Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 496
494
Árbók Háskóla íslands
(Universidad Nacional de Colombia, Medellin)
um rannsóknir á grunnvatnskerfum í Andes-
fjöllum Kolumbíu í Suður-Ameríku. Starfs-
menn Medellinháskóla sáu um að safna
vatnssýnum í Andesfjöllum Kolumbíu, en
magn vetnis- og súrefnissamsæta sýnanna
var síðan mælt á Raunvísindastofnun Há-
skólans. Niðurstöður þessara rannsókna hafa
þegar skilað umtalsverðum árangri. Sem
dæmi þar um má nefna, að nú er vitað um
uppruna grunnvatns, sem rennur undir borg-
ina Bucaramanga í héraðinu Santander og
veldur því, að aurskriður eru smám saman
að eyða borginni. Þessi vitneskja bendir til
þess, að ef til vill sé mögulegt að veita
grunnvatnsrennslinu framhjá borginni og
koma þannig í veg fyrir áífamhaldandi eyði-
leggingu hennar.
Stjarneðlisfræði
Einar H. Guðmundsson: Á umræddu tíma-
bili var aðallega unnið að eftirtöldum tveimur
rannsóknarverkefnum, auk athugana á sögu
stjörnufræðinnar og annarra raunvísinda á Is-
landi, sem þegar hafa birst nokkrar greinar
um. Rannsóknarverkefnin tvö eru:
1) Rannsóknir á efni í sterku segulsviði.
Segulsvið við yfirborð margra nifteinda-
stjarna getur verið allt að I08 T, og dæmi eru
um enn sterkari svið. Við slíkar aðstæður hef-
ur segulsviðið veruleg áhrif á rafeindadreif-
inguna í atómum og þéttefni, jafnvel þegar um
mjög þung frumefni er að ræða. í fyrsta þætti
verkefnisins var þróað nýtt tilbrigði við gamla
aðferð, sem kennd er við Thomas og Fermi og
hefur áður verið notuð með góðum árangri á
efni án segulsviðs. Nýja Thomas-Fermi til-
brigðinu hefur nú verið beitt til að reikna út
ýmsa stórgerða eiginleika efnis í yfirborðs-
lögum nifteindastjarna með sterkt segulsvið.
Verkefnið var unnið með samstarfsmönnum
við Nordita, Kaliforníuháskóla í Santa Cruz
og Raunvísindastofnun.
2) Rannsóknir í heimsfræði. Eitt af mik-
ilvægustu verkefnum heimsfræðinnar er að
kanna, hversu gott samræmi er milli stjarn-
fræðilegra mælinga á fjarlægum fyrirbærum
og þess, sem spáð er í hinum ýmsu heims-
líkönum. í verkefninu hefur einkum verið
fengist við slíkar spurningar, og í því sam-
bandi var kastljósinu sérstaklega beint að
heimum, þar sem áhrif þrýstings á út-
þensluna eru allsráðandi. Einnig var þroun
Iokaðra heima könnuð í smáatriðum. Verk-
efnið var unnið með samstarfsmönnum a
Raunvísindastofnun.
Stjarneðlisfræði: aðsópskringlur og
heimsfræði
Gunnlaugur Björnsson: Leitin að svart-
holum byggist að miklu leyti á mælingum a
háorku röntgen- og gammageislum, sent ber-
ast utan úr geimnum. Geislunin er túlkuo
sem útgeislun efnisskífu, er safnast kringum
svartholið og sígur smátt og smátt ofan í Pa°-
Rannsóknir á slíkum aðsópskringlum beinu-
ust einkum að áhrifum raftvennda á gerð og
útgeislunareiginleika þeirra. Við sérstök skH-
yrði geta kringlurnar orðið það heitar, að efm
þeirra er allt jónað. Þá þarf að nota takmörk-
uðu afstæðiskenninguna til að lýsa eiginleik-
um rafgassins og gera vökvaafl fræðiþ:etu
líkananna mun betri skil en gert hefur veri
undanfarna tvo áratugi. Einnig voru athugu
líkön, þar sem ástand ljóseindagassins 1
kringlunum er á mörkum þess að vera lj°®
þykkt (svarthlutargeislun) og ljósþunnt (t.
Compton-dreifó hemlunargeislun). Þá voru
áhrif almennu afstæðiskenningarinnar a
kringlurnar rannsökuð og reiknuð líkön, p
sem ítarlegir útreikningar á eiginleikum ra
gassins sjálfs voru einnig teknir með. Ver '■
var unnið í samstarfi við Háskólann í Stok'
hólmi og Theoretical Astrophysics Center
Kaupmannahöfn. Einnig var unnið að rann
sóknum í heimsfræði með samstarfsmönnum
á Raunvísindastofnun og umsjón höfð me
uppsetningu og rekstri Super-DARN ratsjar
innar við Stokkseyri.
Eðlisfræði hálfleiðara: málmjónir í 8a**,n
arseni og kísli
Hafliði Pétur Gíslason, Baohua Yang. °
Pétursson: Rannsóknir í eðlisfræði hálflei a
við Háskóla íslands hófust í ársbyrjun 19 •
upphafi varrannsóknarsamstarfvið erlenu3
skóla nauðsyn vegna aðstöðuleysis hérlen ^
Náin samvinna um ýmis verkefni var a
saman við Lehigh háskóla í Bethlehem,
ylvaníu, og Háskólann í Linköping, Sviþje
Tilraunaaðstaða efldist hægt og bítandi
1990-1994, og undir lok tímabilsins voru ties
ar vísindagreinar rannsóknarhópsins
árangur
rannsókna við Raunvísindastofhun eingöng11’