Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 568
566
Árbók Háskóla íslands
Myndþáttagreining í Ijósdreifandi lítt
gegnsæjum efnum með „femto“-tækni,
UMH 96026,1996. Starfslið: Sigfús Björns-
son, Pálmi R. Pétursson. Samstarf: DASA
(áður MBB) Míinchen, ARP Strasbourg.
Rannsakaðar voru mæliaðferðir, sem
þekkjast í svonefndri „femto“-eðlisfræði
(vinnur á tímaskalanum 1015 sek.) með
myndþáttagreiningu í huga í ljósdreifandi lítt
gegnsæjum efnum eins og fiskholdi. Unnið
er með mjög stuttum leysisgeislapúlsum, og
Ijósnemanum haldið opnum fyrir fyrstu
ljóseindirnar (fótónur), sem berast í gegnum
efnið frá hverjum ljóspúlsi. Eínið er gegnsætt
fyrir þessar fyrstu Ijóseindir, sem bera með
sér myndupplýsingar reglubundið. Lokað er
á Ijósið, áður en að það nær að dreifast og
tvístrast óreglubundið í efninu, sem gerir það
ógegnsætt. Hér var um fræðilega vinnu að
ræða. Fyrirhugað var að sannreyna þær
væntingar, sem hún gaf með tilraunum í
leigðri aðstöðu hjá ARP, en fallið frá því
sökum kostnaðar. Hér er um eina af mörgum
leiðum að ræða, sem rannsakaðar voru í
„hringormaverkefninu". Þó að „femto“-
tæknin sé mjög vænleg til árangurs (sbr.
nýlegar niðurstöður við brjóstaskönnun),
yrði hún að líkindum ekki raunhæf lausn í
fiskiðnaði sökum kostnaðar. Það hafði áhrif
á, að ekki var farið lengra á þessari braut.
Mælingar og greining hringorma og beina
í fiskflökun með úthljóðsskönnun (hljóð-
sjá) (1994-1996), UMH 96027,1996. Starfs-
lið. Sigfús Björnsson, Hákon Guðbjartsson,
Rúnar S. Svavarsson og Gunnar I. Bald-
vinsson. Samstarf: Hannes Hafsteinsson,
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Coldwater
Seafood Co., sem fjármögnuðu verkið ásamt
UMH.
Gerðar voru mælingar á fiskflökum með
hljóðsjá í leigðri aðstöðu hjá erlendum fram-
leiðanda úthljóðssmásjáa (ultrasonic micro-
scopes). Greining beina reyndist óbrigðul og
greining orma reyndist mun betri en með
ljóstækni, þó að engri myndgreiningartækni
væri beitt á þessu frumstigi tilrauna. Óleyst
vandamál var, hvernig unnt væri að hanna
sjálfvirkt afkastamikið og hagkvæmt grein-
ingartæki með þessari tækni; útfærsla út-
hljóðssmásjárinnar er í því skyni ónothæf. Til
að auka skilning á viðfangsefninu og áætla
kostnað við þróun slíks búnaðar, voru á
UMH á eigin spýtur, þótt reynsla á þessu
sviði væri takmörkuð, hannaðar hljóðlinsur
með reiknilíkani og frumgerð af linsukambi
smíðuð, sem hugsuð var sem grunneining
í hljóðskanna fyrir færiband. Kostnaðar-
áætlunin mætti dræmum áhuga hugsanlegra
fjármagnenda, og að svo stöddu er áframhald
á þessu verkefni ekki fyrirhugað.
1) Hákon Guðbjartsson. Samhliða söfnun hljóö-
mynda. Verkefni til Iokaprófs í rafmagns-
verkfræði 1990. Leiðbeinandi: Sigfús Björns-
son.
2) Rúnar S. Svavarsson. Hljóðsjá byggð a
sveipuðum sendipúlsum. Verkefni til lokaprúfs
í rafmagnsverkfræði 1982. Leiðbeinandi: Sig-
fús Björnsson.
3) Gunnar I. Baldvinsson. Merkjafrœði íhljóðsjá.
Verkefni til lokaprófs í rafmagnsverkfrsði
1980. Leiðbeinandi: Sigfús Bjömsson.
Sjálfvirk talgreining í fiskiðnaði (1993-
1996), UMH 96015, 1996. Starfslið: Sigfús
Björnsson, Stefnir Skúlason, Vilmundur
Pálmason, Einar S. Jónsson, Elías Bjarnason
og Þorgeir Sigurðsson. Samstarf: Þorsteinn
Hauksson, tónlistarmaður, Póls rafeindavörur
hf. Fjármögnun, RANNÍS.
Markmið verkefnisins var að þróa trausta
aðferð til talgreiningar lykilorða, sem notu
eru í fiskiðnaði og algengt er, að fólk kalli sin
á milli til að spara handtök og spor. Þróaður
var sjálfvirkur búnaður, sem skilur þessi orð,
þegar þau eru kölluð upp eða sögð vi
búnaðinn.
1) Vilmundur Pálmason. Hljóðgervill, sem la’
Verkefni til lokaprófs í rafmagnsverkfr® 1
1993. Leiðbeinandi: Sigfús Björnsson.
2) Einar S. Jónsson. Fourier-hljóðgervill. v&'
efni til lokaprófs í rafmagnsverkfræði 19
Leiðbeinandi: Sigfús Björnsson.
3) Elías Bjarnason. Talgervill fyrir heyrnaskeitm
Verkefni til lokaprófs í rafmagnsverkfræ
1984. Leiðbeinandi: Sigfús Björnsson.
4) Þorgeir Sigurðsson. Talvélar (voice synthest ,
analysis). Verkefni til lokaprófs í rafmagn
verkfræði 1981. Leiðbeinandi: Sigfús Bjorn
son.