Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 656
654
Árbók Háskóla íslands
Happdrætti Háskóla íslands
Ur ársreikningum 1994-1996
Á þessum árum uxu tekjur Happdrættisins verulega, eftir að rekstur Gullnámunnar komst
í fullan gang. Hann fór raunar hægt af stað. Uppsetning á happdrættisvélunum tók nokkurn
tíma, og neikvæð umræða í þjóðfélaginu fældi fólk nokkuð frá þeim í fyrstu. Happ-
drættisvélarnar voru settar upp á tvenns konar stöðum. Annars vegar voru þær á vínveitinga-
stöðum, þar sem aðgangur takmarkast við ákveðinn aldur og hins vegar í lokuðum spilasölum,
þar sem einnig gilda aldurstakmarkanir. Rekstur flokkahappdrættisins gekk vel á þessum
árum, en nokkur samdráttur varð þó í sölu. Vinna við beinlínukerfið hélt áfram, og voru fyrstu
útstöðvar þess teknar í notkun í árslok 1996. í sambandi við það var haldinn fúndur í Reykja-
vík með öllum umboðsmönnum Happdrættisins, þar sem kynnt var hið nýja fyrirkomulag-
Rekstur Happaþrennunnar var erfiður áfram, en skilaði þó góðum hagnaði. Gerðar voru nýjar
tilraunir með sjónvarpsþætti tengda skafmiðum, en kostnaður við þá var meiri en söluaukn-
ingin. Sveinbjörn Björnsson var stjórnarformaður Happdrættisins þessi ár, og Ragnar
Ingimarsson var forstjóri. Öllum hagnaði af rekstri Happdrættisins var varið til uppbyggmgar
húsa og tækjakosts Háskóla Islands, lögum samkvæmt.
„Hús eru til alls fyrst“ - var rektor Alexander Jóhannessyni tamt að segja. Hér hefúr Bjori
Bjarnason, menntamálaráðherra, tekið, þann 5. janúar 1996, fyrstu skóflustunguna að Nátturu
fræðahúsinu í Vatnsmýrinni. Viðstaddir voru, talið frá vinstri: 1) Ragnar Ingimarsson, H. H- ■>
2) Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, 3) Sveinbjörn Björnsson, rektor, 4) Gunnstei
Guðmundsson, Rafhönnun, 5) Sigurjón Björnsson, H. í., 6) Arinbjörn Friðriksson,
hönnun, 7) Sigurður Rúnar Ragnarsson, H. í., 8) Hjalti Sigmundsson, Línuhönnun, 9) Þra
Sigurðsson, Framkvæmdasýslu ríkisins, 10)Eggert Þór Steinþórsson, H. í., 11) Brynjoltu
Sigurðsson, H. í., 12) Stefán Arnórsson, H. í., 13) Guðmundur E. Sigvaldason, Norr®a
eldfjallastöðinni, 14) ónefndur, 15)Einar Sverrisson, fjármálaráðuneytinu, 16) As
Geirsdóttir, H. í., 17) Jón G. Friðjónsson, H. í., 18) Örn Helgason, H. í., 19) Þóra í• ^
Þórhallsdóttir, H. í., 20) Torben K. Rasmussen, forstjóri Norræna Hússins, 21) Gísli
Gíslason, H. í., 22) ónefndur, 23) Helgi Björnsson, H. L, 24) Bryndís Brandsdóttir, H. ^
25) Guðmundur Eggertsson, H. 1. Fleiri voru viðstaddir athöfnina en hér sjást, þ. á m. ar 1
hússins, Maggi Jónsson.