Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 418
416
Árbók Háskóla íslands
Rannsóknir á fingralorum og lófalínum
(dermatoglyphic): Undanfarið hefur MSHÍ
unnið að rannsóknum á fingraforum og lófa-
línum þúsunda manna úr ýmsum héruðum
Islands og nágrannalöndum, sem forstöðu-
maður hefur safnað. Um úrvinnslu er sam-
vinna við starfsmenn mannfræðistofnunar
Mainzháskóla. Nýlega birtist ritgerð í vís-
indaritinu Homo eftir próf. Jens Ó. P. Pálsson
og Ilse Schwidetzky um samanburð á
fingraforum og lófalínum íslendinga og íra.
Að mörgu leyti fannst athyglisverður og
marktækur munur á þeim í þessum efnum.
Könnun litarháttar íslcndinga og ná-
grannaþjóða: Á tímabilinu stóð MSHÍ fyrir
umfangsmikilli athugun á hára- og augnlit
Islendinga og nágrannaþjóða þeirra. Byggj-
ast athuganirnar á gögnum, sem forstöðu-
maður MSHÍ safnaði varðandi skólabörn,
unglinga og fúllorðið fólk úr ýmsum lands-
hlutum íslands og nágrannalanda. Hefur
hann áður fjallað um þetta rannsóknarsvið í
nokkrum útgefnum greinum erlendis og síð-
ast á ráðstefnu um Nordic Physical Anthro-
pology á vegum Vísindafélags íslendinga í
Reykjavík. Aberandi er, að Írar eru oftast
mjög dökkhærðir allt frá barnæsku, en
íslendingar og Skandínavíubúar eru flestir
ljóshærðir sem börn, en hár þeirra dekkist að
meira eða minna leyti með aldrinum.
Mannfræðilegar hlóðrannsóknir (sero-
anthropology): Um langt skeið hefur núver-
andi forstöðumaður MSHÍ safnað upplýs-
ingum/sýnum frá íjölda íslendinga frá ýms-
um landshlutum. Hafa innlendir og erlendir
aðilar veitt lið í sambandi við greiningu og
tölfræðilega úrvinnslu gagna, sem háskól-
arnir í Mainz og Bremen kostuðu að mestöllu
leyti.
Þrændur: Árið 1991 gerði J. Ó. P. mann-
fræðirannsóknir á nemendum í landbúnaðar-
skólum í syðri og nyrðri Þrændalögum í Nor-
egi, sem teljast alfarið af norskum ættum í
foður- og móðurætt. Hér var um mannamæl-
ingar og athuganir á hára- og augnlit að ræða,
auk þess sem Anne Kandler-Pálsson tók afrit
af lingra- og lófalínum þeirra, sem J. Ó. P.
rannsakaði, til mannfræðilegra rannsókna og
samanburðar við tilsvarandi gögn, sem
J. Ó. P. hafði áður safnað hjá íslendingum,
Dönum og írum. Úrvinnsla hefúr leitt í Ijós,
að Þrændur og íbúar Austurlands líkjast mjög,
hvað mælingar og hára- og augnlit snertir.
Gæti þetta vel samrýmst fornum íslenskum
frásögnum um, að Austurland hafi mest
megnis byggst frá Þrændalögum. Niðurstöður
af dermatóglýfískum athugunum er ætlunin
að birta í mannfræðitímaritinu Homo.
Lappar (Samar): Unnið hefur verið úr
mannfræðilegum gögnum, sem J. Ó. P. safn-
aði, þegar hann var við mannfræðilegar og
aðrar athuganir á Löppum í boði Inter-
national Biological Program-nefndarinnar
(I. B. P.) á sínum tíma í bænum Enari í Lapp-
landi. Lappar skera sig yfirleitt úr öðrum
íbúum Skandinavíu og íslands, hvað varðar
mál og menningu og líkamseinkenni. Þeireru
yfirleitt dökkhærðir og dökkeygir, stuttleitir
og stutthöfða. En samkvæmt mannfræði-
legum rannsóknum á íslendingum eru slíkar
manngerðir fáar á íslandi, enda þótt gera
megi ráð fyrir, að þær hafi að einhverju leyú
flust til íslands á landnámstíð.
Fjármál
Fyrirkomulag fjármála MSHÍ er við það
sama og verið hefur frá upphafi. Vegna fjar'
skorts hefur aldrei verið hægt að framkvæma
nema nokkurn hluta af þeim rannsóknum og
stunda þá úrvinnslu gagna, sem fyrirhugao
var og nauðsynlegt telst. Þó er skylt að nefna
og þakka hér viðbótarfjárveitingar, sem
MSHÍ hlaut á tímabilinu fyrir tilstilli fjárveit-
inganefndar Alþingis íslendinga. Stofnunm
er til húsa í leiguhúsnæði á Hólavallagötu
í Reykjavík, en var þar áður á Ásvallagötu
54. A árinu 1996 var unnið að nýrri regluger
fyrir MSHÍ. Stefnt skyldi að því að víkka
starfssvið stofnunarinnar og auka tengsl vi
félagsvísindadeild. Mikilvægt er að ráða *
fræðing að MSHÍ.
Ráðstefnur
Fyrirlestur var fluttur á ársráðstefnu sam
taka þýskumælandi mannfræðinga í Braun^
schweig í Þýskalandi, 14. apríl 1989 (SitzunS
der Arbeitsgemeinschaft Bevölkeningsb‘0
logie); Thema: Migration und genetúc H
Variabilitat.