Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 566
564
Árbók Háskóla íslands
Fjarkönnunarmælingar og úrvinnsla.
Starfslið: Ásmundur Eiríksson, Jón Atli
Benediktsson, Kolbeinn Árnason og Sigfus
Björnsson.
1) Sigfus Bjömsson, Kolbeinn Árnason. State of
the art of aerial thermography in Iceland. -
Thermography of Geothermal Sensing and
Imaging Diagnostic Applications, 17-21 April,
Orlando, Florida, 1995.
2) Sigfús Björnsson, Ásmundur Eiríksson, Kol-
beinn Árnason. Developments in lmage Re-
cording and Data Processing Systems for
Remote Sensing in Iceland. EARSel. Workshop
and Symposium, Graz, Austria, 2 - 5 July 1991,
Published in Symposium Proceedings.
3) Kolbeinn Árnason, Sigfús Bjömsson, Ás-
mundur Eiríksson. Some Recent Airhorne Re-
mote Sensing Activities in lceland. EARSel.
Workshop and Symposium, Graz, Austria 2 -5
July, 1991.
4) Ásmundur Eiríksson, Kolbeinn Ámason, Sig-
fús Björnsson: Fjarkönnunarmœlingar Upplýs-
inga- og merkjafrœðistofu 1990-1993. Yfir-
litskýrsla UMH F93010, 1993.
5) Jón A. Benediktsson, Úrvinnsla Landsat-
gagna. Verkefni til lokaprófs í rafmagns-
verkfræði 1984. Leiðbeinandi: Sigfús Björns-
son.
III. Rannsóknar- og þróunarverkefni
fyrir fiskiðnaðinn
Þróun sjálfvirkra aðferða til greiningar á
ormum og beinum í fiskflökum (1986-
1996). Starfslið: Sigfús Björnsson og ýmsir
sérfræðingar UMH. Samstarf: Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, íslenskar sjávarafurðir,
Sölusamtök íslenskra fiskframleiðenda’
Raunvísindastofnun Háskólas (RH), Messer-
schmitt-Bölkow-Blohm (MBB), Múnchen.
Fjármögnun: RANNÍS.
Að tilstuðlan fjármagnandans komu tveir
rannsóknaraðilar Háskólans að þessu verki í
upphafi, Raunvísindastofnun Háskólans (RH)
°g Upplýsinga- og merkjafræðistofa (UMH).
RH hafði kannað lausn á „hringorma-
vandamálinu" með ljóstækni (Fiskiljósfræði
og hringormaleit, Jón Pétursson, Fisk-
vinnslan, 1984, 1. tbl., bls. 11-15). Á
grundvelli þess var áhersla lögð á að þróa
lausn, sem byggðist á ljóstækni og fengin til
liðs erlend rannsóknarstofa (MBB) með
sérþekkingu í leysum. Þar eð markmiðið var
að þróa sjálfvirkt og afkastamikið grein-
ingartæki, var litið til þess, að UMH hafði,
þegar hér var komið sögu auk myndmerkja-
fræðinnar, sem hún lagði til, þróað og beitt
lyrir sig ljósskönnum í fjarkönnunarmælingu
í hartnær áratug (frá stofnun hennar 1976).
Á daginn kom, að verkefnið reyndist af
hennar hálfu meira þróunarverkefni í leysis-
skönnun (sjá ScanLas-verkefnið) en >
myndmerkjafræði. Önnur verkefni unnin á
UMH á þessum tíma (s. s. flakasniðill, ljós-
vog, gæðaflokkari fyrir saltfisk og flök o. fl-)
nutu góðs af þessu í ríkara mæli en sjálft
ormaverkefnið. Þó að sú tækni, sem hér var
þróuð, leyfi afkastamikla og hagkvæma leið
til að greina hringorma og bein í yfirborði
fiskflaka, er staðreynd málsins sú, að djúpt >
ógegnsæju efni eins og fiskholdi „sjást
þessir hlutir ekki með hefðbundinni ljós-
tækni, þó að leysisljósi sé beitt. Undir lok
þessa tímabils kannaði því UMH á eigin
spýtur tvær aðrar leiðir, femtó-tækni og út-
hljóðstækni, sem hér er skýrt frá síðar, og eru
þær vænlegri, einkum sú síðari. En ríflega
fjármögnun þyrfti til, ef lengra ætti að halda.
Auk skanntækninnar, sem þróuð var og
sagt er frá í verkefninu ScanLas, voru
stafrænar síur þróaðar og aðlagaðar að
vandamálinu. Beitt var línulegri og ólínulegr*
síun til að draga fram og skerpa þá mynd-
þætti, sem orsakast af beinum og hring'
ormum í fiskflökum. í myndþáttagreiningu
var tauganetum beitt til samanburðar hefð-
bundnum aðferðum, og lofa þær fyrri góðu,
ef unnt væri með sérhæfðri reiknitækni a
auka vinnsluhraða þeirra til muna. Tvenns
konar aðferðum var beitt til að „mynda
(skanna) fisk, annars vegar var nuntið geg»
skin leysisgeislans, en hins vegar endurkas
hans frá fiskholdinu, og hafði hvor Ieiðin
sína kosti. Beitt var leysum á mismunandj
öldulengdum, allt frá útíjólubláu yf>r 1
innrautt, og augljós munur var á, hvort bein
eða ormar áttu í hlut. Sú tækni, sem hér va
þróuð, hefur marga góða kosti fyrl
fiskvinnslu (sbr. önnur skyld verkefni) og
gæti nýst til grófrar hraðvirkrar flokkuna
fiskflaka, hvað hringorma- og heina v',
varðar, en getur ekki tryggt tæmandi le>
þykkum fiskflökum.