Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 52
50
Árbók Háskóla íslands
Fram til þessa hefiir Háskóli íslands verið
eini háskólinn í flestum greinum, sem hefur
staðið öllum stúdentum opinn. Hefði hann
ekki tekið við þeim til náms, ættu margir ekki
í annan háskóla að venda hér á landi. Þegar
aðrir skólar, sem bjóða háskólanám, hefðu
styrkst svo, að þeir gætu tekið við álitlegum
hópi stúdenta, gæti Háskóli íslands réttlætt að
velja úr hópi umsækjenda þá, sem hæfastir eru
til þess náms, sem hann hefur að bjóða og ein-
beita sér að almennu fræðilegu námi, lengra
starfsnámi á vísindalegum grunni og þjálfun
meistara- og doktorsnema til rannsókna.
Eitt helsta forgangsmál Háskóla íslands er
að byggja upp aðstæður til rannsóknarnáms
hér á landi. Það er nánast forsenda þess, að
unnt sé að virkja rannsóknaráhuga ungs fólks,
beina honum inn á þær brautir, sem íslenskar
aðstæður þarfnast, og koma á virkum tengsl-
um milli Háskólans og helstu rannsóknar-
stofnana og fyrirtækja okkar. Rannsóknar-
námið er nú hafið í mörgum deildum, og
áhugi stúdenta er mikill svo sem best sést á
umsóknum þeirra í Rannsóknarnámssjóð.
Þær námu 90 m. kr., en sjóðurinn hafði aðeins
20 milljónir til styrkja og gat aðeins veitt fé til
framfærslu námsmannanna. Kostnað af leið-
beiningu og nýjum námskeiðum verða deildir
Háskólans að bera óbættan. Ef Háskólinn
hefði fjárhagslegt svigrúm, mundi hann láta
þessar þarfir hafa forgang, en því miður bind-
ur árleg fjölgun nemenda um 300 á ári hendur
skólans, þar sem hún eykur kennslukostnað
um 30 milljónir á ári að lágmarki. Eitt
brýnasta hagsmunamál Háskólans er því að fá
samræmi milli þeirrar skyldu, sem honum er
gerð með lögum að veita viðtöku til náms öll-
um stúdentum, sem til hans sækja og þeirra
íjárveitinga, sem kennslunni eru ætlaðar. Há-
skólinn er reiðubúinn að gera þjónustusamn-
ing við stjórnvöld um þetta verkefni á grund-
velli reiknilíkans, sem notað er til ákvörðunar
Ijárveitinga til sænskra háskóla og lagað hef-
ur verið að aðstæðum í Háskóla Islands. Von-
ir standa til þess, að þetta líkan verði grund-
völlur að íjárveitingum til kennsludeilda á
komandi Ijárlögum og samræmi verði milli
Ijárveitinga og Ijölda þeirra, sem teknir eru til
náms. Svipuð líkön ættu reyndar að geta
gagnast öllum skólum, sem veita menntun á
háskólastigi.
Menntamálaráðherra vinnur að samningu
frumvarps til laga um háskólastigið, og jafn-
hliða slíkri lagasetningu verður að endur-
skoða lög um Háskóla Islands. Ný lög, sem
Alþingi hefur sett um upplýsingar og lög um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins,
stangast einnig á við lög og reglugerð Háskól-
ans í mörgum atriðum, og því verður ekki
undan þvi vikist að gera verulegar breytingar
á lögum Háskólans hið fyrsta. Háskólinn mun
nýta sumarið til að átta sig á þeim breytingum,
sem nýju lögin valda og móta tillögur sínar.
Markmiðið er, að lögin auðveldi Háskólanum
að gegna hlutverki sínu og veiti stúdentum og
öllum starfsmönnum Háskólans sem best
skilyrði til starfa. Um þessar mundir er að
ljúka undirbúningi að stofnun Hollvinasam-
taka Háskóla íslands. Samtökin munu hafa
tvíþættan tilgang. Þau munu veita kandídöt-
um og öðrum hollvinum tækifæri til að njóta
þess, sem samfélag Háskólans hefur að bjóða
með símenntun og þátttöku í menningarvið-
burðum. Þau munu einnig veita Háskólanum
styrk og aðhald til að sinna markmiðum sín-
um. Formaður undirbúningsstjórnar, Sig-
mundur Guðbjarnason, fyrrum háskólarektor,
mun gera nánari grein fyrir þessum samtökum
hér á eftir, en ég vil nota tækifærið til að þakka
stúdentum og ijölmörgum hollvinum dyggan
stuðning við þetta mikilvæga málefni.
Kæru kandídatar, nú er komið að þeirri
stundu, að þið takið við vitnisburði Háskólans
um árangur ykkar í námi. Við ykkur eru
bundnar miklar vonir. Við þurfum þekkingu
ykkar til að bæta líf okkar, auka verðmæti
þeirra afurða, sem náttúran gefur og skapa ný
verðmæti með hugkvæmni. Þið þurfið tæki-
færi til að beita kröftum ykkar og þekkingu,
svo að við getum í sameiningu varðveitt þau
lífsgæði, sem við njótum, og unnið saman að
viðgangi lands og þjóðar. Háskólinn er metinn
eftir menntun þeirra, sem ffá honum koma,
hvort sem það er til frekara náms í öðrum há-
skóla eða til starfa í þjóðfélaginu. Við vonunt,
að ykkur farnist vel og þið beriö héðan stað-
gott vegarnesti.
Háskólinn mun alla tíð vera fús að veita
ykkur aðstoð og stuðning og hverja þá viðbót-
armenntun, sem þið kunnið að kjósa og hann
megnar að veita. Við þökkum ykkur ánægju-
legt samstarf og samveru og óskum ykkur og
Ijölskyldum ykkar gæfu og gengis á komandi
árum. Guð veri með ykkur.