sýningin í stærra rými nefndist
Miðaldabækur íslands og var opnuð í júní
1997 til þess að fagna lokum handritaaf-
hendingar frá Danmörku; sýningin var hluti
af samvinnuverkefni, Sögn í sjón. Myndlist
og miðaldabœkur íslands, með Norræna
húsinu og Listasafni íslands. Sýningin Þor-
lákstiðir og önnur Skálholtshandrit var opn-
uð í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 31.
maí 1998 og var einnig opin sumarið 1999.
Sýningar erlendis
Gautaborg. Sýningin Island, Nordens Sagoö
var haldin í Röhsska konstslöjdmuseet í
Gautaborg, 14. september til 28. október
1990. Árnastofnun lánaði þangað tvö hand-
rit: SAM I Skarðsbók postulasagna, og AM
343fol. Svalbarðsbók Jónsbókar, auk stækk-
aðra litljósmynda úr handritum.
París - Kaupmannahöfn - Berlín. Nor-
ræna ráðherraráðið stóð fyrir stórri samnor-
rænni sýningu um samskipti norrænna
manna við þjóðirnar sunnar í álfúnni. Sýn-
ingin var útnefnd sem 22. sýning Evrópu-
ráðsins. Hún var fyrst opnuð í Grand Palais í
París 31. mars 1992 og stóð til 13. júlí og
nefndist Les Vikings ... Les Scandinaves et
I ’Europe 800-1200. í Altes Museum, Berlín,
stóð hún 1. september til 15. nóvember undir
heitinu Wikinger, Varáger, Normannen. Die
Skandinavier und Europa 800-1200, og loks
var hún í Nationalmuseet, Kaupmannahöfn,
15. desember til 15. mars 1993, og nefndist
þá Viking og Hvidekrist. Norden og Europa
800-1200. Stofnunin lánaði 6 handrit á
sýninguna: Skarðsárbók Landnámu, AM 104
fol., Islendingabók, AM 113 a fol., Stað-
arhólsbók Grágásar, AM 334 foL, brot úr
Physiologus, AM 673 a I 4to, brot úr Egils
sögu Skallagrímssonar, AM 162 A £ fol- og
brot úr predikarasafni, AM237 a fol.
Þrándheimur. Á norska bókasýningu, sem
haldin var í Nordenfjellske Kunstindustri-
museet í Þrándheimi, dagana 25. september
til 24. október 1993, léði stofnunin 3 handrit.
AM 105 fol., eftirrit Jóns Erlendssonar af
Hauksbók Landnámu, AM 157 h fol. Gunn-
laugs sögu ormstungu og AM 406 a I 4to
Laurentius sögu biskups.
Stofnunin lánaði stækkaðar litljósmyndir
úr handritum á íslandskynningu í Tampere i
Finnlandi í október-nóvember 1990; einnig á
norræna lista- og bókmenntahátíð Les Bor-
éales de Normandie í Caen í Frakklandi i
nóvember 1996.
Viðperðir handrita
Arnastofnun hafði hvorki yfir að ráða við-
gerðastofu né forvörð í þjónustu sinni og
varð að leita út fyrir stofnunina, ef þörf var a
viðgerð handrita. Nicholas Hadgraft og Me,_
vin Jefferson, sérfræðingar hjá The Cam-
bridge Colleges Library Conservation Con-
sortium, gerðu við og bundu inn á árunum
1992-1993 handritin Gl. kgl. sml. 2365 4to,
Konungsbók Eddukvœða, AM 350 f°y
Skarðsbók Jónsbókar, AM 113 a foL, Islend-
ingabók og AM105 fol., eftirrit Jóns Erlends-
sonar af Hauksbók Landnámu. - Veturinn
1996-1997 var Skarðsbók postulasagna,
SAM 1, send til yfirgripsmikillar viðgeiðar
hjá Christopher Clarkson og Hersteini Brynj-
ólfssyni við West Dean College, Chichester a
Englandi; íslensku bankarnir og Samban
sparisjóða kostuðu viðgerð handritsins.
Húsnæði ,
Stofnunin var til húsa í Árnagarði vi^
Suðurgötu. Árið 1991 varð það að samkonný
lagi milli Háskólans og Árnastofnunar, a s
síðarnefnda fengi til umráða hluta aí D'
Háskólans í kjallara Árnagarðs, og bastti p
úr brýnni húsnæðisþörf.