Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 381
379
jjgnnsóknar- oa þ|ónustustofnanir
• Þjóðarbókhlöðu, næst inngangi, er
nokkur hundruð fermetra svæði, sem halda
má opnu, eftir að sjálfu bókasafninu hefur
Ver'ð lokað. Rými þetta er mjög sveigjanlegt
°8 er að grunneiningum til sýningarrými, ráð-
stefnusalur vel búinn tækjum, veitingastofa
°8 í tengslum við hana spilda til hvíldar og
laðalesturs, svo og vaktað fatahengi ásamt
'Wli sölubúð. Þrátt fyrir litla almenna kynn-
lngu á þessum kostum hafa, síðan safnið var
°Pnað, farið fram í þessu rými ýmsir
skemmtilegir atburðir, sumir af því tagi, sem
l s ekki var vænst fyrirfram svo sem fjölþjóð-
egt skákmót ásamt sýningarhaldi því tengdu.
%nningar- og útgáfustarf
Aður hefur verið minnst á íslenska bóka-
s ~'á, hina árlegu útgáfu skrár um íslensk rit,
sv° og tímaritið Rilmennt, sem er eins konar
ramhald fyrri Árbókar. Vorið 1996 kom út
skráin Handritasafn Landsbókasafns, IV
nukabindi, og árinu 1996 tengist einnig af
sýgulegum ástæðum vegleg útgáfa Passíu-
.'"anna, þar sem m. a. er birt ljósprentun
e,gmhandarrits Hallgríms Péturssonar, sem
meðal mestu dýrgripa safnsins og nýlega
efur verið gert við fyrir styrk úr Þjóðhátíð-
arsjóði.
. Fjöldi bæklinga hefúr verið gefinn út í
einföldu formi til leiðbeiningar fyrir safn-
kcsti og vegna notendafræðslu, og starfs-
ntenn safnsins hafa birt nokkrar greinar í
°ðum og tímaritum um safnið eða skylt
. ni. Þá hafa einnig komið út allmargir bækl-
mgar tengdir sýningum í safninu.
Sumarið 1995 voru sjö vikulegir þættir
. safnið í Ríkisútvarpinu á Rás 1 og sautján
1 ulegir þættir sumarið 1996 í tilefni af 150
,a afmæli handritadeildar.
l a^nið hefur komið upp heimasíðu á ver-
arvefnum, og á vefnum er einnig að finna
ynningartexta um safnið, sem svarar til
-'nnar blaðsíðu í bók, sem kom jafnframt út
ensku og kínversku.
^anistarf við önnur bókasöfn og beiting
ynrar upplýsingatækni
Atta bókasöfn eiga fúlla aðild að Gegni og
hann sem eigið bókasafnskerfi. Auk
^ess er í Gegni haldið uppi samskrá bóka,
eni um tuttugu bókasöfh eru þátttakendur í.
Miklu fleiri söfn taka þátt í samskrá um
erlend tímarit í Gegni, eða um sextíu talsins.
Safnið kappkostar eins og áður segir að
skrá inn í Gegni íslensk rit sem allra fyrst
eftir útkomu þeirra, sem er mjög mikilsvert
fyrir önnur bókasöfn, og safnið stuðlar eftir
föngum að samræmingu starfshátta í ís-
lenskum bókasöfnum. Þá er safnið og lands-
miðstöð fyrir millisafnalán.
Stefnt er að því, að bókasafnið hafi for-
ystu meðal safna hérlendis um notkun upp-
lýsingatækni og ráðist í tilraunir eða verkefni
á því sviði, gjarnan í samstarfi við erlend
bókasöfn. Þannig lauk bókasafnið snemma á
árinu 1997 við það verkefni að færa í staf-
rænt form um 220 gömul íslandskort og gera
þau aðgengileg á Internetinu, ásamt skrán-
ingartexta og nánari lýsingu hvers korts. Um
þetta verkefni hefur verið góð samvinna við
þekkingarmiðstöð NORDINFO í þjóðbóka-
safnsdeildinni í Mo í Rana í Noregi.
Á árinu 1996 var gengið frá umsókn til
bandarísks sjóðs, Andrew W. Mellon
Foundation, um ljárframlag til að færa í staf-
rænt form hluta af íslenskum menningararfi,
einkum handrit íslendingasagna og rímna,
sem ortar eru út af efni þeirra, svo og prentað
efni, þar sem fjallað er um sögurnar. Um-
sóknin var undirbúin í samvinnu við íslenska
Fiske-bókasafnið í Cornell og með aðild
Stofnunar Árna Magnússonar á íslandi.
Stjórn Mellon-sjóðsins tók þá ákvörðun í
mars 1997 að veita um 42 m. kr. til verkefn-
isins gegn því, að umsækjendur útveguðu
rúmlega annað eins sem mótframlag, og
hefur það tekist. Með þessum hætti verður til
það, sem kalla mætti vísi að stafrænu þjóð-
bókasafni íslendinga, sem verður aðgengi-
legt um Internetið hvaðanæva í heiminum.
Fjölþjóðlegt samstarf
Landsbókasafn tekur þátt í samstarfi nor-
rænna þjóðbókasafna og á aðild að Evrópu-
samtökum og heimssamtökum þjóðbóka-
safna. Það annast tengsl íslands við bóka-
safnaáætlun Evrópusambandsins. Starfsmað-
ur í safninu er þessi árin í stjórn NORD-
INFO, norræns ráðs um vísindalega upp-
lýsingamiðlun, og annar í stjórn NVBF, sam-
taka bókavarða í norrænum rannsóknarbóka-
söfnum.