Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 577
575
jjannsóknar- og þjónustustofnanir___________
Gagnaþjöppun heilarita: Markmið verk-
efnisins var að þjappa heilaritum, sem safnað
var með NERVUS búnaði Taugagreiningar
hf Verkefnið fól í sér þróun á hugbúnaði,
sem notaður var til að þjappa heilaritum án
nokkurs taps. Niðurstöður voru jákvæðar.
Bjarni Ólason, Jóhannes R. Sveinsson og Jón
Atli Benediktsson unnu verkið í samstarfi
við Taugagreiningu hf.
Ilokkun svefngagna: í þessu verkefni var
unniö að flokkun heilarita og ýmissa annarra
Sagna, sem safnað var með Emblu-búnaði
Flögu hf. Notast var við hefðbundnar flokk-
unaraðferðir, marglindaflokkunaraðferðir og
v>'avelet-greiningu. Guðmundur Sævarsson,
Jóhannes R. Sveinsson og Jón Atli Bene-
öiktsson unnu verkið i samstarfi við fyrir-
tækið Flögu. Niðurstöður birtust á þingi
‘EEE, Engineering in Medicine and Biology
Society, 19"> Annual International Confer-
ence, 30. október - 2. nóvember 1997.
^nnað: Fluttir voru fyrirlestrar um greiningu
°8 uppbyggingu rása, merkja- og upplýsinga-
frasði, tölvugrafík og hönnun með tölvum,
merki og kerfi, líkindaaðferðir í greiningu
uterkja og kerfa, mynsturgreiningu, fjarkönn-
Un og úrvinnslu fjarkönnunargagna og tauga-
uetsreikna í tölvunarfræði. J. A. B. var for-
utaður Technical Committee on Data Fusion
Unstitute of Electrical and Electronics, Inc.
: EEE), Geoscience and Remote Sensing Soc-
lely) 1996-1998; í Vísindanefnd háskólaráðs
rá 1994. Formaður forvinnuhóps mennta-
utalaráðuneytisins um tækni- og upplýsinga-
urennt við endurskipulagningu námsskráa í
Srunn- og framhaldsskólum 1997. Formaður
rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar 1993-
94 0g frá 1997. j úthlutunarnefnd að-
^oðarmannasjóðs Háskóla íslands frá 1996. í
,a8ráði RANNÍS um umhverfis- og nátt-
rrruvísindi frá 1996. Hvatningarverðlaun
‘'■annsóknarráðs íslands 1997. Fellow, Austr-
a 'an Defence Force Academy (ADFA), Uni-
veristy of New South Wales (1997). Best Paper
. afd - Novel Engineering Applications,
asamt Jóhannesi R. Sveinssyni, Okan K. Ersoy
?6 Ehilip H. Swain fyrir greinina Wavelet Pac-
?J pQi'allel Consensual Neural Networks á
ra°stefnunni ANNIE ‘95 í St. Louis, MO.
Varma- og straumfræðistofa
Inngangur
Allt frá árinu 1986 hafa Norðurlönd haft
með sér nána og góða samvinnu um orkurann-
sóknir. Norræna ráðherranefndin beitti sér fyr-
ir því, að Norðurlöndin veittu árlega fé í sam-
eiginíegar rannsóknir á 5 fagsviðum. Megintil-
gangurinn var að efla grundvallarfæmi á þessu
sviði í háskólum og öðmm vísindalegum
menntastofhunum á Norðurlöndum og að
styrkja norrænt samstarf í orkurannsóknum og
hreyfanleika rannsóknarmanna á milli landa.
Eitt þessara sviða er hitaveitur, og hefur Valdi-
mar K. Jónsson verið fulltrúi íslands í fagráði
hitaveituhópsins, sem kallast Energifleksible
varmesystem (áður Fjernvarme). Varma- og
straumfræðistofa hefur einnig átt fulltrúa í fag-
hópi, sem nefnist Prosessintegrasjon. Þetta
samstarf hefur þegar eflt kennslu og hitaveitu-
rannsóknir við tækniháskóla á Norðurlöndum,
og hefur þáttur íslendinga verið þar mikill. Af
27 milljónum norskra kr. styrkframlagi til hita-
veiturannsókna á árunum 1986-1993 hafa ís-
lenskir aðilar fengið til rannsóknarstarfa hér á
landi og í Danmörku og Svíþjóð um 4 milljón-
ir norskra kr. eða um 15%, og ber þá að hafa í
huga, að framlag íslenska ríkisins til þessa nor-
ræna samstarfs er um 1 % af heildarframlaginu.
Þetta samnorræna starf hefiir nú verið fram-
lengttil ársins 1998.
Á undanfornum misserum hefur komið vel
þjálfað fólk til starfa á íslandi erlendis frá, fólk
með lic. tech. nám, doktorsnám eða sambæri-
lega menntun, og sem hefiir sérhæft sig í hita-
veiturannsóknum. Á árunum 1986-1993 starf-
aði Páll Valdimarsson, verkfræðingur, í sam-
vinnu við Hitaveitu Akureyrar og með styrki
frá Rannsóknaráði og Vísindasjóði svo til ein-
göngu að gerð hermilíkana og að rannsóknum
á hegðun hitaveitna. Hann varði doktorsntgerð
um þetta efni við verkfræðideild Háskólans í
ágúst 1993, og var hann fyrstur manna til að
verja doktorsritgerð við þá deild.
Ýmsir í verkfræðideild hafa komið að
rannsóknum á orkumálum svo sem kennar-
arnir Anna Soffía Hauksdóttir, Jónas Elías-
son, Valdimar K. Jónsson, Þorbjörn Karlsson
og Þorgeir Pálsson. Þessir aðilar hafa nú
myndað með sér samstarfshóp um nýtingu
jarðvarma, SAMVARM-hópinn, ásamt Páli
Jenssyni og Magnúsi Þór Jónssyni, sem