Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 214
212
Árbók Háskóla íslancte
24.11.94: Upp var tekin frá síðasta fundi um-
ræða um framtíðarstefnu og verkáætlun Há-
skóla íslands. Guðmundur Steingrímsson,
fulltrúi stúdenta, greindi frá drögum að
þriggja ára framkvæmdaáætlun, sem lögð var
fram á síðasta fundi. Fram kom, að sumt í
drögunum væri í samræmi við hugmyndir
Þróunarnefndar Háskólans. Fundarmenn
lýstu stuðningi við drögin. Sérstaklega var
rætt um stjórnsýsluúttekt á Háskólanum og
mat á kennslu. Háskólaráð samþykkti, að
gerð yrði verkáætlun fyrir Háskólann næstu
þrjú ár með áherslu á framkvæmd þeirra
verkefna, sem háskólaráð taldi brýn og við-
ráðanleg.
19,01,95: Skýrsla Þróunarnefndar Háskóla
Islands, Háskóli íslands - Stefna og framtíð-
arsýn, sem kom út í desember 1994, lá fýrir
á fúndinum. Rektor gerði grein fyrir störfum
nefndarinnar og meginniðurstöðum skýrsl-
unnar og tillögum. Þórir Einarsson, formaður
Stjórnsýslunefndar, greindi nánar frá þeim
tillögum, sem vörðuðu stjórnsýslu og fjár-
mál.
02.02,95: Á fund komu Birgir ísleifur Gunn-
arsson, formaður Þróunarnefndar Háskóla
Islands, og Halldór Jónsson, starfandi fram-
kvæmdastjóri rannsóknarsviðs. Birgir greindi
frá skýrslu nefndarinnar, sérstaklega III.
kafla hennar, tillögum um aðgerðir og drög
að nýrri stefnu.
Rektor þakkaði nefndinni og sérstaklega
formanninum gott starf og hvatti til þess, að
skýrslan fengi bestu umfjöllun í deildum og
stofnunum, þannig að fljótlega mætti taka
upp þær tillögur nefndarinnar, sem samstaða
væri um. Tillögurnar voru ræddar og spurn-
ingum beint til Birgis, sem hann svaraði.
21.09,95: Áfram var haldið umræðu um
verkáætlun háskólaráðs og forgangsröðun
verkefna fyrir háskólaárið 1995-1996. Fyrir
fundinum lágu minnisatriði rektors um
málið. Samkvæmt könnun, sem gerð var á
síðasta fundi ráðsins, töldu ráðsmenn, að eft-
irtalin mál væru mikilvægust fyrir háskóla-
ráð: 1) starfsmannastefna og launakjör, 2)
öflun aðstoðarmanna við kennslu og rann-
sóknir, 3) úttektir og gæðamat á kennslu og
rannsóknum, og 4) framhaldsnám, fjár-
mögnun þess og skipulag. Rektor hóf um-
ræðu og ræddi rammalöggjöf fyrir háskóla-
stigið og lögin um Háskóla íslands. Verk-
efnum mætti skipta i tvennt: 1) stefnumark-
andi vinnu, m. a. með lögum og reglu-
gerðum, 2) aðra vinnu og framkvæmdir, sem
takmörkuðust af mannafla og fjármunum.
Fram kom, að þröngt og ófúllnægjandi hús-
næði stæði mörgum deildum fyrir þrifum-
Þröngur ijárhagur hamlaði reyndar allri starf-
semi Háskólans, og brýnasta verkefnið væri
að auka tekjur og fjárveitingar og ennfremur,
að Háskólinn ætti að einbeita sér á næstu
árum að brýnustu verkefnunum, en láta lang-
tímaverkefni heldur sitja á hakanum.
Hagræðing og þróun, úttekt Hagsýslu rík-
isins á stjórnsýslu Háskólans
13.10.94: Þórir Einarsson, formaður Stjórn-
sýslunefndar, tók þátt í umræðu um stjórn-
kerfi Háskóla íslands, en það hafði verið til
umræðu í Þróunarnefnd, sem menntamála-
ráðherra skipaði. Þróunarnefnd hafði einbeiú
sér að æðstu stjórn Háskólans, háskólaráði,
skipun þess og hlutverki. Kynntar voru skoð-
anir nefndarinnar, dags. 9. þ. m., og komu
fram rök með og á móti tillögum, sem þar var
að finna. Fallist var á, aö skilvirkni háskóla-
ráðs yrði að aukast, en ná mætti því rnark-
miði án mikilla breytinga á sjálfri skipun
ráðsins. Að öðru leyti taldi háskólaráð ótíma-
bært að taka afstöðu.
24.11.94: Rektor lagði fram hugmyndir um
breytingar innan stjórnsýslusviða Háskólans.
Hugmyndirnar voru ræddar og þó einkum
skipulag og tengsl rannsóknarsviðs og
kennslusviðs. Ennfremur voru lagðar fral11
tillögur Þóris Einarssonar, formanns Stjorn-
sýslunefndar, um breytingar á skipulagi sam-
eiginlegrar stjórnsýslu Háskólans. Málmu
var vísað til Stjórnsýslunefndar.
19,01,95: Þórir Einarsson, formaður Stjórn-
sýslunefndar, greindi frá úttekt nefndarinnar
á stjórnsýslu Háskólans. Skipulag stjorn-
sýslunnar hafði verið til umræðu á síðustu
háskólaráðsfundum og þar á meðal hugsan-
leg sameining kennslu- og rannsóknarsviðs og
stofnun rannsóknarþjónustustofnunar. Marg11
höfðu hins vegar efasemdir um þessar bre)'1
ingar. Rædd var væntanleg stjórnsýsluútte t
á Háskólanum, markmið úttektarinnar og
fyrirkomulag.