Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 238
236
Árbók Háskóla íslands
1996 sem 30 eininga aukagrein til B. A.
prófs. Til þess að svo gæti orðið, yrði bætt
við tveimur 5 eininga skyldunámskeiðum, en
að öðru leyti samanstæði námið af þeim
námskeiðum, sem þegar væru kennd. Lagt
var til, að námið yrði samstarfsverkefni
félagsvísinda- og heimspekideildar, en stjórn
námsins yrði í höndum sérstakrar stjórnar-
nefndar. Tillögurnar voru ræddar ítarlega, og
svaraði Guðný fyrirspurnum og athuga-
semdum, sem íram komu. Viðbótarkostnaður
vegna þessa náms var áætlaður rúmlega ein
m. kr. Málinu var vísað til heimspekideildar
og félagsvísindadeildar til umsagnar.
29.06.95: Fyrir fundinum lágu bréf frá heim-
spekideild og félagsvísindadeild, dags. 29. þ.
m., um samþykki þessara deilda, að hafin
yrði kennsla í kvennafræðum við Háskóla
Islands, og var það í samræmi við tillögu
nefndar háskólaráðs, dags. í mars 1995.
Námið yrði aukagrein og kennslan bundin
því skilyrði, að íjárveiting fengist.
Kennsla í mannfræði og fornleifafræði
10.10.96: Lagt fram bréf Gísla Pálssonar,
prófessors, til rektors, dags. 30. f. m. Reif-
aðar eru hugmyndir um að heija kennslu í
fornleifafræði innan mannfræði- og þjóð-
fræðiskorar félagsvísindadeildar.
Ljósmæðranám
24.11.94: Lagt fram bréf mrn., dags. 14. þ.
m. Send skýrsla nefndar, sem skipuð var 29.
nóvember 1993, um flutning ljósmæðranáms
frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
til menntamálaráðuneytisins. Nefndin leggur
til, að menntun ljósmæðra fari fram innan
vébanda námsbrautar í hjúkrunarfræði við
Háskóla Islands. Þess er óskað, að Háskóli
íslands tilnefni fulltrúa til að fjalla um til-
lögur nefndarinnar. Tilnefnd voru Sóley S.
Bender, lektor, Reynir Tómas Geirsson, pró-
fessor, og Gunnlaugur H. Jónsson, háskóla-
ritari.
Nám sem hlutastarf
16,04.97: Með bréfi, dags. 11. þ. m., lagði
raunvísindadeild fram tillögu um reglur um
nám sem hlutastarf. Samkvæmt þeim getur
nemandi, sem hefur til þess gildar ástæður,
sótt um að fá að innritast í námið sem hluta-
starf. Tillagan var samþykkt.
IV. Fjármál og byggingamál
Byggingamál
23.02.95: Ragnar Ingimarsson, varaformaður
Starfsnefndar um nýbyggingar, kynnti drög
að framkvæmdaáætlun fyrir árið 1995.
Áætlað framlag H. H. j. er 310 m. kr., og auk
þess er reiknað með 20 m. kr. framlagi ríkis-
sjóðs vegna nýbyggingar fyrir Norrænu eld-
fjallastöðina.
Áformað er að verja 106 m. kr. til við-
halds húsa og lóða, 60 m. kr. til tækjakaupa
og viðhalds, endurnýjunar og aukningar a
húsgögnum og húsnæði, 129 m. kr. til
nýbygginga og 50 m. kr. til afborgana af
lánum vegna eldri framkvæmda. Stærsta ein-
staka nýframkvæmdin er Náttúrufræðahus,
en til þess er áætlað að verja 70 m. kr. Fram-
kvæmdaáætlunin í heild nemur 345 m. kr., en
á síðastliðnu ári nam hún 365 m. kr. Drög að
framkvæmdaáætlun voru rædd.
09.03.95: Framkvæmdaáætlun ársins 1995
var tekin til umræðu á ný. Inn á fundinn kom
Ragnar Ingimarsson, varaformaður Starfs-
nefndar um nýbyggingar. Framkvæmdaáætl-
unin var samþykkt með þeirri breytingu, að 5
m. kr. voru færðar frá liðnum „Viðhald, end-
urnýjun og aukning á húsgögnum og búnaði
yfir í liðinn „Tækjakaup".
14.03.96: Brynjólfur Sigurðsson, formaður
Byggingarnefndar, gerði grein fyrir drögum
að framkvæmdaáætlun 1996-2001. Áætlað
var, að árlegt framlag Happdrættis Háskóla
íslands yröi 310-312 m. kr. Áformað var a
árinu 1996 að verja 80 m. kr. til viðhalds, 19
m. kr. til tækjakaupa og húsbúnaðar, 54 m-
til afborgana af lánum, 180 m. kr. til nýfratU'
kvæmda og 29 m. kr. í annað. Auk frainlags
frá H. H. í. var áætlað framlag frá ríkissjóðt
40 m. kr. og frá Rannsóknarráði íslands 10 m-
kr., þannig að alls yrðu til ráðstöfunar 362 m-
kr. á árinu 1996. Framkvæmdaáætlunin var
rædd ítarlega og einkum sá vandi, sem blasú
við, vegna þess að H. H. í. stæði ekki undir
því að fjármagna byggingu Náttúrufræðahuss
með eðlilegum framkvæmdahraða jafnlran1
því að standa undir viðhaldi húsa, afborg
unum af lánum og kaupum á tækjum og l,uS
næði. Málinu var frestað til næsta fundar.
28.03.96: Brynjólfur Sigurðsson, formaður
Byggingarnefndar, kynnti breytt drög a
framkvæmdaáætlun fyrir árið 1996 og næs u