Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 412
410
Árbók Háskóla íslands.
Líffræðistofnun Háskólans
1991-1997
Líffræðistofnun Háskólans tók til starfa
með reglugerð nr. 191/1974 árið 1974. Hlut-
verk hennar er: Að afla grundvallarþekkingar
í líffræði, einkum þeim greinum, sem kenndar
eru við raunvísindadeild Háskóla íslands. Að
miðla grundvallarþekkingu í líffræði, kynna
fræðilegar nýjungar og efla rannsóknir og
kennslu í líffræði á íslandi.
Stofnunin tekur einnig að sér rannsóknir á
hagnýtum sviðum líffræðinnar, eftir því sem
aðstæður leyfa og um semst. Á Líffræðistofn-
un Háskólans starfa allir þeir kennarar, sem
eru í fullu starfi við líffræðiskor raunvísinda-
deildar. Auk þess starfar við stofnunina einn
fastráðinn sérfræðingur og lausráðnir sér-
fræðingar, sem ráðnir eru til að sinna sérstök-
um verkefnum, lausráðið aðstoðarfólk og rit-
ari. Loks starfa þar að jafnaði nokkrir vísinda-
menn, sem stofnunin veitir aðstöðu. Á Líf-
fræðistofnun Háskólans er unnið að undir-
stöðurannsóknum í margvíslegum greinum
líffræðinnar. Með rannsóknunum fæst ný
þekking, sem kemur að notum við að leysa úr
ýmsum viðfangsefnum, bæði fræðilegum og
hagnýtum. Grundvallargreinar líffræðinnar
varða helstu atvinnuvegi okkar og velferð.
Aðsetur
Starfsemi Líffræðistofnunar Háskólans fer
að mestu fram við Grensásveg. Á Grensásvegi
12 eru rannsóknarstofur í erfða- og sameinda-
líffræði, frumulíffræði, sjávarlíffræði, fiski-
fræði, vistfræði, grasafræði og þróunar- og
stofnerfðafræði. Þar fer kennsla í líffræði
jafnframt fram. Á Grensásvegi 11 eru rann-
sóknarstofur í vatnalíffræði og dýrafræði.
Rannsóknarstofa í örverufræði er í Ármúla
la, og rannsóknir í lífeðlisfræði eru á
Vatnsmýrarvegi 16. Húsnæði rannsókna og
kennslu í líffræði við Háskóla íslands er á
ýmsan hátt óhentugt og mikið af því lélegt.
Fjarlægð er allt of mikil frá öðrum skyldum
greinum við Háskólann, og er einangrun og
raunar tvístrun stofnunarinnar á margan hátt
bagaleg fyrir starfsemina. Nú hillir undir
lausn á húsnæðisvanda Líffræðistofnunar og
líffræðiskorar, því bygging Náttúrufræðahúss
á austurhluta Háskólalóðarinnar er hafin.
Prófessor Gísli Már Gíslason.
Stjórn
Stjórn Líffræðistofnunar er skipuð tveiniur
fulltrúum fastráðinna starfsmanna og einum
stúdent. Á árunum 1987 til 1996 hefur Gísli
Már Gíslason, prófessor, verið forstöðumað-
ur, en aðrir í stjórn Guðmundur Eggertsson,
prófessor, (1987-1992) og Eva Benediktsdótt-
ir, dósent, (1992-1996). Fulltrúar stúdenta i
stjórn voru Úlfar Bergþórsson (1986-1987).
Jóhannes Árnason (1988-1989), Steinunn
Snorradóttir (1990), Guðjón Ingi Eggertsson
(1990-1991), Sólveig Halldórsdóttir (1991-
1992), Sigurður E. Vilhelmsson (1992-1993),
Valgarð Már Jakobsson (1994) og Ólöf Ýrr
Atladóttir (1994-1996).
Starfslið
Kennarar líffræðiskorar hafa allir aðstöðu
til rannsókna á Líffræðistofnun. Þeir voru 1 °1
árslok 1995, auk þess sem einn fastráðinn ser-
fræðingur starfar við stofnunina. Þeir starfa a
eftirtöldum sviðum líffræðinnar: dýrafræðn
erfðafræði, frumulíffræði, fiskifræði, grasa-
fræði, lífeðlisfræði, vatnalíffræði, vistfræði.
þróunarfræði og örverufræði. Auk þess hefur
sérfræðingur Náttúrurannsóknarstöðvarinnar
við Mývatn starfsaðstöðu við Líffræðistofnun
samkvæmt sér samkomulagi.