Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 428
426
Árbók Háskóla íslands
átti forstöðumaður Norrænu eldfjallastöðvar-
innar sæti í nefnd um eldfjallarannsóknir
(European Volcanology Project, EVOP) á
vegum Evrópska vísindasjóðsins. Árið 1991
var bætt við tækjabúnaði til að rannsaka jarð-
skorpuhreyfingar. Þá voru keypt fyrstu tækin
til nákvæmra GPS-landmælinga á íslandi.
Arið 1993 var í fyrsta sinn gerður þriggja
ára samningur á milli Norrænu eldljalla-
stöðvarinnar og Norrænu ráðherranefndar-
innar um umfang starfsemi eldfjallastöðvar-
innar, og náði samningurinn þá til áranna
1993-1995. Grunnfjárveiting frá ráðherra-
nefndinni nam 58,9 m. ísl. kr. árið 1993. Þá
fengust einnig 3 m. kr. frá íslenskum stjórn-
völdum til þátttöku í evrópsku samstarfs-
verkefni um eldfjallarannsóknir á Azoreyj-
um, og í kjölfar þess urðu talsverð tengsl við
rannsóknarhóp hjá eldfjallasetri Azoreyja.
Aukafjárveiting fékkst frá Norrænu ráð-
herranefndinni til að kosta styrkþega við
stofnunina frá Eistlandi. Árið 1994 hóf Eld-
fjallastöðin rannsóknir á iskjörnum frá
Grænlandi (Greenland lce Core Project), og
var hún þar í samstarfi við European Center
for Geodynamics and Seismology. Árið 1995
stóð stofnunin fyrst fyrir norrænum sumar-
skóla styrktum af NorFA (Nordisk Forsker-
uddanningsakademi). Skólinn gafst vel og
var upphafið af röð sumarskóla, sem Nor-
ræna eldfjallastöðin stóð fyrir. Frá og með
október 1995 fékk stofnunin árlega fjárveit-
ingu beint af íslenskum fjárlögum til að kosta
stöðu eins sérfræðings. Ráðinn var sérfræð-
ingur í jarðskorpuhreyfingum, og efldust þar
með þess háttar rannsóknir á stofnuninni.
Nýr samningur var gerður á milli Eld-
fjallastöðvarinnar og Norrænu ráðherra-
nefndarinnar, og náði hann til tímabilsins
1996-1998. Á fyrsta ári þessa tímabils flutti
stofnunin á Grensásvegi 50, en húsnæði í
Jarðfræðahúsi var þá orðið of lítið. Fjárveit-
ingar komu frá íslenska ríkinu í viðbót við
norrænar fjárveitingar. Samanlagðar árstekj-
ur urðu þá um 87 m. ísl. kr., þar af komu um
58 m. kr. frá ráðherranefndinni. Árið 1997
var starfsemi Norrænu eldljallastöðvarinnar í
hámarki, og þá tókst að fá uni 50 m. kr. í
styrkjum til kaupa á massagreini til rann-
sókna á samsætuhlutfalli bergtegunda.
Freysteinn Sigmundsson.
Orðabók Háskólans
1990-1994
Inngangur
A árunum 1990-1994 var starfsemi Orða-
bókar Háskólans með líku sniði og áður. Verk-
efnum þokaði vel áfram, og tekist var á við ný
(sjá síðar). Samstarf hélt áfram við IBM á Is-
landi og síðar Nýherja hf., og stofnað var til
samvinnu Orðabókarinnar og utanríkisráðu-
neytisins um EB-þýðingar (sjá síðar).
Starfsmenn
Eins og fram hefur komið starfaði Orða-
bókin í tveimur og síðar þremur deildum á urn-
ræddu árabili. Fjöldi starfsmanna var því breyti-
legur. Árin 1992 og 1993 voru ráðnir sumar-
starfsmenn til innsláttarverkefna. Þann 1. jan-
úar 1993 tók utanríkisráðuneytið sjálft við starf-
semi þýðingardeildar. Starfshlutfall var breyti-
legt, frá 40%-100%. Jörgen Pind var forstöðu-
maðurOrðabókarHáskólansfrá l.janúar 1990
til 31. desember 1993, en Guðrún Kvaran tók
við forstöðumannsstöðu 1. janúar 1994. Kjör-
tímabil stjómar Orðabókarinnar rann út t
október 1990. Var hún þá endurkjörin til fjög'
urra ára, en hana skipuðu: Jón G. Friðjónsson,
stjómarformaður, Jón Hilmar Jónsson, Jörgen
Pind, Kristján Ámason og Svavar Sigmunds-
son. í október 1994 var kosið í stjóm að nýju-
Hana skipa: Eiríkur Rögnvaldsson, stjórnarfor-
maður, Guðrún Kvaran, Guðvarður Már Gunn-
laugsson, Gunnlaugur Ingólfsson og Knstjan
Ámason. Staða sérfræðings við Orðabókina. va*
auglýst laus til umsóknar á árinu 1990. Asta
Svavarsdóttir var ráðinn sérfræðingur I • águst
sama ár. Hún hlaut framgang í stöðu fræði-
manns í ágúst 1994. Guðrún Kvaran hlaut ffam-
gang í stöðu vísindamanns í mars 1993.
Húsnæðismál
Orðabók Háskólans var til húsa í Árna
garði frá árinu 1969 til síðari hluta árs 199
Þá var stofnunin flutt á Neshaga 16, þar sun1
hún fékk til umráða helming annarrar hæðar
og alla þriðju hæðina. Við þetta gjörbreytt|S
vinnuaðstaðan. Þýðingardeild IBM/Nýhetja
var lengst af til húsa í Sigtúni 3, en 19
fluttist hún einnig á Neshaga. EB-þýðmS^
deildin var fyrst í Árnagarði, en fluttist flj°
lega á Klapparstíg 25-27.