Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 264
262
Árbók Háskóla íslands
árið 1995. Jafnframt var ákveðið að skipa
nefnd, sem ræddi við Félag háskólakennara
um úthlutunarreglur Vinnumatssjóðs.
06.04.95: Rektor bar fram tillögu, um að
skipuð yrði skoðunarnefnd vinnumatskerfis,
og að nefndina skipuðu Ástráður Eysteins-
son, prófessor, formaður Vísindanefndar, og
Jakob Yngvason, prófessor, og yrðu þeir full-
trúar háskólaráðs, en fulltrúar Félags há-
skólakennara yrðu Gísli Pálsson, prófessor,
og Guðrún Pétursdóttir, dósent.
Vinnureglur um aukaþóknun fyrir verk-
efni
08.08,96: Fram voru lagðar tillögur Vísinda-
nefndar um endurskoðun vinnureglna um
aukaþóknun fyrir umfangsmikið eða sérlega
athyglisvert verkefni. Málið var rætt og því
frestað.
26.09.96 og 24.10.96: Tekin voru fyrir drög
að vinnureglum Vísindanefndar um launa-
auka. Inn á fundinn kom Ástráður Eysteins-
son, formaður Vísindanefndar, og gerði grein
fyrir drögunum. Einnig var lagt fram bréf frá
Birni Kristinssyni, forseta verkfræðideildar,
þar sem hann rökstyður þá kröfu sína, að
umsagnaraðilar njóti ekki nafnleyndar. Málið
var rætt ítarlega. Borin var upp breytingartil-
laga frá Birni Kristinssyni, sem orðast svo:
„Vísindanefnd verði gert skylt að veita
umsækjanda allar upplýsingar sem varða
meðferð umsóknar hans“. Breytingartillagan
var felld með átta atkvæðum gegn einu. Að
lokum voru vinnureglurnar samþykktar með
níu atkvæðum gegn einu. Páll Skúlason, for-
seti heimspekideildar, sat hjá við afgreiðslu
málsins og óskaði eftir, að það yrði bókað.
VII. Málefni stúdenta
Aðstoð við fatlaða
23.02.95: Á fund komu dr. Sue Kroeger frá
Minnesotaháskóla og Ásta Kr. Ragnarsdóttir,
forstöðumaður Námsráðgjafar, og kynntu
nám og aðbúnað fatlaðra við Háskóla íslands.
Sue nefndi einkum tvö atriði: 1) Skipulag
aðstoðar við fatlaða og 2) skipulag bygginga
og háskólasvæðisins með tilliti til fatlaðra.
Aðstoð við háskólanám fatlaðra var rædd.
01.06.95 og 15.06.95: Ásta Kr. Ragnarsdóttir
gerði grein fyrir tillögu að mótun stefnu í mál-
efnum latlaðra stúdenta við Háskóla íslands.
Tillögurnar voru unnar af dr. Sue Kroeger við
Minnesotaháskóla, en hún var gestur Háskóla
Islands á vormisseri. Tillögurnar voru ræddar
og samþykktar samhljóða með nokkrum
breytingum. Rektor og framkvæmdastjóra
kennslusviðs var falið að ganga frá endan-
legum texta.
05.10,95: Fram var lögð samþykkt háskóla-
ráðs um málefni fatlaðra stúdenta við Háskóla
Islands.
16.11,95: Ásta Kr. Ragnarsdóttir kom á fund
og kynnti málefni fatlaðra stúdenta við
Háskólann og dreifði gögnum þar um. Frani
kom, að 52 nemendur Háskólans áttu við
fötlun að stríða, og að samtals væru 262 fatl-
aðir nemendur við nám í framhaldsskólum á
höfuðborgarsvæðinu. Því mætti búast við
íjölgun fatlaðra nemenda við Háskólann á
næstu árum. Ásta gerði grein íyrir helstu
úrræðum, sem í boði væru íyrir fatlaða við
skólann og hversu margbreytileg fötlun nem-
enda gæti verið. Málið var rætt vítt og breitt og
fyrirspurnum svarað. Fram komu ábendingar
um skilmála, sem voru í uppkasti að samning1
á milli Háskólans og fatlaðs stúdents.
21.11.96: Áætlun um endurbætur á húsnasði
og lóð Háskólans vegna fatlaðra var til um-
ljöllunar, og Ragnar Ingimarsson, varafor-
maður Byggingarnefndar, Maggi Jónsson,
arkitekt, og Asta Kr. Ragnarsdóttir, forstöðu-
maður Námsráðgjafar, komu á fund. MagS1
Jónsson skýrði frá núverandi ástandi hus-
næðis og lóðar Háskólans með tilliti ti*
aðgengis íyrir fatlaða, og Ásta gerði grelU
fyrir þeim vandamálum, sem fylgdu því °ð
flytja starfsemi Námsráðgjafar í kjallara bak-
húss Aðalbyggingar Háskólans. Námsráðgjo1
er ætlað að hafa umsjón með málefnum fa“'
aðra, en hreyfihamlaðir komast ekki að fyrir'
huguðu húsnæði. Ásta kynnti einnig áskorun
til rektors og háskólaráðs, sem lá fyrir funo-
inum. Ragnar tjallaði síðan um vandkvasð1 a
þeirri framkvæmd, sem óskað væri eftir-
Miklar umræður urðu um málið. Fram kom-
að lítið hefði verið unnið eftir samþykk
háskólaráðs um málefni fatlaðra stúdenta fra
því í júní 1995. Björn Björnsson, forseti guð'
fræðideildar, bar upp eftirfarandi tillögu'
„Háskólaráð samþykkir, að gerð verði kostn
aðaráætlun vegna aðgengis og aðstöðu hrey11
hamlaðra í Aðalbyggingu, sérstaklega veglia
Námsráðgjafar, og að sótt verði um styrk 1