Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 354
352
Árbók Háskólaísjands
unni, gefið út sameiginlegt kynningarefni,
verið með innlegg á ráðstefnunni, staðið fyr-
ir móttökum o. fl. Kynning á ráðstefnu
NAFSA samtakanna var styrkt af norrænu
ráðherranefndinni i 3 ár. Ákveðið var að
halda áfram samstarfi um kynningu á námi á
Norðurlöndum á þessari ráðstefnu, og hafa
löndin deilt kostnaði sín á milli. Kynningin á
vettvangi NAFSA hefur verið mikilvæg fyrir
íslenska háskóla. Má rekja tilurð margra
samninga við erlenda háskóla til NAFSA
þátttökunnar. Þar gafst tækifæri til að ná tali
af fúlltrúum háskóla í löndum eins og Ástral-
íu, Nýja-Sjálandi, Japan, Bandaríkjunum,
Kanada auk Norðurlandanna og Evrópu-
landa. Starfsmenn Alþjóðaskrifstofunnar
hafa einnig sótt ráðstefnur EAIE (European
Association of International Education) frá
stofnun þeirra samtaka árið 1989.
Háskóli Islands hefur verið meðlimur í Ut-
recht-samstarfsneti um 30 háskóla í Evrópu
frá 1994. Utrecht-netið hefur verið mikilvægt
að því leyti, að það hefur opnað fjölmargar
dyr fyrir stúdenta Háskóla Islands, en netið
hefur alla tíð lagt áherslu á stúdentaskipti
milli skólanna, styrkt persónuleg tengsl
þeirra, sem vinna að þessum málum, og hafa
menn deilt reynslu sinni hver með öðrum. Ut-
recht-netið hefur gert samninga við eina 15
háskóla í Bandaríkjunum um stúdentaskipti,
svonefnt MAUI-net. Utrecht-netið hefur
einnig gert samninga við 7 háskóla í Ástralíu
um gagnkvæm stúdentaskipti. Fjölmargir
stúdentar Háskóla íslands hafa notfært sér
þessa samninga með góðum árangri, og hefur
Háskólinn einnig tekið á móti stúdentum frá
þessum skólum. Árið 1997 varð Háskóli ís-
lands aðili að ISEP (International Student
Exchange Program), sem eru Bandarísk stúd-
entaskiptasamtök. Um 100 bandarískir há-
skólar eru í ISEP.
Samhliða auknum fjölda erlendra stúdenta
við Háskóla íslands hefur verið leitast við að
byggja upp góða stoðþjónustu við þennan ört
stækkandi stúdentahóp. í samstarfssamning-
um milli háskóla, sem fjalla um stúdenta-
skipti, skuldbinda skólarnir sig til að veita
stúdentum hvors annars ákveðna þjónustu svo
sem aðstoð við útvegun húsnæðis. Húsnæðis-
mál erlendra skiptistúdenta hafa verið á
ábyrgð Alþjóðaskrifstofunnar, og er það orðið
umfangsmikið verkefni að finna þeim öllum
samastað, þar eð stúdentagarðarnir geta etn-
ungis tekið við litlum hluta þessa hóps.
Alþjóðaskrifstofan hefur um árabil staðið
fyrir íslenskunámskeiði, sem kennt er í ágúst
ár hvert fyrir verðandi skiptistúdenta við ha-
skóla á íslandi. í tengslum við tungumála-
námskeiðið hafa starfsmenn Alþjóðaskru-
stofunnar staðið fyrir umfangsmikilli menn-
ingardagskrá. Fyrstu árin önnuðust kennarar
íslenskuskorar fyrir erlenda stúdenta í hugvis-
indadeild alla kennslu á ágústnámskeiðum.
Starfsmenn Alþjóðaskrifstofu háskóla-
stigsins hafa frá 1992 staðið fyrir dagskrá um
ísland og íslensk málefni fyrir erlenda stud-
enta og kennara, sem koma til landsins. Dag'
skrá þessi er ætluð stúdentum og kennurum
allra skóla á háskólastigi. Um árabil hefur
„Introduction to Iceland," en svo nefnast þess'
ir viðburðir, verið um 3 til 4 á önn. Dagskratn
er sambland af skoðunarferðum í og utan
Reykjavíkurog fyrirlestrum um íslenskt þjoð
félag og menningu. Hún er mjög vinsæl og
fjölsótt.
Stúdentaskipti til og frá Háskóla íslands
1992-1998
Fjöldi
300 1
250
200
'□ Til HÍ
■ Frá HÍ.
150
. I
Hfli
pn i iJ
Alþjóðasamskiptanefnd - aiFJ----- ..
Starfsmenn Alþjóðaskrifstofu hafa s® '
Alþjóðasamskiptanefnd síðar alþjóðara 1
upphafi. í alþjóðaráði sitja fulltrúar skip
af deildum Háskólans, einnig aðstoðarmd ^
rektors, fúlltrúi stúdenta og alþjóðaskri s ^
Rektor skipar formann ráðsins. Alþjóðjtf ^
er samstarfs- og samráðsvettvangur A PJ g
skrifstofú og deilda og annarra, sem ko^1 .
skipulagningu alþjóðasamstarfs innan
Karítas Kvara'1-