Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 278
276
Árbók Háskóla íslands
einn kjörinn af háskólaráði og annar af Stúd-
entaráði Háskóla Islands. Fram kom vilji
háskólaráðs til að styrkja samtökin og greiða
hluta af launum fyrirhugaðs framkvæmda-
stjóra með styrk úr Háskólasjóði. Sigmundur
Guðbjarnason var kjörinn fulltrúi háskóla-
ráðs í samtökin.
10.01.97: Sigríður Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hollvinasamtaka Háskóla
íslands, greinir frá uppbyggingarstarfi Holl-
vinasamtakanna og hollvinafélögum deilda í
Fréttabréfi Háskóla íslands, I. tbl., 19. árg.,
1997. Hollvinafélög hafa nú verið stofnuð i
guðfræðideild, heimspekideild, læknadeild,
tannlæknadeild, raunvísindadeild og verk-
fræðideild. Lagadeild, viðskipta- og hag-
fræðideild og félagsvísindadeild vinna að
undirbúningi stofnunar hollvinafélaga. For-
maður stjórnar Hollvinasamtakanna er Ragn-
hildur Hjaltadóttir, skrifstofustjóri.
05.09.97: Oft hefur það verið rætt, að
Háskólinn ætti að rækta betur tengsl sín við
brautskráða kandídata og leita eftir stuðningi
þeirra við mótun náms og jafnvel eftir
styrkjum til uppbyggingar starfseminnar.
Sterk hefð er í þessum efnum við marga
erlenda háskóla. Eftir því sem best er vitað,
munu 15 ára læknakandídatar 1972 hafa
verið einna fyrstir til að bera fram hugmynd
um hollvinasamtök við Háskóla íslands, og
þeir sýndu hug sinn í verki með myndarlegri
gjöf til Háskólans á liðnu vori í tilefni 40 ára
frá brautskráningu. Hugmyndin um Holl-
vinasamtök fékk nýjan byr í nefnd, sem
háskólaráð skipaði til að benda á leiðir til
tekjuöflunar fyrir Háskólann á árinu 1993, og
verulegur skriður komst svo á málið, þegar
Stúdentaráð ákvað að setja það á oddinn
haustið 1995. Átak þeirra réði úrslitum, og
nú eru Hollvinasamtökin orðin virkur stuðn-
ingsaðili Háskólans, og hollvinafélög starfa
með flestum háskóladeildum. Samtök þessi
veita Háskólanum bæði styrk og aðhald, sem
hann fagnar heils hugar. Samtökin og félögin
munu hafa tvíþættan tilgang. Þau auðvelda
kandídötum og öðrum hollvinum að njóta
þess, sem samfélag Háskólans hefur að bjóða
með almennri fræðslu, símenntun og þátt-
töku í menningarviðburðum og veita þeim
tækifæri til að hafa áhrif á þróun Háskólans.
Þau munu einnig veita Háskólanum styrk og
aðhald til að sinna markmiðum sínum.
27.11.97: Sigríður Stefánsdóttir, frarn-
kvæmdastjóri Hollvinasamtaka Háskóla
íslands, lagði fram skýrslu um starfserW
samtakanna frá stofndegi 1. desember 1995
til 27. nóvember 1997.
íslenskt söguþing
28.05.97: Fyrsta íslenska söguþingið var
haldið í húsakynnum Háskólans dagana 28.-
31. maí 1997. Þingið var stærsta ráðstefna
íslenskra sagnfræðinga, sem haldin hafði
verið hér á landi. Tæplega þrjú hundruð sagn-
fræðingar, aðrir fræðimenn og áhugarnenn
um íslenska sögu sátu þingið, en auk þess
voru opnir fyrirlestrar í hátíðarsal Háskóla
íslands nokkuð vel sóttir. Að því stóðu Sagn-
fræðistofnun Háskóla íslands og Sagnfrseð-
ingafélag íslands. Dagskrá þingsins var afar
íjölbreytt, en áhersla var lögð á mörg,
svið í sögu og fortíð íslendinga síðustu 119
árin. Um sjötíu fræðimenn fluttu fyrirlestra,
og komu þeir hvaðanæva að af landinu.
íslenskukcnnsla í Manitoba styrkt
04.09.97: Eitt af síðustu embættisverkuin
Sveinbjörns Björnssonar, háskólarektors, yar
að veita 18.000 dollara styrk úr Háskólasjoði
Eimskipafélags íslands til að styðja vj
rekstur kennslu í íslensku við íslenskudei
Háskólans í Manitoba. Snemma á þessu aO
bárust fréttir af þvi, að íslenskudeildin V1
Háskólann í Manitoba ætti í verulegum fiar
hagsvandræðum eins og Manitobahásko
allur, og stóð jafnvel til að leggja deilðm®
niður eða leggja kennslu í íslensku undir aði
deildir. Að sögn Neil Bardal, ræðismann
íslands í Manitoba, kom styrkurinn sér mj°8
vel, og telur hann, að nú ætti að vera unnt3
halda úti kennarastól í íslensku til frambú a •
Lágmynd af Pétri Sigurðssyni, hásko a
r'tara ,.
20.03.97: Börn Péturs Sigurðssonar, hásko
ritara, færðu Háskóla Islands lágntyn£* ‘
föður sínum. Margir vinir Péturs voru m® ^ ’
þegar gjöfinni var veitt viðtaka við hátíð efe
athöfn í lessal gamla háskólabókasafnsins-
Menntamálaráðherra heimsækir há
ráð
skóla'
G-
09.03.95: Menntamálaráðherra, ÓlafW^
Einarsson, Guðríður Sigurðardóttir, r
neytisstjóri, Stefán Baldursson, skrifs10